Feykir


Feykir - 12.01.2000, Qupperneq 5

Feykir - 12.01.2000, Qupperneq 5
2/2000 FEYKIR 5 Knattspyrnulið Hólaskóla, sem atti kappi við Akureyr- inga. Frímann er í miðju í fremstu röð, en meðal annars má þekkja Jón Karlsson úr Bárðardal, seinna á Sauðár- króki, í öftustu röð til vinstri. var ráðskona hjá honum. Sig- urður bróðir þeirra sem líka var einhleypur, móðir þeirra Pálína Bjömsdóttir sem þá var gömul kona. Faðir þeirra var lifandi þá, Jónas Jónsson, hann var húsa- smiður og vann mikið utan heimils, því bömin tóku snemma við hér. Svo var önnur systir, Margrét Jónasdóttir og hennar maður Guðvarður Guð- mundsson. Áttu þau þijár dætur og var sú yngsta líklega sjö árum eldri en ég. Eg man að fyrsta morguninn sem ég kom héma út, það hefur líklega verið í júní eða svo, að þá vom níu heimagangar héma á hlaðinu. Ég hef nú hugsað um það síðan, að ég vildi ekki standa í því að hafa níu heima- ganga. Nám og íþróttadella Ég gekk í bamaskólann hér, sem þá var á Frostastöðum. Þá var kennarinn Rögnvaldur Jóns- son frá Flugumýrarhvammi. Svo lá leiðin í Hólaskóla þegar ég var 18 ára gamall, þó ég hefði eginlega lítinn áhuga fyrir því, ef ég segi þér alveg eins og er. Áhuginn á þessum árum beindist meira að íþróttum en búskap. Þegar ég var 14 ára komst ég í íþróttablað sem þá var gefið út af þeim Jóhanni Bemhard og Brynjólfi Ingólfs- syni, sem vom miklir íþróttaá- hugamenn. Þegar ég komst í þetta blað fylltist ég miklum áhuga, enda vom þá í vændum Olympíuleikamir í London sumarið eftir, 1948. Þetta sum- ar og lengi þama á eftir mundi ég þrjá efstu menn í hverri grein frjálsra íþrótta, en núna man ég lítið af seinni tíma mönnum, þó ég fylgist talvert með íþróttum. Voru þið þá talsvert í íþróttum héma í sveitinni? „Nei það var ekki mikið. Ungmennafélagið Glóðarfeykir var þó starfandi en engin að- staða til íþróttaiðkunar. Við gerðum okkur þó smáaðstöðu á Miðgmnd, útbjuggum okkur m.a. langstökksgryfju. Félagið átti kúlu og kringlu og sjálfur eignaðist ég spjót. Það kom kennari til okkar í stuttan tíma, Kristján Jóhannsson úr Svarfað- ardal, þekktur hlaupari sem sló flest metin hans Jóns Kaldals og mörg þeirra stóðu ansi lengi. Hann var að leiðbeina hjá ung- mennasambandinu og kom til okkar í nokkur skipti. Við vor- um náttúrlega bíllausir strákar á þessum tíma en reyndum þó að komast. Það vom margir ungir menn hér á bæjum og fóm seinna í burtu en nú gerist. Talsverður í- þróttaáhugi var um tíma en svo koðnaði þetta niður. Annars var ekki mikill áhugi hér á heimil- um fyrir íþróttum og það þótti ekkert snyðugt að vera t.d. að djöflast í fótbolta í tvo tíma og vera þá kannski að drepast úr strengjum næsta dag. Og það var algjör forgangssök að meiða sig í þessu ati og því reyndi maður gjaman að leyna því ef einhver skakkaföll urðu og maður heltist. Atvinnumaður í tuski Þeir bræður hér Bjöm og Sigurður vom ekki mikið fyrir íþróttir, en voru heljarsterkir báðir, sérstaklega Bjöm. Her- mann bróðir þeirra var mikill á- hugamaður um glímu, sem hann lærði eftir að hann fór héð- an. Hann hafði ekkert að gera í bræður sína meðan hann var héma heima, en var ákaflega áflogagjam og setti sig ógjaman úr færi ef fólk kom í heimsókn, hvort sem það vom fullomir eða unglingar, að tuskast svolítið við gestina. Hann mátti þó eiga að þó hann lenti undir, þá var hann ekki að erfa það, heldur reyndi að finna út einhver ráð hvemig hann gæti snúið á andstæðing- inn næst. Það var hérna bær upp með fjallinu sem Axlarhagi hét. Bóndinn þar var Eiríkur Magn- ússon og hjá honum ungur mað- ur sem Karl hét, harðvítur strák- ur og sterkur, en ekki áfloga- gjam. Hann kom hingað í heim- sókn og þeir Hermann tuskuð- ust lengi dags. Eiríkur sagðist hafa séð til stráksa þegar hann staulaðist heim um kvöldið og þurfti þá að hvfla sig ansi oft með því að tylla sér á þúfu. Hann var sagður liggja í rúminu daginn