Feykir - 16.02.2000, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Fiskiðian Skagfirðingur hf
Hagnaðurinn 345
milljónir í fyrra
Hagnaður Fiskiðjunnar
Skagfirðings á síðasta alman-
aksári var 345,8 milljónir fyrir
skatta, en að teknu tilliti til
skatta og óreglulegra tekna
344,8 milljónir., Jákvæð rekstr-
amiðurstaða byggir á góðu
starfsfólki FISK til sjós og
lands, ásamt því að ytri skilyrði
voru fyrirtækinu á margan hátt
hagstæð m.a. vegna hás afurða-
verðs og vel gekk að afla þeirra
veiðiheimilda í þorski sem FISK
hefur yfir að ráða", segir Jón E.
Friðriksson framkvæmdastjóri.
Vegna samstæðureiknings
við stærsta eiganda Fiskiðjunn-
ar Skagfirðings, Kaupfélags
Skagfirðinga, staðfesti stjóm
FISK á fundi sínum 10. febrúar
rekstramiðurstöðu almanaksár-
ins 1999, en rekstrarár FISK er
kvótaárið og fyrir það tímabil
var hagnaðurinn 185 milljónir.
Rekstur FISK gekk vel á síð-
asta ári. Rekstrartekur vom
2.422 milljónir, hækkuðu um
7,31 % milli ára, en rekstrargjöld
án afskrifta og fjármagnskostn-
aðar vom 1.699 milljónir króna
og hækkuðu um 0,59%. Hagn-
aður fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað var 723 milljón-
ir eða 29;86%. Veltufé frá
rekstri var 627 milljónir eða
25,9% af tekjum, en var 428
árið áður, veltufjárhlutfall er
1,59, en var 1,22 og eiginfjár-
hlutfall hefur einnig batnað. Var
0,35 á síðasta ári en 0,23 árið
áður. Nettóskuldir FISK eru
1.340 milljónir króna og niður-
staða efnahagsreiknings 3.035
milljónir.
Stefnt að skógrækt
á Steinsstöðum
Sveitarstjórn Skagafjarðar
hefur samþykkt að athuga
möguleika þess að hefja skóg-
rækt í landi Steinsstaða í
Tungusveit. Við umræður urn
fjárhagsáætlun á síðasta fundi
sveitarstjómar var vikið að
þeim hugmyndum að planta
svokölluðum aldamótaskógi að
Steinsstöðum og í dag, mið-
vikudag, verða þessar hug-
myndir væntanlega viðraðar á
fundi umhverfis- og tækni-
nefndar með fulltrúum Skóg-
ræktarfélags Skagfirðiga.
Stefán Guðmundsson for-
maður umhverfis- og tækni-
nefndar segir að Steinsstaðir
séu mjög vel fallnir til skóg-
ræktar. f landi jarðarinnar, sem
er í eigu sveitarfélagsins, er
mikill jarðhiti, fjölbreytt lands-
lag og veðurfar ákjósanlegt til
skógræktar. Samkvæmt skipu-
lagi er m.a. áformað að þama
verði sumarbústaðabyggð og í
athugun að leggja hitaveitu á
svæðið. Vegur hefur verið lagð-
ur um svæðið og fyrstu húsin
em risin.
Þessir ungu menn við Austurgötuna á Hofsósi voru ekkert að vfla fyrir sér þó hann bristi á með
norðan stórhríð um helgina. Þeir hófust handa strax er upp birti og grófu innan stærsta skaflinn
við götuna og hlóðu við hann vamarvirki. Ekki var svo verra að svolítið framhald varð á veðrinu
á mánudag og frí gefið í skólanum. Þá var hægt að klára mannvirkið. Fyrir framan er Friðrik
Pálmi Pálmason, en aftar frá vinstri talið Jóel Þór Amason, bræðumir Jóhannes Veigar
Jóhannesson og Birgir Ingvar Jóhannesson og Guðmundur Alfreð Hjartarson.
Húnvetnskir sauðfjárbændur
vilja sanoræmt átak gegn kláða
Á fundi sauðfjárbænda í
Húnavatnssýslum í Víðihlíð
nýlega var samþykkt að fara
fram á það við héraðsdýra-
lækni og yfirdýralækni, með
fulltingi landbúnaðarráðu-
neytisins og fjárveitinga-
valdsins, að farið yrði í skipu-
lagðar aðgerðir til útrýmingar
fjárkláðamaurs í sauðfé á
Norðurlandi vestra, allt frá
Víðidal og austur í Skaga-
fjörð.
,AJeð samstilltu átaki virðist
hafa tekist að uppræta fjárkláða
á Vestfjörðum og horfa fundar-
menn til þess að svipuðum að-
gerðum megi beita hér með íúll-
nægjandi árangri. Nauðsynlegt
er að átak til útrýmingar fjár-
kláðamaurs á þessu svæði fari
fram næsta vetur”, segir einnig í
ályktun fundarins.
Að sögn Egils Gunnlaugs-
sonar héraðsdýralæknis í Húna-
þingi vestra hafa verið nokkur
brögð um fjárkláða í Húna-
vatnssýslum og sérstaklega varð
vart við aukningu hans í Víöi-
dalshólfinu á liðnu hausti. Egill
segir að þetta sé það mikið að
ástæða þyki til að gera tilraun til
að útrýma þessum ófögnuði.
Erindið hefur verið sent til
sveitarstjóma á svæðinu með
vonir um undirtektir. Þannig
hefur samþykkt fundarins í
Húnavatnssýslu verið send af
sveitarstjóm Skagafjarðar til Fé-
lags sauðíjárbænda í Skagafirði.
Jóhann Már Jóhannsson bóndi í
Keflavík, formaður félagsins,
segir skagfirska bændur styðja
félaga sína í Húnaþingi við út-
rýmingu fjárkláðans, þó svo að
hann hafi alls ekki verið plága
eða vandamál í Skagafirði. Hins
vegar hafi sauðfjárbændur þar
mun meiri áhyggjur af öðmm
hlutum og það sé hvemig gerð
nýs búvömsamnings sé að þró-
ast. Jóhann segir að sér sýndist
að þama sé endanlega verið að
taka allan sjálfsákvörðunarrétt
af sauðfjárbændum, enda virðist
lítið tillit tekið til fundarsam-
þykkta þeirra. „Það er eins og
allir aðrir en bændur, séu betur í
stakk búnir til að fjalla um þessi
mál ”, sagði Jóhann Már.
—ICfcH£t!? chiDI— /ílfí1bílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ m m m m sími .4535141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargato lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Rettingar Sprautun