Feykir - 02.02.2000, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MED RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
„Það verður veðjað
á Skagafjörð"
Fjárhagsáætlun Skagafjarðar afgreidd í gær
Sjálfsagt er umræðuefnið h já þeim feðgum Magnúsi Jónssyni veðurstofustjóra og Jóni Ing-
ólfssyni og frænda þeirra Sigurði Friðrikssyni á Bakkaflöt, eitthvað annað en ,,sprengi-
lægðimar“ sem Magnús hefur verið bendlaður við að undafömu. Myndina tók Pétur Ingi
Bjömsson í eitt hundrað ára afmæli ættmóðurinnar, Hólmfríðar Helgadóttur, á dögunum.
Byggingaráform til umræðu
í sveitarstjórn Skagafjarðar
Fjárhagsáætlun Sveitarfélags-
ins Skagafjarðar var afgreidd á
fundi sveitarstjómar í gær, en þá
fór fram önnur urnræða um fjár-
hagsáætlunina. Aætlunin gerir
ráð fyrir að til verklegra fram-
kvæmda verði varið um 200
milljónum, þar af fari um 100
milljónir í framkvæmdir við
skólabyggingar, aðallega Ar-
skóla á Sauðárkróki. Þá er gert
ráð fyrir að 45 milljónum verði
varið til gatnafi-amkvæmda. Fjár-
hagsstaða sveitarfélagsins var
nokkuð til umræðu á fundinunt í
gæren áætlunin gerir ráð fyrir af-
borgunum langtímalána upp á
129 milljónir og nýjar lántökur
verði 124 milljónir.
Gísli Gunnarsson forseti
sveitarstjómar sagði að vissulega
væri staða sveitarfélagins erfið
og rakti hana að stórum hluta til
sameiningarársins 1998, þegará-
ætlanir fóru úr böndum. Greip
Gísli í þessu sambandi til orða
Elísabetar Bretadrottningar, þeg-
ar mestu hremmingamar gengu
yfir bresku konungsfjölskylduna
og drottningin sagði, að þetta
hefði verið ár hinna miklu áfalla.
Gísli taldi þó að fjárhagsáætlun
síðasta árs hefði staðist í megin-
atriðum, en Snorri Styrkársson
lét að því leggja að þar hefði ver-
ið keyrt vemlega framúr.
Gísli sagði að þrátt fyrir erf-
iða stöðu mættu menn ekki falla
niður í eintóma svartsýni. Ýmis-
legt benti til að Skagafjörður
væri einn þeirra staða í landinu
sem stjómvöld mundu veðja á
sem lífvænlegan byggðakjama í
framtíðinni. Nefndi Gísli í því
sambandi hugmyndir um bygg-
ingu menningarhúsa á lands-
byggðinni, en þar hafði Sauðár-
krókur verið einn staðanna, og
einnig hefði reynst ákaflega gott
að leita til stjórnvalda varðandi
Hestamiðstöð íslands og ýmiss
önnur verkefni. Þessar viðtökur
sýndu að stjómvöld hefðu trú á
Skagafirði, sagði Gísli.
Herdís Á. Sæmundardóttir
formaður Byggðaráðs nefndi
margar framkvæmdir sem sveit-
arfélagið hefði lagt í til aukinnar
þjónustu fyrir íbúana. Vissulega
bæri að fara varlega í stöðunni,
en hins vegar væri nauðsynlegt
að skapa þau skilyrði í sveitarfé-
laginu að fólki þætti fýsilegt að
setjast að og búa í Skagafirði.
Minnihluti sveitarstjómar,
Ingibjörg Hafstað og Snorri Styr-
kársson fulltrúar Skagafjarðar-
listans, sátu hjá og lögðu fram
bókun, þar segir m.a.: „Niður-
staða áætlunar sveitarsjóðs fyrir
árið 2000 er halli af rekstri og
framkvæmdum upp á tæpar 157
miljónir króna. Afgangur af
rekstri er einungis áætlaður 31
milljón króna. Þrátt fýrir að ekk-
ert væri framkvæmt í stórverk-
efni sveitarsjóðs, þ.e. byggingu
Árskóla á Sauðárkróki, væri um
77 milljóna króna halli á rekstr-
ar- og framkvæmdaáætlun sveit-
arsjóðs.”
Fulltrúar Skagafjarðarlistans
segja að skuldir sveitarsjóðs
verði ekki greiddar niður á árinu
2000 samkvæmt þessari áætlun.
Til greiðslu vaxta, verðbóta og
afborgana skulda sé áætlað að
verja 217 milljónum á árinu.
„Þetta gengur ekki lengur",segja
þau Ingibjörg og Snorri og með-
al þess sem þau leggja til, er að
dregið verði úr framkvæmdum
og að selja eða losa eignir til að
greiða niður skuldir sveitarfé-
lagsins og ná þannig tökum á
hrikalegum skuldum þess og
mjög svo háum fjármagnskostn-
aði.
Á fundi sveitarstjómar Sveit-
arfélagsins Skagafjarðar í gær
vom nokkuð til umræðu bygg-
ingaráform sem á döflnni eru.
Þar voru samþykktir bygg-
ingarskilmálar fyrir íbúða-
svæði aldraðra á Sauðárhæð-
um og Byggingarfélaginu Bú-
mönnum úthlutað fimm bygg-
ingarlóðum. Þá var lögð fram
fyrirspum um lóðir fyrir 20
heilsárs orlofshús á svæði ofan
Varmahlíðar.
Skagafjarðardeild Búmanna
sótti um lóðir fyrir fjögur parhús
og eitt raðhús á byggingarsvæði
fyrir aldraða á Sauðárhæðum.
Samþykkt var að úthluta félag-
inu lóðum nr. I.. 3., 7., 9., og 11
austan við efri götuna á þessu
svæði.
Þá var kynnt bréf frá Innex
ehf, en þar mun vara í forsvari
athafnamaður af höfuðborgar-
svæðinu, Tryggvi Sveinbjöms-
son sem m.a. er að byggja upp
kjarna orlofshúsa á Hrísum í
Eyjafirði.
I erindinu er spurt um mögu-
Ieika þess að Innex fái svæði í
landi sveitarfélagsins fyrir ofan
Varmahlíð til þess að byggja 20
heilsárs orlofshús fyrir ferðafólk.
Samþykkt var að fela byggingar-
fulltrúa og sveitarstjóra að ræða
við fulltrúa Innex ehf. um málið.
Stefán Guðmundsson for-
maður skipulags- og tækni-
nefndar fagnaði þessum bygg-
ingaráformum og sagði að fleiri
aðilar hefðu sýnt áhuga að
byggja orlofshús í Skagafirði og
ljóst væri að þetta svæði yrði
mjög í skoðun á næstu misserum
sem vænlegt orlofsdvalarsvæði.
Gísli Gunnarsson forseti
sveitarstjómar sagði að nú væri
líklega að koma í ljós það sem
margirhefðu spáð sem ávinningi
Skagafjarðar við tilkomu Hval-
fjarðargangna, að héraðið fengi
aukið vægi sem orlofsdvalar-
staður, og fólk sýndi því áhuga
að eignast hér hús og lendur til
afþreyingar og tómstunda.
Nefndi Gísli svæðið við Varma-
hlíð og einnig skipulagt svæði í
landi Steinsstaða í Tungusveit
sem vænlegt orlofssvæði, en í
Steinsstaðalandi hefði einnig
komið til tals að planta svoköll-
uðum „Aldamótaskógi.”
—KTengtl! chjDI— Atrr!bílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ 1 1 sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6J40
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílaviðgerðir -0- Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Réttingar # Sprautun