Feykir - 05.01.2000, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 1/2000
Handtak yfir Varmána
Sagt frá gömlum „milliríkjasamningi“
Skagfirðingar þóttu varsamir
Bræðrarborgarfélagamir. Frá vinstri: Magnús H. Gíslason, Ásgrímur
Jónsson, Karl J. Magnússon og Sigúrpáll Ámason. Fjórði Skagfirðingurinn
var ókominn í hópinn þegar samningurinn var undirritaður.
Kvöld í janúarbyrjun. Kyrrt veð-
ur og stjörnubjart, nokkurt frost.
Bíll var á leið austur yfir Hellis-
heiði. Farþegar voru fáir og
hljóðlátir. Eg þekkti þá ekki utan
félaga mína tvo. En þá þekkti eg
líka vel eða eins vel og sjálfan
mig, kannski betur. Við vorum
kunnugir allt frá bernsku. Auk
þess hafði eg verið samtíða þeim
í skólum. Öðrum einn vetur í
Bændaskólanum á Hólum, hin-
um tvo vetur á Héraðsskólanum
á Laugarvatni, þar sem við vor-
um herbergisfélagar, annan vet-
urinn á (Hel)-víti, hinn í Síberíu.
Og nú voru lengri samvistir
framundan, tvö og hálft ár, ef allt
færi eins og ætlað var. Þessir fé-
lagar mínir voru þeir Asgrímur
Jónsson frá Ytri-Húsabakka í
Seyluhreppi og Karl J. Magnús-
son frá Egg í Hegranesi.
Við höfðum sótt um skólavist í
Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölf-
usi. Hann átti raunar ekki að byrja fyrr
en í aprfl. En þangað til áttum við að
vinna við garðyrkjustöðina, sem skól-
inn var nú að taka við úr hendi Guðjóns
bústjóra, sem nú hafði reist sér nýbýl-
ið Gufudal. Þar til skólinn hæfist feng-
um við frítt fæði og húsnæði og að auki
10 krónur á mánuði í kaup. Og nú vor-
um við á leið í Reyki og mun hver hafa
hugsað sitt.
Bjama bflstjóra mun hafa þótt söfn-
uðurinn heldur þegjandalegur. Og rétt í
þann mund sem sem við ókum fram
hjá Skíðaskálanum í Hveradölum hóf
hann upp söng mikinn. Bjami var mað-
ur glaðvær og söngvinn, eins og við átt-
um eftir að kynnast betur síðan. Hann
átti heima á Stokkseyri og ók bfl fyrir
Pál Guðjónsson bílaútgerðarmann þar.
Líklega höfum við félagarnir verið
búnir að fá nóg af þögninni eins og
Bjami, a.m.k. vorum við fljótir að taka
undir með honum. Úr því varð ekki lát
á söngnum fyrr en bíllinn nam staðar
við Mjólkurbúið í Hveragerði. Við
stöfluðum farangri okkar upp við hús-
vegginn og Bjarni sagði okkur til veg-
ar upp að Reykjum. Þvínæst kvödd-
umst við með hressilegu lagi og pauf-
uðumst út í myrkrið.
Þegar þessi saga gerðist var Hvera-
gerði ennþá ákaflega fámennt þorp.
Muni eg rétt þá mun ekki hafa verið
búið að staðaldri nema í 12-15 húsum.
Auk þess voru örfáir sumarbústaðir,
sem á þessum árstíma stóðu að sjálf-
sögðu auðir. Á skólasetrinu Reykjum
var heldur ekki margt um manninn. Þar
vorum við aðeins sex þar til skóla-
stjórahjónin komu.
Eg held að það megi segja um okk-
ur þremenningana að við værum allir
fremur félagslyndir. Og okkur fannst
félagslífið fremur dauft þama í Sudda-
króki, en svo nefndi Magnús heitinn
Torfason sýslumaður vinkilinn þarna
uppi við Hellisheiðina, þar sem Hvera-
gerðisþorp var nú að myndast. Og þessi
nafngift sýslumanns hitti í mark. í
Hveragerði var ákaflega úrkomusamt.
Þar gat rignt svo ekki væri „hundi út
sigandi” þótt Ingólfsfjallið væri baðað
í sólskini.
Við höfðum ekkert á móti því að
komast á ball öðru hvoru. En þar var
hægara um að tala en í að komast. Á
Reykjum var ekki annað kvenfólk en
skólastjórafrúin og roskin ráðskona. í
Hveragerði voru fjórir eða fimrn strák-
ar á aldur við okkur en varla nokkur
stelpa, nema í kvennaskólanum auð-
vitað. Þar vom þær milli 10 og 20. Og
„þangað mændi vonin öll”. En þar réð
Árný ríkjum og okkur þótti hún ekki
beint árennileg.
