Feykir


Feykir - 12.01.2000, Page 8

Feykir - 12.01.2000, Page 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra 12. janúar 2000, 2. tölublað, 20. árgangur. Sterkur auglýsingamiðill KJQRBOK Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga - með hœstu ávöxtun í áratug! Landsbanki íslands í forystu tíl framtíðar Útibuið á Sauðárkróki - S: 453 5353 . Álftagerðisbræður hafa verið að gera það gott að undaníömu eins og jafnan. Þótt geisladiskur þeirra væri með seinni skipunum fyrir jólin, varð hann samt einn af þeim þremur söluhæstu og á eflaust erfir að fá mun meiri sölu. Myndin er frá því bræðumir sungu við opnun nýrrar endurhæfmgarstöðvar við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki um daginn. Bjarni og Skapti í stjóm Hestamiðstöðvar íslands Hjálmar fiindar með Rannsóknarráðinu Á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar í gær voru kosnir tveir fulltrúar Sveitar- félagsins Skagafjarðar í stjórn Hestamiðstöðvar ís- lands. Þeir em Bjami Egils- son á Hvalnesi og Skapti Steinbjömsson á Hafsteins- stöðum, sem hefur snúið heim að nýju eftir skamma dvöl í Bandaríkjunum. Þriðji mað- ur í stjóm verður frá ráðu- neytunum sem málinu tengj- ast og er reiknað með að það verði Sveinbjöm Eyjólfsson aðstoðarmaður landbúnaðar- ráherra. Sem kunnugt er var skrifað undir samkomulag rflcis og sveitarfélagsins fyrir áramótin. Það gerir ráð fyrir 30 milljónum frá rflcinu, 15 frá sveitarfélaginu og reiknað er með a.m.k. fimm milljónum frá einkaaðilum til rekstursins á næstu fimm árum. Gfsli Gunnarsson forseti sveitarstjómar Skagafjarðar segir að nú þegar stjóm hafl ver- ið skipuð geti þetta farið af stað á fullum krafti. Fyrsta verkefnið sé að auglýsa eftir fram- kvæmdastjóra hestamiðstöðvar- innar og verði það væntanlega gert alveg á næstunni. Reiknað er með að tveir aðrir starfsmenn verði ráðnir en væntanlega munu menn bíða og sjá til og framkvæmdastjóri hafa þar hönd í bagga þegar þar að kem- ur. Varamenn þeirra Bjama og Gísla frá sveitarstjóm Skaga- fjarðar em þeir Bjami Marons- son og Guðmundur Sveinsson. Hjálmar Jónsson fyrsti þing- maður kjördæmisins, formaður landbúnaðamefndar og fjárlaga- nefndarmaður, segir að engir peningar séu eymamerktir á fjár- lögum til uppbyggingar rann- sóknarmiðstöðvar atvinnugreina á Keldnaholti, sem meingar vom í þinginu skömmu fyrir jólin að embættismannakerfið væri að hrinda af stað. Það var einmitt mágur Hjálmars, Jón Bjamason, sem óskaði eftir þessari umræðu. ,Þess sést enginn staður í fjárlög- um og rangt að menn hafi verið að smygla því þar bakdyramegin inn. Á fjárlögum verður heldur ekki greint að landsbyggðin fari varhluta af framlögum til rann- sóknar- og kennslustarfa. Til dæmis hafi framlög aukist nokk- uð til verkefna á Hólum, Hvann- eyri og Reykjum í Ölfusi. Aukn- ingin til Hóla nemur á annan tug milljóna, til Bændaskólans Hól- um og starfseminnar á staðnum.” Hjálmar segir alveg ljóst að það séu þingmenn sem ráði ferð- inni í málum sem þessum og embættismannakerfið muni ekki taka völdin. „Engu að síður hef ég ákveðið að óska eftir fundi með formanni og framkvæmda- stjóra Rannsóknarráðs ríkisins til að ræða ýmiss mál er tengjast landbúnaðamefndinni”, segir Hjálmar Jónsson. I fyrrgreindri umræðu í Al- þingi fyrir jólin var vikið að því að áfonnin um uppbyggingu rannsóknarmiðstöðvarinnar væri stórfelld, á þriggja hektara svæði á Keldnahoiti, þar sem safna ætti saman ölium rannsóknarstofnun- um á landinu, einnig þeim sem staðsettar væm út á landsbyggð- inni, svo sem Landgræðslunni og Skógrækt ríksins. Væntan- lega mun Hjálmar spyrja for- svarsmenn Rannsóknarráðs rík- isins út í þessi áform, en spjótin beindust að þeim þegar umræð- an var í þinginu fyrir jólin. Óhöpp í hálkunni Bíll fór út af vegi í hálku og dimmviðri í Giljareitum á Öxna- dalsheiði á sunnudagskvöldið. Fólk slapp án teljandi meiðsla í bflnum en hann er talsvert skemmdur. Þá varð kona fyrir því óhappi að renna illa til við félagsheimlilið Ljósheima í há- deginu á mánudag, í hálku og hvassviðri. Konan reyndist ökklabrotin og var hún flutt til aðgerðar á bæklunardeild Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Auðunnarstofa vígð á næsta ári Hólanefnd fer til Noregs seinna í þess- ari viku til að taka við þjóðargjöf Norð- manna vegna byggingar Auðunnarstofú á Hólum, en Norðmenn ætla að gefa til- hoggin við í húsið. Búið er að höggva við- inn og koma honum í þurrkun og áætl- að er að hann verði tilbúinn til afhend- ingar með haustinu. Áætlað er að Auðunnarstofa verði tekin í notkun snemmsumars 2001, en í bygg- ingunni verða auk minjasafns fyrir kirkju- lega muni; svo sem Hólaprentið, biskups- stofa og aðstaða sem nýst gæti til fræði- mennsku. Af hálfu Hólanefndar fara í förina til Noregs: Bolli Gústavsson vígslubiskup, Jón Bjamason og Hjálmar Jónsson, auk Ríkharðs Kristjánssonar verkfræðings. Áætlað er að bygging Auðunnarstofu muni kosta um 25 milljónir króna, að frá- dreginni gjöf Norðmanna, sem einnig er hugsað sem framlag frænda okkar til auk- innar verkþekkingar á íslandi, en þeir munu kenna iðnaðarmönnum okkar vinnu- brögðin við samsetningu hússins. Á fjár- lögum þessa árs em 12 milljónir til verk- efnisins og sama upphæð var einnig á fjár- lögum síðasta árs, þannig að fjárveitingar- valdið hefur uppfyllt þær óskir sern að því var beint vegna þessara framkvæmda. X

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.