Feykir


Feykir - 19.01.2000, Síða 8

Feykir - 19.01.2000, Síða 8
19. janúar 2000, 3. tölublað, 20. árgangur. Sterkur auglýsingamiðill KJORBOK Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga með hœstu ávöxtun í áratug! — xJfr Landsbanki jn íslands í forystu til framtíðar Utibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353 Hólahrossin í nýju innréttingunni ásamt Agli Þórarinssyni kennara og Vfldngi Gunnarssyni deildarstjóra við hrossaræktarbrautina, Halldóri Steinssyni frá KS á Eyri seni sá um útveg- un innréttinganna, Antoni Níelssyni kennara við Hrossaræktarbrautina, Skúla Skúlasyni skólameistara og Amýju Elvu Helgadóttur fjármálastjóra Hólaskóla. Mynd/ Valgeir Bj. Hólahrossin í nýjar innréttmgar Nemendahesthúsin á Hólum fengu heldur bet- þessara fyrirtækja og Hólaskóla. Nýju stíumar ur andlitslyftingu í byrjun ársins. Þar vom settar em sérstaklega öflugar og smekklegar auk þess upp stíur fyrir 32 hesta. Stíumar koma frá fyrir- sem uppsetning þeina tók aðeins nokkra daga. tækinu Fremtiden í Danmörku og em fluttar inn Hestamenn em velkomnir Heim að Hólum að af KS Eyri. Hönnun þeirra var unnin í samsarfi líta á herlegheitin, segir í tilkynningu frá Hólum. Heimir á heimssýninguna Karlakórinn Heintir verður meðal íslensks listafólks sem kemur fram á séstökum Is- landsdegi 30. ágúst nk. á Heimssýningunni í Hannover í Þýskalandi. Kórinn mun koma fram og syngja þrisvar sinnum þennan dag og er ennþá að minnsta kosti eini kórinn sem gengið hefur verið frá að syngi á þessum íslenska listadegi í Hannover. „Þetta er skemmti- legt tækifæri sem okkur gefst þama og mikil viðurkenning til kórsins”, segir Þorvaldur G. Oskarsson formaður Heimis. Að sögn Þorvaldar var á síð- asta sumri auglýst eftir þeim sem áhuga hefðu að taka þátt í þessari Islandsdagskrá á Heimssýningunni. „Okkur fannst rétt að láta vita af því að við hefðum áhuga, en maður reiknaði svo sem ekkert með því að við yrðum þama fyrir valinu. En þetta er mjög skemmtilegt og heldur okkur við efnið að gera vandaða og góða hluti”, sagði Þorvaldur. Sem kunnugt er héldu Heimis- menn velheppnaða Þráttaánda- skemmtun um næstsíðustu helgi og þar vom frumflutt íjög- ur ný lög á söngskránni og fleiri munu bætast við í vetur. Og þessi þátttaka í Hannover þýðir að kórinn verður að halda við æfingum næsta sumar. Það verður ekki annað sagt en Hemismenn séu að verða sigldir menn, en þeir hafa ferð- ast víða um heim og sungið og alltaf bætast fleiri staðir við. Kórinn fór síðast til Færeyja á liðnu vori. Menntamálaráðu- neytið veitir góðan styrk til Hannover-fararinnar, en Heim- ismenn þurfa einnig að leggja þar talsvert á móti. Að sögn Guðnýjar Helgadóttur hjá lista- og safnadeild menntamálaráðu- neytisins er ekki unnt á þessari stundu að skýra frá þátttöku annars listafólks í Islandsdegin- um, þar sem ekki hefur verið gengið frá samningum við ein- staka aðila. Fjarviiinslufyrírtæld stofiiað á Tanganum Nýlega var stofnað á Hvammstanga félagið Forsvar og mun samnefnt fyrirtæki á þess vegum starfrækja alhliða viðskiptaþjónustu. Annars veg- ar bókhalds- og endurskoðun- arþjónustu og hins vegar fjar- vinnslu, símaþjónustu og aðra skylda starfsemi. Stofnendur eru nokkrir einstaklingar á Hvammstanga auk Húnaþings vestra og Hagfélagsins Fram- kvæmdastjóri er Karl Sigur- geirsson og stjómarformaður Bjami Þór Einarsson. Félagið hefur keypt bók- haldsstofu sem Haukur Frið- riksson starfrækti og einnig mun það yfirtaka rekstur bók- haldsstofunnar Döggva. Að sögn Karls Sigurgeirssonar er meiningin að ráða innan skamms vel menntaðan bók- haldsmann, auk þess sem í sigt- inu em ýmiss verkefni er tengj- ast ijarvinnslu. „Við vonumst til að þessi starfsemi geti veitt nokkur stöif. Fólk af svæðinu hefur haft sam- band við okkur og það er greini- lega áhugi fyrir því að takast á við verkefni sem vonandi koma til með að auka ijölbreytnina á vinnumarkaðnum hér. Fólk hef- ur greinilega væntingar til þess- arar starfsemi og við höfúm ver- ið að kynna okkur gagnvart ná- grönnunum bæði í austursýsl- unni og á Ströndunum, enda höfum við fullan hug á að vinna með nágrönnum okkar”, segir Karl Sigurgeirsson. Karl sagði ekki meininguna að fara af stað með neinum gassagangi. „Við ætlum að hafa frumkvæði að öflun ijarvinnslu- verkefna og munu þau m.a. ráð- ast af því fólki sem fæst til starfa”, sagði Karl og aðspurður sagði hann menn ágætlega bjaitsýna þrátt fýrir fréttir um að seint gengi með verkefni fyrir ijarvinnslur víða um land. Þá verður Forsvar með formleg tengsl við KMPG End- urskoðun, sem er virt fyrirtæki á sviði endurskoðunar, áætlana- gerðar og lögfræðiþjónustu. Oni kjörínn í stjóm Byggðastofiiunar Orri Hlöðversson fram- kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfé- lagsins Hrings er einn stjómar- manna í nýrri stjóm Byggða- stofnunar sem Valgerður Sverris- dóttir iðnaðarráðherra skipaði í gær. Orri er eini Norðlendingur- inn í stjóminni, en í síðustu stjóm Byggðastofnunar vom meðal annarra Stefán Guðmundsson fyrrv. alþingismaður og Sigbjöm Gunnarsson fyrrv. alþm. og sveitarstjóri í Mývatnssveit. Það er Kristinn H. Gunnars- son alþingismaður Vestfjörðum sem er stjómarformaður. Auk hans og Orra em í stjóminni: Einar Kr. Guðfinsson alþingis- maður Vestfjörðum, Ambjörg Sveinsdóttir alþingismaður Aust- urlandi, Guðjón Guðmundsson alþingismaður Vesturlandi, séra Karl Matthíasson varaþingmaður Vestfjörðum og séra Gunnlaugur Stefánson fyrrv. alþingismaður Austurlandi. í varastjóm em m. a. Anna Kristín Gunnarsdóttir varaþingmaður Norðurlandi vestra, Orlygur Hnefill Jónsson varaþingmaður Norðurlandi eystra og Kristján Pálsson al- þingismaður Reykjanesi. GLH E>i il 1! E GA. BÓKABÚÐ N 1/ (V GID! BRYNcJABS

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.