Feykir - 01.03.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Snorri Bjöm sveitarstjóri um bvggðamálin
Stj órnmálamenn
taki ákvörðun um
uppbyggingu staða
Snorri Bjöm Sigurðsson sveit-
arstjóri segir raunverulegan
vilja meðal stjómmálamanna
til þess að efla svæði úti á
landsbyggðinni m.a. með flutn-
ingi stofnana þangað, en hins-
vegar sé mikil tregða í kerfinu
gegn því. Snorri sagði að það
væri stjórnmálamanna að
kveða upp úr með það hvaða
staðir á landinu væm lífvæn-
Iegir og þar ætti uppbyggingin
að eiga sér stað.
„Við vitum að þetta eru fáir
staðir og mikill sársauki mun
verða þar sem ekki þykir lífvæn-
legt. Forsætisráðheira hefur viðr-
að skoðanir af þessu tagi og það
yrði landsbyggðinni fyrir bestu
ef kveðið væri upp úr með þetta,
en hver vill hengja bjölluna á
köttinn", sagði Snorri Bjöm á há-
degisverðarfundi Atvinnuþróun-
arfélags Eyjafjarðar, Háskólans á
Akueyri og sjónvarpsstöðvarinn-
ar Aksjón fyrir helgina.
A fundinum skýrði bæjar-
stjórinn á Akranesi, Gísli Gísla-
son og Snorri Bjöm sveitarstjóri
Skagafjarðar frá reynslu af flutn-
ingi stofnana inn á þessi svæði.
Tíðindamaður Feykis var ekki
staddur á fundinum sem bar yfir-
skriftina „I sóknarhug, fundaröð
um byggðamál”, en í Mbl. sl.
föstudag segir að Snorri hafi
greint frá góðri reynslu af flutn-
ingi Þróunarsviðs Byggðastofn-
unar til Sauðárkróks og hluta
starfsemi Ibúðalánasjóðs. Vel
hafi gengið að manna stöður og
mökum þeirra sem fluttu í
byggðalagið með stofnunum
hefði líka gengið vel að fá at-
vinnu við hæfi.
Snoni Bjöm sagði að vissu-
lega hefðu komið verulegar efa-
semdir hjá ýmsum áður em að
flutningi kom, en hann fullyrti að
þrátt fyrir það hefði prýðisvel
tekist til og engir vankantar kom-
ið upp í tengslum við þá. Áhrif á
samfélagið væm mjög jákvæð.
Snom Bjöm sagði tiltölulega
fáa staði á landsbyggðinni í stakk
búna að taka við stofnunum en
þeir þyrftu að uppfylla ákveðin
skilyrði, t.d. varðandi lágmarks í-
búafjölda. Þannig væri ekkert
annað sveitarfélag á landsbyggð-
inni en Akureyri sem gæti tekið
við stofnun eins og Rarik, „sem
er gott dæmi um fyrirtæki sem á
heima á landsbyggðinni fremur
en höfuðborgarsvæðinu”, sagði
Snorri Bjöm.
Telur sig hafa heyrt
drunur frá gosinu
Gísli Jónsson bóndi á Ytri-
Húsabakka í Skagafirði telur sg
greinilega hafa orðið varan við
diunur um það leyti sem gos
hófst í Heklu. Hann getur á eng-
an hátt annan rakið þær en til
gossins, en hélt íyrst að um jarð-
skjálfta væri að ræða eða flugvél
í erfiðleikum.
„Þetta vom þungir dynkir,
misstórir en greinilegir, og ég
heyrði þá best þegar ég kom inn
í bogaskemmuna, en ég var við
gegningar út við húsin. Hundur-
inn heyrði þetta greinilega líka
og varð hálfliræddur. Ég hraðaði
mér heim áður en ég var búinn í
húsunum og sá þá í sjónvarps-
fréttunum, hvemig í þessu lá og
tíminn passaði alveg og það var
eins og þetta kæmi úr sauðaustri.
Ég hef nú verið að að hlera hvort
aðrir hafa heyrt gosdrunur og
veigrað mér við að segja frá
þessu. því það er hætt við að
manni verði ekki trúað”, sagði
Gísli. Veður var hið besta í
Skagafirði um það leyti er gos
hófst, en Feykir hefur ekki
fregnað af fleimm sem heyrðu
goshljóðin, enda hafa trúlega
fáir verið úti við á þeim tíma.
Mesta óveður vetrarins reið yfir nú í byrjun vikun-
nar. Þegar fólk vaknaði á sunnudagsmorgun var
komið grimmdar norðan veður og mikil ófærð. Það
var því ekki um annað að ræða en halda sig inni
þann dag, j)ar sem að engin Hekla truflaði fólk eins
og syðra. A mánudag voru bæði vélræn og líkamleg
moksturstæki komin á kreik og hér til vinstri er
Sigurbjörn Björsson bifvélavirki að moka frá verk-
stæðisdyrunum.
Blönduósingar
vilja smábátahöfn
Hafnarstjóm Blönduóss vill
byggja smábátahöfn, en að
öðru leyti metur hafnar-
stjómin ekki þörf á nýfram-
kvæmdum á næstu fjórum
árum, en útilokar ekki að
sinna þurfi viðhaldi.
Vegna endurskoðunar á
hafnaráætlun fyrir árin 2001-
2004 hefúr hafnarstjóm Blöndu-
óss beint |)eim tilmæum til Sigl-
ingastofnunar að kannaðir verði
möguleikar á uppbyggingu
smábátahafnar á Blönduósi og
að sú mögulega framkvæmd
verði sett inn á hafnaáætlunina.
í fjárhagsáætlun fyrir Blöndu-
óshöfn á þessu ári er gert ráð
fyrir tekjum upp á kr.
1.850.000. og samsvarandi
rekstrargjöldum. Vextir og af-
borganir langtímaskulda eru kr.
6.300.000 og fjárfesting kr.
1.880.000.
—ICTcH^ítf chjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
jm
bílaverkstæði
Simi: 453 5141
Sæmundargala lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
# Bílaviðgerðir á Hjólbarðaviðgerðir
& Réttingar Sprautun