Feykir - 05.01.2000, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 1/2000
Hagyrðingaþáttur 287
Heilir og sælir lesendur góðir.
Bestu þakkir fyrir samstarfið á liðnu
ári. Mikið gengur nú á í landsmálapóli-
tíkinni þegar þessi þáttur er skrifaður
síðustu daga ársins, liðna. Mesta um-
ræðu vekur ráðabmgg iðnaðarráðherr-
ans um tryggt húsaskjól í Seðlabankan-
um um næstu framtíð.
Fyrsta vísan að þessu sinni er tengd
Finni og álverinu, en tekið skal fram að
hún er gerð fyrir jólin, þó ég hefi ekki
haft möguleika á að birta hana fyrr.
Höfundurer Hjörtur J. Guðmundsson
á Skagaströnd.
Finnur hrópar alla á
aldrei skal ég hrökkva.
Alver vill ég æstur fá
og Eyjabökkum sökkva.
Um einkavinavæðingu stjómar-
flokkanna yrkir Hjörtur svo.
Margir eru íhalds, gallar
um það mætti lengi rabba.
Þjóðarinnar eigur allar
á að gefa vinum Dabba.
Um það heimslögregluvald sem
Bandaríkjamenn taka sér gjarnan yrkir
Hjörtur.
Kaninn áfram kúgar heim
með kjarnavopnum sínum.
En fyrr mun hann þó farga þeim
en fylgja réttum línum.
Um vemdun íslenskrar tungu yrkir
Hjörtur.
Málið okkar, ekki við
eflum neitt með slangri.
Við ættum því að gefa grið
og gleyma notkun rangri.
Að lokum þessi fallega vísa eftir Hjört.
Sólin geislum sínum krýnd
sest í haf við ókunn lönd.
Drottins miskunn mér er sýnd
að mega búa á Skagaströnd.
Fyrir skömmu átti Jón Gissurarson í
Víðimýrarseli erindi til undirritaðs. Um
það leyti er hann lagði af stað varð til
þessi vísa.
Hér ég óðar skelli á skeið
skálda fáki glöðum.
Feikna verður falleg reið
fram að Eiríksstöðum.
Eitt sinn að loknu hagyrðingamóti
orti Jón.
Allt er sviðið orðið hljótt
andans niður flúinn.
Nú er liðið langt á nótt
ljóðakliður búinn.
Ein vísa kemur hér enn eftir Jón.
Sólar glætu sinnið fær
sút og leiða hrekur.
Morgunstundin mild og kær
mínar kenndir vekur.
Það er Dagbjartur Dagbjartsson á
Refsstöðum sem yrkir svo.
Auð og völd menn dýrka og dá
sem drottinn sumum gefur.
En hamingjan er það að þrá
það sem maður hefur.
Einhverju sinni fréttist eftir Dag-
bjarti að hann hefði ætlað kvöld eitt að
setja saman vísnaþátt íýrir blaðið Borg-
fírðing. Þurfti hann áður að hringja í
bónda í Húnaþingi og konu í Borgar-
firði. Voru þau að mati Dagbjarts bæði
rallhálf og drógust samtölin á langinn,
svo lítið varð úr skrifum. Þegar Þórdís
Sigurbjömsdóttir á Hrísum spurði þessi
tíðindi orti hún svo í orðastað Dagbjarts.
Ei til skrifta fékk ég frið
fjandans bölvuð meið var.
Að þurfa að bulla bittur við
beggja megin heiðar.
Önnur vísa kemur hér eftir Þórdísi
og er gaman að fá viðurkenningu á því
að framsóknarmenn noti sér öðrum
fremur jressar góðu guðs gjafir.
Halda á börum hrafnaþing
háðir öli og svönnum.
Er það dágóð útskýring
á framsóknarmönnum.
Það mun hafa verið Sveinbjörn al-
herjargoði sem orti svo.
Orðabraut mun ennþá greið
einnig gönuskeiðin.
Fetar hugur fram á leið
fær er ljóðaheiðin.
Um ákveðna gestakomu mun
Sveinbjöm hafa ort eítirfarandi vísu.
Efni það sem um var spurt
ekki verður kannað.
