Feykir - 12.01.2000, Síða 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
12. janúar 2000, 2. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJQRBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
íslands
í forystu tíl framtíðar
Útibuið á Sauðárkróki - S: 453 5353 .
Álftagerðisbræður hafa verið að gera það gott að undaníömu eins og jafnan. Þótt geisladiskur
þeirra væri með seinni skipunum fyrir jólin, varð hann samt einn af þeim þremur söluhæstu
og á eflaust erfir að fá mun meiri sölu. Myndin er frá því bræðumir sungu við opnun nýrrar
endurhæfmgarstöðvar við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki um daginn.
Bjarni og Skapti í stjóm
Hestamiðstöðvar íslands
Hjálmar fiindar með
Rannsóknarráðinu
Á fundi sveitarstjórnar
Skagafjarðar í gær voru
kosnir tveir fulltrúar Sveitar-
félagsins Skagafjarðar í
stjórn Hestamiðstöðvar ís-
lands. Þeir em Bjami Egils-
son á Hvalnesi og Skapti
Steinbjömsson á Hafsteins-
stöðum, sem hefur snúið heim
að nýju eftir skamma dvöl í
Bandaríkjunum. Þriðji mað-
ur í stjóm verður frá ráðu-
neytunum sem málinu tengj-
ast og er reiknað með að það
verði Sveinbjöm Eyjólfsson
aðstoðarmaður landbúnaðar-
ráherra.
Sem kunnugt er var skrifað
undir samkomulag rflcis og
sveitarfélagsins fyrir áramótin.
Það gerir ráð fyrir 30 milljónum
frá rflcinu, 15 frá sveitarfélaginu
og reiknað er með a.m.k. fimm
milljónum frá einkaaðilum til
rekstursins á næstu fimm árum.
Gfsli Gunnarsson forseti
sveitarstjómar Skagafjarðar
segir að nú þegar stjóm hafl ver-
ið skipuð geti þetta farið af stað
á fullum krafti. Fyrsta verkefnið
sé að auglýsa eftir fram-
kvæmdastjóra hestamiðstöðvar-
innar og verði það væntanlega
gert alveg á næstunni. Reiknað
er með að tveir aðrir starfsmenn
verði ráðnir en væntanlega
munu menn bíða og sjá til og
framkvæmdastjóri hafa þar
hönd í bagga þegar þar að kem-
ur. Varamenn þeirra Bjama og
Gísla frá sveitarstjóm Skaga-
fjarðar em þeir Bjami Marons-
son og Guðmundur Sveinsson.
Hjálmar Jónsson fyrsti þing-
maður kjördæmisins, formaður
landbúnaðamefndar og fjárlaga-
nefndarmaður, segir að engir
peningar séu eymamerktir á fjár-
lögum til uppbyggingar rann-
sóknarmiðstöðvar atvinnugreina
á Keldnaholti, sem meingar vom
í þinginu skömmu fyrir jólin að
embættismannakerfið væri að
hrinda af stað. Það var einmitt
mágur Hjálmars, Jón Bjamason,
sem óskaði eftir þessari umræðu.
,Þess sést enginn staður í fjárlög-
um og rangt að menn hafi verið
að smygla því þar bakdyramegin
inn. Á fjárlögum verður heldur
ekki greint að landsbyggðin fari
varhluta af framlögum til rann-
sóknar- og kennslustarfa. Til
dæmis hafi framlög aukist nokk-
uð til verkefna á Hólum, Hvann-
eyri og Reykjum í Ölfusi. Aukn-
ingin til Hóla nemur á annan tug
milljóna, til Bændaskólans Hól-
um og starfseminnar á staðnum.”
Hjálmar segir alveg ljóst að
það séu þingmenn sem ráði ferð-
inni í málum sem þessum og
embættismannakerfið muni ekki
taka völdin. „Engu að síður hef
ég ákveðið að óska eftir fundi
með formanni og framkvæmda-
stjóra Rannsóknarráðs ríkisins til
að ræða ýmiss mál er tengjast
landbúnaðamefndinni”, segir
Hjálmar Jónsson.
I fyrrgreindri umræðu í Al-
þingi fyrir jólin var vikið að því
að áfonnin um uppbyggingu
rannsóknarmiðstöðvarinnar væri
stórfelld, á þriggja hektara svæði
á Keldnahoiti, þar sem safna ætti
saman ölium rannsóknarstofnun-
um á landinu, einnig þeim sem
staðsettar væm út á landsbyggð-
inni, svo sem Landgræðslunni
og Skógrækt ríksins. Væntan-
lega mun Hjálmar spyrja for-
svarsmenn Rannsóknarráðs rík-
isins út í þessi áform, en spjótin
beindust að þeim þegar umræð-
an var í þinginu fyrir jólin.
Óhöpp í
hálkunni
Bíll fór út af vegi í hálku og
dimmviðri í Giljareitum á Öxna-
dalsheiði á sunnudagskvöldið.
Fólk slapp án teljandi meiðsla í
bflnum en hann er talsvert
skemmdur. Þá varð kona fyrir
því óhappi að renna illa til við
félagsheimlilið Ljósheima í há-
deginu á mánudag, í hálku og
hvassviðri. Konan reyndist
ökklabrotin og var hún flutt til
aðgerðar á bæklunardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Auðunnarstofa vígð á næsta ári
Hólanefnd fer til Noregs seinna í þess-
ari viku til að taka við þjóðargjöf Norð-
manna vegna byggingar Auðunnarstofú
á Hólum, en Norðmenn ætla að gefa til-
hoggin við í húsið. Búið er að höggva við-
inn og koma honum í þurrkun og áætl-
að er að hann verði tilbúinn til afhend-
ingar með haustinu.
Áætlað er að Auðunnarstofa verði tekin
í notkun snemmsumars 2001, en í bygg-
ingunni verða auk minjasafns fyrir kirkju-
lega muni; svo sem Hólaprentið, biskups-
stofa og aðstaða sem nýst gæti til fræði-
mennsku.
Af hálfu Hólanefndar fara í förina til
Noregs: Bolli Gústavsson vígslubiskup,
Jón Bjamason og Hjálmar Jónsson, auk
Ríkharðs Kristjánssonar verkfræðings.
Áætlað er að bygging Auðunnarstofu
muni kosta um 25 milljónir króna, að frá-
dreginni gjöf Norðmanna, sem einnig er
hugsað sem framlag frænda okkar til auk-
innar verkþekkingar á íslandi, en þeir
munu kenna iðnaðarmönnum okkar vinnu-
brögðin við samsetningu hússins. Á fjár-
lögum þessa árs em 12 milljónir til verk-
efnisins og sama upphæð var einnig á fjár-
lögum síðasta árs, þannig að fjárveitingar-
valdið hefur uppfyllt þær óskir sern að því
var beint vegna þessara framkvæmda.
X