Feykir


Feykir - 19.01.2000, Page 1

Feykir - 19.01.2000, Page 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Fyrírtækið Marstál á Skagaströnd Góður árangur í þróun búnaðar fyrir rækjuvinnslur Á Skagaströnd er rekið fyr- irtækið Marstál í eigu bræðranna Vilhelms og Jóhanns Þórarins- sona. Þeir hafa á síðastliðnu ári náð góðum árangri í þróun og framleiðslu á svokölluðum rækjuskelsblásumm. Þessir blás- arar em tæki í vinnslulínu í rækjuverksmiðjum og koma þar næst á eftir pillunarvélum og svokölluðum vöðlara. Hlutverk blásarans er að fjarlægja lausa skel sem fylgir rækjunni eftir pillun og blása henni og öðmm aðskotahlutum burtu. í gegnum blásarann er færiband sent flytur rækjuna áfram í vinnslulínunni. „Þetta hófst með því að við tókum upp gamlan blásara héma í rækjuverksmiðjunni og endurbættum og settum í hann færiband. Úr þessu varð öflugt verkfæri sem við ákváðum að þróa frekar og gera tilraun til að smíða. Grunnhönnun á blásur- unum er þannig að þeir eru teiknaðir í tölvu þar sem einstak- ir hlutir þeirra em síðan sýndir í stærð og lögun. Þessa hönnun sendum við í tölvupósti til fyrir- tækis í Reykjavík sem sníður efnið með leisitækni. Við fáum því allar plötumar tilsniðnar, en annað efni verðum við að vinna frá gmnni. Það er ekkert vanda- mál að framleiða tækin eftir að þau hafa verið fullhönnuð, helsta vandamálið er að það er vöntun á góðum suðumönnum á svæðinu”, segir Vilhelm. „Allar stýringar á færibönd- um og blásaramóturum em í gegnum iðntölvur sem Víðir Olafsson rafvirki héma á staðn- um sér urn uppsetningu á. Við höfum selt sex svona blásara innanlands og nú þegar em fam- ir fjórir til Kanada. Við emm með pantanir á 5-6 blásurum sem em í framleiðslu. Við fram- leiðum blásarana í þremur stærðum, 850, 1250 og 1600 kílóa, sem táknar það að 850 blásarinn afkastar 850 kg/klst. af pillaðri rækju. Það var orðin mikil þörf fyrir svona tæki sem réði við afkastaaukninguna sem varð í rækjuverksmiðjum. Við höfum m.a. selt blásara í SalO'er í Keflavík, Strýtu á Akureyri og í verksmiðju Þormóðs ramma. Þessir blásarar hafa komið vel út og við höfum aðlagað hönnun þeirra að uppsetningu í hverri verksmiðju. Við höfum einnig tekið að okkur að endursmíða eldri rækjuskelsblásara. Við setj- um færibönd í þá í stað hristi- búnaðar og aðlögum þá nýjum þörfum”, segir Vilhelm Þórar- insson. Páll fær nýjan aðstoðarmann Það er alltaf bagalegt þegar holræsakerfið gefur sig og ekki síst í misjöfnum veðrum að vetrinum. Starfsmenn Höfða- hrepps á Skagaströnd þurftu að brjóta upp malbikið á Strandgötunni til að laga skólplögn sem fallið hafði saman við húsið Lækjarbakka. Myndin var tekin sl. föstudag og það er Karl Guðmundsson sem er ofan í skurðinum, Guðmundur Bjömsson í gröfunni og Magnús Ólafsson verkstjóri á skurðbakkanum. Útsala á Hvammstanga í vor Aðstoðarmannaskipti hafa orðið hjá Páli Péturssyni félags- málaráðherra. Nýi aðstoðar- maðurinn, sem hóf störf í ráðu- neytinu í byrjun vikunnar, er Birkir Jón Jónsson 20 ára stúd- ent frá Siglufirði og nemi í stjómmálafræði við Háskóla Is- lands. Gunnar Bragi Sveinsson frá Sauðárkróki sem starfaði við hlið Páls fram að síðustu áramótum, hefur horfið til ann- arra starfa. „Ég lauk mínum prófum fyrir áramótin og svo bauðst þetta starf skyndilega, þannig að ég lagði námið til hliðar í bili, enda sýnist mér að mörg spennandi verkefni bíði og þetta starf verði mér betri skóli en margt annað", segir Birkir. Gunnar Bragi réð sig til starfa hjá íslensku auglýsinga- stofunni og mun þar t.d. vinna að kynningarstarfi fýrirToyota. Sem kunnugt er var nokkur óvissa með áffamhald ráðherra- tíðar Páls Péturssonar allt þar til Finnur Ingólfsson fór í Seðla- bankann og var það ein helsta ástæðan fyrir því að Gunnar Bragi söðlaði um. Hvammstangabúar sam- þykktu í kosningum fyrir nokkm að óska eftir því að sett yrði upp áfengisútsala á staðn- um. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur nú auglýst eftir leiguhúsnæði á Hvammstanga og er áætlað að verslunin verði opnuð 7. júní nk. ÁTVR ætlar einnig að opna nýjar útsölur í Búðardal og á Hvolsvelli á þessu ári. Forsvarsmenn ÁTVR telja æskilega stærð húsæðis á Hvammstanga um 20 fermetra og unnt sé að loka því frá annarri starfsemi. Leitað er eftir rými samtengdu húsnæði, sem í er atvinnurekstur er getur átt samleið með rekstri vínbúðar, hvað snertir hreinlæti og um- hverfi. Húsnæðið verður að hljóta samþykki byggingarfulltrúa, vinnueftirlits, bmnaeftirlits og heilbrigðiseftirlits. Santþykkis lögreglu á staðsetningu verslun- arinnar verður óskað og leyfis sveitarstjómar til að reka versl- unina, en gögn er lýsa nánar óskum ÁTVR liggja frammi á skrifstofu Húnaþings vestra. AETTbílaverkstæði Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 JkJ.JM.MJM. sími .453 5141 •ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Rettingar Sprautun

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.