Feykir


Feykir - 26.01.2000, Page 1

Feykir - 26.01.2000, Page 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Áburðarmálin hafa brunnið á bændum að undanfómu og snarpar umræður urðu á fundi sem fulltrúar Áburðarverksmiðjunnar héldu í Hótel Varmahlíð sl. fbstudag. Hér hefur Leifur Þórarinsson bóndi í Keldudal bmgðið sér í ræðustól og á orðastað við Harald J. Haraldsson og þá fulltrúa Áburðarverks- miðjunnar. Meira um áburðarmálin á síðu 2. í dag. Skert þjónusta í útsölum ÁTVR út um landið Fjölnet ehf hefur mikil framtíðarplön Vill leggja ljósleiðara net um Sauðárkrók Um næstu mánaðamót mun vöruteg- undum í flestum útsölum ÁTVR fækka stórlega í kjölfar breyttra reglna um innkaup og sölu áfengis og er þetta gert í skjóli hagræðingar hjá ÁTVR. Áfengistegundum mun t.d. fækka um helming í útsölu ÁTVR á Sauðárkóki og segist Stefán Guð- mundsson útsölustjóri vera ákaflega ósáttur með að útsölunni sé gert ó- kleift að veita sem mesta og besta þjónstu eins og lagt hefur verið kapp á. Utsölustjórar víða um land munu vera mjög óánægðir með bivytinguna. Með nýju reglunum eru það einungis verslanir ÁTVR í Heiðninu og Kringl- unni sem fá að selja allar tegundir áfeng- is í svokölluðum kjamaflokk. Aðrar út- sölur eru allar skertar, mismikið eftir flokkun þeirra. Þannig fá útibúin á höf- uðborgarsvæðinu og í mesta þéttbýlinu. s.s. á Akureyri, að selja 400 tegundur. Utibúin á Akranesi, Borgamesi, Egils- stöðum, Isafirði, Sauðárkróki og Vest- mannaeyjum fá að hámarki 280 söluteg- undir í kjama. Að hámarki 170 tegundir fást á Siglufirði, Blönduósi, Húsavík, Dalvík, Neskaupstað, Höfn og Grinda- vík. Hámark kjamavöru í öðrum vínbúð- um em 80 tegundir. Útsölustjórar óttast að þessi skerðing verði til þess að salan færist meir yfir til stóm útibúanna og t.d. muni ferðafólk beina viðskiptum sínum þangað í aukn- um mæli. Þá er vitað af óánægju sveitar- stjómarmanna sem finnst að með þess- ari aðgerð sé enn gengið á hlut lands- byggðarinnar hvað þjónustu varðar, þar sem hér sé um vömtegund að ræða sem fólk vilji hafa val um. og þessi aðgerð komi til með að hafa áhrif á kaup á annarri þjónustu. Félagið Fjölnet ehf. sem stofnað var í Skagafirði á liðnu ári, hefur á prjónunum að leggja ljósleiðaranet um Sauðárkrók og jafnvel út um héraðið. Netinu er ætlað að stórbæta og auka tölvusamband á svæðinu og auk þess flytja sjónvarpsmerki. Sem dæmi um aukna flutningsgetu með tílkomu þessa kerfis er áætlað að hraði í tölvusamskiptum verði fimmtánhundrauðfaldur á við venjulegt ISDN-samband. Þegar er farið að tengja fyrirtæki og stofnan- ir ljósleiðarasambandi. Sem komið er standa þrír aðilar að Fjölneti ehf. Það em Element, At- vinnuþróunarfélagið Hringur og Fjár- vaki, en áætlað er að fleiri aðilum verði gefinn kostur á þátttöku í félag- inu. Langtímamarkmið Fjölnets er að tengja saman öll fyrirtæki, stofnanir og heimili á Sauðárkróki og áætlað er miðjan í ljósleiðaranetinu verði í hús- næði Elements þaðan sem kerfið er rek- ið. Páll Kolbeinsson framkvæmda- stjóri Elements segir að ef vel takist til og þessi áform verði að veruleika, muni þau hafa heilmikla þýðingu fyr- ir byggðarlagið. Samtenging fyrir- tækja og stofnana skapi ýmsa mögu- leika, svo sem samnýtingu hugbúnað- ar og vélbúnaðar og sjáist þess þegar merki. íbúamir fái hagkvæmt, öflugt og stöðugt samband um víða veröld, tölvusamband, símasamband og að- gang að sjónvarpsmerkjum. Þetta skapi stóraukna möguleika fólks til aukinnar heimavinnu við tölvumar. Páll Kolbeinsson segir að Element sé með þátttöku sinni í Fjölneti, að taka þátt í samkeppninni. Markmiðið sé að koma upp tæknivæddu umhverfi sem gerir fyrirtækjum og fólki kleift að keppa á lands- og alþjóðamarkaði. —KTeH£ÍtJ chiDI— Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Flýta sér um of á blótin Geysileg umferð var um þjóðveg eitt um helgina og mikið að gera hjá lögreglunni á Blönduósi í eftirliti. Þeir vom margir ökumennimir sem gerðu sig seka um of hraðan akstur, 35 tals- ins, og að auki vom þrír teknir fyrir meinta ölvun við akstur. Að sögn lög- reglunnar virtist sem fólk væri einum of að flýta sér á þorrablótin og að ein- staka maður hafi byrjað gleðina of snemma. Þá hefur Blönduóslögreglan einnig þurft að ýta á eftir bifreiðaeigendum með að færa bfia sína til skoðunar. Þannig fengu 30 bílaeigendur sektar- miða um helgina fyrir að hafa dregið jDetta úr hömlu og það er dýrt, því þeir þuifa að greiða átta þúsund krónur til viðbótar skoðunargjaldinu. Hjá lögreglunni á Sauðárkróki var rólegt um helgina. Einn ökumaður var tekinn vegna meintrar ölvunar. En sömu sögu er að segja þar um seina- gang fólks að færa bifreiðir sínar til skoðunar. Þeir em um þrjátíu sem hafa fengið sektarmiða vegna þessa. ÆI bílaverkstæði simi: 453 5141 Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 # Bílaviðgerðir) Hjólbarðaviðgerðir Réttingar JfcSprautun

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.