Feykir - 19.01.2000, Qupperneq 3
3/2000 FEYKIR 3
„Verður eldd skýrt á annan hátt en
yfimáttúrulegir hlutir hafi gerst“
segir Hallböm sem fékk hvatningarverðlaun Invest
Stjórn Iðnþróunarfélags
Norðurlands vestra ákvað á
fundi sínum rétt fyrir jól að
veita einu fyrirtæki sem
skarað hefði frarn úr í lands-
hlutanum, svokölluð hvatn-
ingarverðlaun. Það var Kán-
tríbær og Hallbjöm Hjartar-
son sem hlutu þessa viður-
kenningu og afhenti Guð-
mundur Skarphéðinsson for-
maður Invest viðurkenning-
una við athöfn í Kántríbæ sl.
fostudag.
Guðmundur sagði í ávaipi
sínu að Hallbjöm hefði með
rekstri sínum á Skagaströnd
sýnt kjark og áræði sem vakið
hefði athygli allra landsmanna.
„Lagði hann upp með viðskipa-
hugmynd sem á sér enga hlið-
stæðu í íslensku samfélagi og
hefur mikla menningarlega sér-
stöðu. Uppbygging Kántrýbæj-
ar hefur tekist vel, aðsókn hefur
verið mikil sl. tvö ár og útvarps-
rekstur er í frekari þróun. Kán-
tríhátíðin er orðin ein aðal úti-
hátíð landsins. Á nýliðnu sumri
er áætlað að á sjöunda þúsund
manns hafi sótt hátíðina. I októ-
ber sl. tók Kántríbær við rekstri
Hótels Dagsbrúnar. Hallbjöm,
ásamt fjölskyldu sinni, hefur
með framkvæmdum sínum
komið Skagaströnd á blað sem
ferðamannastað, jafnframt því
að styrkja stöðu svæðisins í
heild er varðar ferðaþjónustu”,
sagði Guðmundur Skarphéð-
insson.
Verðlaunagripurinn sem
Hallbjöm fékk afhentan er
gerður af listakonunni Brynju
Baldursdóttur á Siglufirði.
Listaverkið heitir „Jámbókin”
og er myndræn túlkun á hinu
foma rúnaletri. Guðmdur gat
þess að Hallbjöm væri annar
„kongurinn” sem fengi þetta
listaverk, en Vigdís Finnboga-
dóttirfærði Haraldi Noregskon-
ungi það að gjöf í einni heim-
sókn sinni til Noregs.
Hallbjöm þakkaði þann
heiður sem sér, Kántríbæ og
fjölskyldu sinni væri sýndur
með þessari viðurkenningu, og
gat þess að hann einn ætti langt
í frá heiðurinn af því hvernig
Kántríbær heíði dafnað undan-
farið. Þar ætti dóttir hans og
tengdasonur drýgstan hlut.
Ekki verður annað sagt en
mikil og góð umskipti hati orð-
ið hjá Kántríbæ og Hallbirni á
rúmum tveimur ámm, eða frá
því að Kántríbær brann svo að
segja til kaldra kola í byrjun
vetrar 1997. Þá lýsti Hallbjöm
því þannig að það hefði verið
eins og að horfa á bamið sitt
brenna inni í eldinum, en hvað
segir Hallbjöm nú þegar
kannski mestu erfiðleikamir em
að baki?
,,Ég get ekki svarað því öðm
vísi en svo, að hér hafi gerst
ótrúlegir hlutir. Mér finnst að
það sem þetta er orðið í dag, sé
ekki hægt að skýra á annan hátt
en yfimáttúrulegir hlutir hafi
gerst. Á þeirri stundu sem þú
lýstir, hefði ég aldrei trúað á að
ég ætti eftir að upplifa þá daga
sem liðnir eru síðan og að hlut-
imir hafi þróast á jafnöran og
jákvæðan hátt.”
Sýnist þér að Kántrfbær sé
búinn að öðlast traustan sess?
„Já ég tel að hann sé búinn
að öðlast mjög fastan sess hjá
landanum. Eg lít bara bjöHum
augum á framtíðina og þessi
viðurkenning styrkir mig í
þeirri trú að ég sé á réttri braut”,
sagði Hallbjöm að endingu.
