Feykir - 23.02.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Sólin hækkar sem óðast á lofti og daginn lengir. Um leið færist meira líf í umhverfið. Bömin í
Arvist, skóladagheimlinu á Sauðárkróki, voru að leik á bamskóiavellinum í gær ásamt umsjó-
narmanni sínum Maríu Sævarsdóttur.
Björgunarsveitir í Húna-
þingi vestra sameinaðar
Að undanfömu hefur verið
unnið að sameiningu björg-
unarfélaganna þriggja í
Húnaþingi vestra, björgun-
arsveitar og slysavarnar-
deildar Káraborgar á
Hvammstanga og Flugbjörg-
unarsveitar Vestur - Hún-
vetninga, sem hefur aðsetur á
Laugarbakka. Fundur þar
sem kosið verður um samein-
ingu sveitanna verður hald-
inn annað kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 24. febrúar og
hefur komið upp hugmynd að
nýja sveitin muni heita
Björgunarfélagið Hvítserkur.
Guðmundur Jóhannesson
formaður Káraborgar segir að
fólk sé fylgjandi sameiningu
sveitanna og ekki hafi orðið
vart mótbára gegn nafni á nýja
félaginu.
Að sögn Guðmundar eru
félagar í slysavamarsveit Kára-
borgar 118 talsins, margir af
þeim eru styrktarfélagar. I
björgunarsveit Káraborgar eru
um 40 manns og Guðmundur
álítur svipaðan fjölda í flug-
björgunarsveitinni. Þessar
sveitir eru vel búnar tækum í
dag og Guðmundur segir að
sameinaðar verði þær geysiöfl-
ungar, með þrjá snjóbíla, fjóra
björgunarbfia og Alantic 21
björguanrbát, harðbotna slöngu-
bát sem keyptur var á síðasta
ári. Káraborg er með deild í
Bæjarhreppi á Ströndum og
hefur einn bfia sveitarinnar
verið staðsettur á Borðeyri.
„Þetta er í takt við það sem
hefur verið að gerast annars
staðar. Sveitimar eru að vinna
á sama svæði og einungis átta
kflómetrar á milli aðalbæki-
stöðva þeirra. Síðan er hinu
ekki að neita að fólki hefur ver-
ið að fækka og það setur svip
sinn á þetta staif sem annað.
Unga fólkið fer burtu til náms
og aldrei að vita hvað skilar sér
aftur”, sagði Guðmundur sem
lætur af formennsku við sam-
einingu sveitanna, en meining-
in er að fá nýtt forustuafl til að
leiða nýtt sameinað björgunar-
félag í Húnaþingi vestra.
Heyfengur í Skaga-
firði í tæpara lagi
- þrátt fyrir gjafaléttan vetur
„í heildina má segja að þetta
sé í jámum með heyfeng í hér-
aðinu. Nokkuð margir em í
knappara lagi með hey og ljóst
að þeir verða að grípa til þess
fyrr en seinna að drýgja heyin,
þá væntanlega með kjamfóð-
urgjöf, því það verður trúlega
erfitt að útvega sér hey úr
þessu. Eg hef svo sem ekki á-
hyggjur að menn bjargi sér
ekki, en við munum fylgjast
með áfram”, segir Bjarni
Maronsson forðagæslumaður
hjá Búnaðasambandi Skaga-
fjarðar, sem annast forðagæslu
fyrir sveitarfélagið eins og síð-
asta vetur.
Bjami segir að bændur hafi
verið búnir með allar fymingar
eftir óhemju gjafafrekan vetur
sem leið. Síðan fengu þeir kalin
tún ofan í kaupið í vor og hey-
fengur var því í naumara lagi
eftir síðasta sumar. „En bændur
stóðu sig mjög vel síðasta vetur,
útveguðu sér hey og fóður í tíma
og fóðrunin var í góðu lagi. Síð-
an hefur þessi góði vetur orðið til
þess að menn hafa getað sparð
heyfeng, en þeir gera það nú ekki
eftir þetta”, sagði Bjami Marons-
son.
En ásetningur mun hafa verið
í ríflegra lagi í haust hjá mörgum
og trúlega hefur góð tíð framan
af orðið til þess að menn fækk-
uðu ekki eins mikið og raunar
hefði þurft. „Það er al veg ljóst að
hrossaijöldi í héraðinu er of mik-
ill og þetta er slæmt varðandi
beitarþol og líka það að menn
geta ekki gefið með þessu enda-
laust. Menn gætu haft miklu bet-
ur út úr hrossabúskapnum með
því að fækka í stóðinu og gera þá
betur við úrvalið”, segir Bjami
Maronsson.
Nýtt deilskipulag
fyrir Hofsós
Umhverfis- og tækninefnd
Skagafjarðar samþykkti á fúndi
sínum á mánudag nýtt deili-
skipulag fyrir þorpshlutana á
Hofsósi: Plássið, Bakkann, Sand-
inn og Brekkuna. A sama fundi
var einnig samþykkt umsókn
Valgeirs Þorvaldssonar um
byggingarleyfi fyrir ættfræði-
setur á „Arverslóðinni”.
Fimm athugasemdir bárust
við deiliskipulagstillöguna m.a.
frá Una Péturssyni útgerðar-
menni og 43 öðrumHofsósing-
um. Sjómönnum hefur fundist
að sér þrengt, en höfnin liggur
að hinu skipulagða svæði . Þá
bárust athugasemdir frá Sigl-
ingastofnun, Vegagerð ríkisins
og eigendum Bakka og Nýja-
bæjar, en þessi hús eru á hinu
skipulagða svæði. Umhverfis-
og tækninefnd svaraði á fundi
sínum á mánudag framkomn-
um athugasemdum. Deiliskipu-
lagið hefur Ami Ragnarsson
arkitekt og skipulagsfræðingur
unnið fyrir nefndina.
—KTeH£»t! chjDI— Airilbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 A g m m m sími . 4535141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmunáargata Ib 550 Sauðórkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Réttingar # Sprautun