eftir, og þegar Hermann spurði þau tíðindi, sagðist hann telja sig sigurvegara í viðureign- inni, því hann hafi þó verið á fótum þennan dag. Hermann kom hingað stund- um í heimsókn, og þá kom fyrir að þurfti að ná í hann á hestum vestur í Miðfjörð, það var ekki um annað að ræða. Hann var ákaflega skemmtilegur gestur, en talaði ekkert um pólitík, held- ur sagði sögur af minnisstæðu fólki hér, körlum og kerlingum. Ég heyrði skemmtilega sögu af samskiptum þeirra bræðra eftir að Hermann varð lögreglu- stjóri í Reykjavík. Hann kom þá hingað í heimsókn og þeir voru að spyrja hann um starfið. Hann sagði að það kæmi oft fyrir að það þyrfti að senda menn í hús út í bæ til að skakka leikinn, koma mönnum út og þetta nokkuð. Bjöm fór nú eitthvað að efast um að það þýddi alltaf að senda menn eina, það væri ekki alltaf að vita hver væri í húsinu, hvort það réði við þetta einn maður. Hermann sagði að menn yrðu samt gjaman að glíma við þetta einir. Jæja, þetta var í gamla bæn- um, þrjú lítil herbergi hvort við endann á öðru og gangur við hliðina. Það endaði með því að Bjöm var svo ákveðinn í mein- ingu sinni að þeir prófuðu þetta í bænum, hvor færi með hvom. Þeir tókust á gríðarlega, harðvít- ugir báðir, Hermann hundvanur, atvinnumaður í tuski, en ekki Björn. Hemianni gekk vel til að byrja með, kom honum miðja vegu fram ganginn, en þar snérist taflið við og Bjöm fór inn með hann aftur. Og hafði rétt fyrir sér að það þýddi ekki að senda hvem sem væri. Einhverju sinni þegar þurfti að taka í spotta hér, þá ætlaði ég að hjálpa til, en lenti óvart með finguma inni í hendinni á Bimi. Ég kenndi ógurlegan sársauka þegar Björn læsti hendinni, það var hreint ekki gott”, segir Érí- mann og hlær þegar hann rifjar upp þessar skemmtilegu minn- ingar af þeim Syðri-Brekkna- bræðrum. Vinkonurnar En hvað með búskapinn í dag, býrðu aðallega með fé? „Já ég bý með fé og hross, hef alltaf haft mikinn áhuga fyr- ir hrossum. Ég held ég hafi ekki lifað hamingjusamari dag en fermingardaginn minn. Fóstra mín gaf mér þá þriggja vetra meri og fóstri minn tveggja vetra fola, sem var minn draumahestur og mig langaði óskaplega í. Fólkið héma á bæn- um gaf mér svo 500 krónur sem dugðu fyrir hnakki og beisli, þannig að mér fannst ég vera orðinn þónokkuð ríkur. Ég hef alltaf selt talsvert af hrossum og útlendingar t.d. komið og skoðað hrossin hjá mér. Það er svo skemmtilegt að hingað hafa komið í heimsókn ungar stúlkur af Norðurlöndun- um og frá Austurríki. Þær hafa haldið sambandi við mig sumar og koma gjaman í heimsókn og stundum tölum við saman í síma. Þær em í miklu uppáhaldi hjá mér norsk stúlka, sænsk og austurrísk. Mér finnst merkilegt að stelpur á þessum aldri, um og innan við tvítugt vilji blanda geði við svona karl eins og mig sem er á aldur við afa þeirra. Ég hef ákaflega gaman af samskipt- um við ungt fólk. Það er dálítið bil á milli okkar og unga fólks- ins. Það hugsaröðru vísi og get- ur ýmislegt sem við getum ekki. Ég segi það ekki að ég hefði kannski ennfrekar viljað þekkja þessar ungu stúlkur þegar mað- ur var yngri”, segir Érímann og það kemur blik í augun. „Draumamir komnir í gegn hjá manni, eða gengu ekki upp, þegar maður var ungur. Svo hafa líka verið hér í sveit ungir menn sem halda tryggð við mig ennþá og koma í heimsókn þeg- ar tækifæri gefst. Svo fer maður auðvitað á bæi að hitta fólk og notar sím- ann. Annars var í mínu ung- dæmi þegar maður fór á bæi, sendur einhverra erinda, að við- kvæðið var: „Þú átt ekki að vera að tefja fyrir fólki, komdu fljótt afitur.” Svei mér þá ef þetta situr ekki í manni ennþá þessi upp- eldisáhrif. Það þótti ekki snyðugt að fara á bæi að leika sér eða skrafa við fólk”, sagði Frímann að endingu. Útsala Útsala Útsalan hefst flmmtudaginn 13. ianúar 20 -70% afsláttur Nýtt kortatímabil SkAáftritMÉabáð

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.