Samt er víst hann bar á burt
bæði frjálst og annað.
Það mun hafa verið Benedikt Ingi-
marsson sem orti svo.
Fjalladrottning móðir mín
mér er sama um élin.
Ég síðar veit að sólin skín
og signir jarðarhvelin.
Þar sem nú er hafið síðasta ár þess-
arar aldar og undirtitaður býst við að
reyna að tína saman efni í nokkra þætti
í viðbót, kannski komast svo langt að
klára 13. árið íþessu starfí ( 1. aprfl nk.)
langar mig til að biðja lesendur eins og
stundum áður að vera nú duglega að
hafa samband, annað hvort í gegnum
sínta eða skrifa bréfkom og senda mér
sitt af hverju til að moða úr. Einnig eru
leiðréttingar vel þegnar.
Að lokum þessi vísa sem Dagbjart-
ur á Refsstöðum sendi undirrituðum
umjólaleytið.
Eftir haustsins at og puð
aftur hækkar sólin.
Vona bara að góður guð
gleðji þig umjólin.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Hvað hafa þau að segja við upphaf nýs árþúsunds?
Jafnan er fólki gjamt að líta um öxl við áramót. Feykir hafði
tal af nokkmm góðborgurum kjördæmisins og lagði fyrir þá
nokkrar spumingar nti í byrjun nýs árþúsunds. Spumingam-
ar voru eftirfarandi:
1. Hvað er þér minnisstæðast frá síðasta ári?
2. Ef þú settir þig í spor spámanns, hvað gæturðu þá nefnt í
sambandi við þetta nýbyrjaða ár?
3. Strengdir þú áramótaheit að þessu sinni?
Björn Þ. Sigurðsson
verkamaður Hvammstanga:
I. Það kemur bara ekkert í
hugann, enda hefur maður ver-
ið að draga saman seglin. er
meira að segja hættur að verka
hákarl hvað þá annað.
2. Ég held ég geti ekki sagt
neitt um það, ég er lítill spá-
maður.
3. Já, ég gerði það og hét því
að verða orðinn hrosslaus eftir
aldamótin. Ég átti nefnilega tvö
hross og lét þau.
Guðbjörg Ingimundar-
dóttir félagsmálastjóri:
1. Flutningur á málefnum
fatlaðra yfír til sveitarfélaganna
á Norðurlandi vestra. Mála-
flokkurinn hefur þyngst og
margfaldast og hefur gert aukn-
ar kröftur til míns starfs.
2. Meiri bjartsýni meðal
Skagfirðinga á nýju ári.
3. Nei, ég stend yfirleitt ekki
við svona áramótaheit og er
bara hætt því.
Geirmundur Valtýsson
tónlistarmaður Sauðárkróki:
1. Minnistæðast hjá mér er -
að ég dreif mig í að gefa út
minn 10 disk. Ég er mjög sáttur
við það að hann seldist í 3700
eintökum fyrirjólin og lenti þar
í 10. sæti. Ég get ekki annað en
verið sáttur við það, ætli séu
ekki gefnir út á annað hundrað
titlar íslenskra platna. Ég þakka
fólki fyrir góðar móttökur á
disknum.
2. Ég vona að Skagafjörður
rísi áfram atvinnulega séð. Það
verði til fleiri ný fýrirtæki og
verði svo lífvænlegt hérna að
fólk þurfí ekki að flytja héðan.
3. Nei það hef ég aldrei gerti.
Ég hvorki reyki eða drekk og
hef því ekki þurft á átaki að
halda hvað það varðar.
Helgi Gunnarsson bygg-
ingarmeistari Skagaströnd:
1. Ferðin til Aruba sem er
land fyrir sunnan Kúbu, ein
svokallaðra hollensku Antileyj-
ar. Þessi ferð verður lengi í
minnum höfð, mjög sérstakt og
ánægjulegt ferðalag.
2. Ég þykist sjá það fýrir að
Jxtkkalegt ástand verði atvinnu-
lega séð og vona bara að mér
og mínum gangi vel.
3. Nei það gerði ég ekki.
Jensína Lýðsdóttir skrif-
stofustúlku Skagaströnd:
1. Það gekk bara allt vel og