Hallbjörn á spjalli í hljóðstofu Kántríútvarpsins við stjómar-
menn í Invest, þau Elínborgu Hilmarsdóttur á Hrauni og
Olaf Oskarsson í Víðidalstungu.
Ljósmynda- og sögu-
sýning hjá sýslumanni
Ljósmynda- og sögusýning
SFR verður sett upp í húsnæði
Sýslumanns, Suðurgötu 1, Sauð-
árkróki, og mun hún standa þar
ffá 24. janúar til 3. febrúar.
Starfsmannafélag ríkisstofn-
ana varð 60 ára í nóvember á síð-
asta ári. í tilefni þess hefur félag-
ið sett saman Ljósmynda- og
sögusýningu SFR í samvinnu
við Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Sýningin er farandsýning og vill
félagið á þann hátt láta sérstakan
viðburð tengdan afmælisárinu
ferðast um allt land, þ.e. að af-
mælisdagskrá komi til félags-
manna.
í byrjun síðasta árs var strax
farið að vinna að hugmyndinni.
Leitað var eftir samstarfi við
Ljósmyndasafn Reykjavíkur til
að koma verkinu í framkvæmd.
Nokkur tími fór í að útfæra hug-
myndir að útliti og innihaldi sýn-
ingarinnar. Efni, og þá einkum
ljósmyndir, voru af skomum
skammti og fyrirsjánlegt að mik-
il vinna færi í að hafa upp á því.
Svo heppilega vildi til að Þoríeif-
ur Óskarsson sagnfræðingur er
að skrifa sögu félagsins og hefur
hann gegnt lykilhlutverki í efnis-
öflun vegna sýningarinnar.
Lánatryggingasjóður kvenna
auglýsir et’tir umsóknum
Meginmarkmið Lánatryggingasjóðs kvenna er að styðja konur til
nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á allt að helming
lána sem þær taka hjá lánastofnun til að fjármagna tiltekið verkefni.
Ábyrgðin er veitt á grundvelli mats á arðsemi viðskiptahugmyndarinnar.
Uthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári, febrúar og júlí.
Lánatryggingasjóður kvenna er tilraunaverkefni til þriggja ára. Að verkefhinu standa
félagsmálaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið og Reykjavíkurborg.
Vinnumálastofhun annast umsýslu sjóðsins.
Skilyrði fyrir ábyrgðarveitingu eru m.a. eftirfarandi:
• að verkefnið sé í eigu kvenna og stjómað af konum
• að ábyrgð sé verkefhatengd þ.e. ábyrgðir em veittar vegna ákveðinna
nýsköpunarverkefna, en ekki em veittar ábyrgðir vegna t.d. rekstrarlána
til starfandi fýrirtækja
• að verkefnið sé á byrjunarstigi
• að minnsta lán sé 1,0 m.kr. og minnsta lánatrygging 0,5 m.kr.
Ekki er um að ræða sérstök umsóknareyðublöð, en umsókn skulu fylgja:
• Framkvæmda- og fjárhagsáætlun fyrir verkefnið
• Ársreikningar og skattaskýrsla sl. tveggja ára
Nánari upplýsingar em veittar f Vinnumálastofhun og á skrifstofu Byggðastofnunar.
Umsóknarfrestur um lánatryggingu er til 25. febrúar 2000 og ber að skila
umsóknum til Vinnumálastofnunar, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu eða til
Byggðastofnunar í Reykjavík.
Lánatryggingasjóður kvenna
Byggðastofnun
Kristján Pór Guðfmnsson
Engjateigur 3
105 Reykjavík
Sími 560-5400
Bréfsími 560-5499
Netfang kristjan@bygg.is
Lánatryggingasjóður kvenna
Vinnumálastofnun
Margrét Kr. Gunnarsdóttir
Hafnarhúsið, Tryggvagötu
101 Reykjavík
Sími 511 2500
Bréfsími 511 2520
Netfang: margret.gunnarsdottir@vmst.stjr.is