Mikill skörungur
Ámý þessi var Fillipusdóttir, Rangæ-
ingur að ætt og uppruna. Gerðarkona í
sjón og raun. Ágætlega menntuð. Auk
náms hér heima nam nún við Det
tekniske Selskapsistititut í Kaupmanna-
höfn 1918-1924, í Dansk kunstflid
forretningsskole í Kaupmannahöfn
1920- 1925. Fór námsferðir til Kaup-
mannahafnar og Þýskalands 1928.
Stundaði síðan kennslu bæði erlendis
og hér heima. Stofnaði Kvennaskólann
að Hverabökkum í Hveragerði 1935 og
stjórnaði honum og rak með miklum
skörungsskap ámm saman. Árný var,
eins og áður er sagt, mikil gerðar- og
gáfukona, mjög listfeng, fjölhæfur
kennari og reyndist okkur Reykjapilt-
um góður og skilningsríkur nágranni.
Hugað að aðgerðum
Jæja, svo var það kvöld eitt að við
félagarnir tókum þetta vandamál og
áhyggjuefni til rækilegrar umræðu uppi
á Bræðraborg en svo nefndum við her-
bergið okkar. Og við komust að þeirri
niðurstöðu að einn okkar skyldi fara á
fund Ámýjar og freista þess að leiða
henni fyrir sjónir nauðsyn þess, bæði
fyrir okkur og „stúlkurnar mínar”
(orðalag Ámýjar um námsmeyjamar),
að lyfta sér aðeins upp svona hálfsmán-
aðarlega. En hverjum okkar skyldi svo
falin á hendur þessi vandasama og þýð-
ingarmikla samningsgerð? Við ákváð-
um að láta fara fram leynilega at-
kvæðagreiðslu um það. Félagar mínir
kusu mig og eg hef grun um að það
hafi verið samantekin ráð en eg kaus
annan þeirra.
Ákveðið var að láta til skarar skríða
að tveimur dögurn liðnum. Þangað til
hugsaði eg um lítið annað en það
hvernig eg ætti að haga mínum mál-
flutningi. Um þessar mundir vorum við
að þvo vermireitarglugga. Og til marks
um það hvað eg var upptekinn af að
hugsa um þær vandasömu og við-
kvæmu viðræður, sem framundan voru
að eg var einu sinni búinn að þvo einn
glugga í hálftíma, sem annars átti ekki
að vera nema fimm mínútna verk, þeg-
ar félagar mínir hnipptu í mig og
spurðu hvort glugginn færi ekki að
verða hreinn?
Örlagaríkt augnablik
O-g svo kom að því að eg labbaði
niður fyrir Varmána og kvaddi dyra á
Hverabökkum, en svo nefndist bygg-
ing kvennaskólans. Ung og broshýr
stúlka kom til dyra. Mér sýndist hún
ákaflega geðþekk og varð nú staðráðn-
ari í því en nokkru sinni fyrr að leggja
mig allan fram við samningaviðræð-
umar. Og innan stundar sat eg inni í
einkastofu Árnýjar, sem þegar lét bera
fyrir mig hinar bestu veitingar.
Eg hafði þaulhugsað hvemig eg
skyldi haga málflutningi mínum. Eg
byrjaði að gera grein fyrir því að við
værurn nú nýkomnir að Reykjum, þrír
Skagfirðingar, væntanlegir nemendur
við Garðykjuskólann. Við værum eðli-
lega ókunnir öllu og öllum á þessurn
slóðum og vildum gjaman vita ofurlít-
ið um mannlífið í þessu litla samfélagi
og teldum hana öðrum líklegri til að
fræða okkur um það. Hvað gæti hún
t.d. sagt okkur af félags- og skemmt-
analífinu?
- Það er nú hvorki mikið né marg-
brotið, sagði Árný. - Hér er eðlilega
fátt af ungu fólki utan „stúlkumar mín-
ar” og það segir sig sjálft, að skemmt-
analífið getur ekki verið mikið. Og
skólans vegna þykir mér það nú bara
gott því „stúlkumar mínar” láta þá síð-
ur glepjast frá náminu.
Ekki þótt mér nú þessi orð lofa góðu
um lukkuleg málalok. En ekki dugði að
gefast upp við svo búið svo eg fór að
tala um það, að við þremenningarnir
hefðum ákveðið að beita okkur fyrir.
auknu skemmtana- félags- og menn-
Herbert Jónsson, kunnur Hvergerðingur á seinni tíð og oft nefndur „borgar-
stjórinn“. Hann var einskonar skólaráðsmaður hjá Ámýju. Muller palest-
inskur pflagrímur sem dvaldi um hríð á Hverabökkum og Ámý Fillipusdóttir
skólastjóri og eigandi kvennaskólans.