Feykir - 15.03.2000, Side 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Mikið fjölmenni var viðstatt vígslu reiðhallarinnar. Hér eru þeir féiagarnir Oddur frá Blöndu-
ósi, Sigurbjöm Bárðarson og Ami Þorgilsson. Mynd/Jón Sigurðsson.
Glæsileg sýning við vígslu
nýju reiðhallarinnar
Nýtt íslandsmet Arnars frá Skagaströnd
Með aflaverðmæti
upp á 140 milljónir
Reiðhöllin á Blönduósi var
vígð sl. laugardag í blíðskapar-
veðri að viðstöddu miklu fjöl-
menni, eða svo mörgum áhorf-
endum sem aðstæður framast
leyfðu. Sýnd voru hross dreifð
um margar sýslur landsins, allt
frá Eyjafirði suður og austur til
Rangárvallasýslu, og þar á með-
al landsþekktir kynbótahestar
s.s. Galsi frá Sauðárkróki, Gust-
ur frá Hóli, Oddur frá Selfossi,
Víkingur frá Voðmúlastöðum og
Þór frá Höskuldsstöðum, og
kynbótahryssumar Þoka frá Ak-
ureyri og Næla frá Bakkakoti.
Auk þess voru nokkur sýn-
ingaratriði heimafólks úr héraði,
svo sem hópur sjö kvenna, leik-
ið sögulegt atriði fjögurra knapa,
munsturreið sjö knapa og fán-
areið 10 knapa. Þá var töltsýning
10 hesta er dæmd var af Magn-
úsi Lárussyni. Tóku þátt í henni
þekktir gæðingar víðsvegar að
og varð í efsta sæti hesturinn
Húni fráTorfunesi, setinn af Sig-
urbimi Bárðarsyni, en í öðm sæti
hinn kunni Valíant frá Heggs-
stöðum, setinn af Hafliða Hall-
dórssyni. Var þetta sýningaratriði
athyglisvert og jafnframt lær-
dómsríkt fyrir áhorfendur hvem-
ig beri að sýna hesta samkvæmt
þeim reglum sem í gildi em um
sýningaratriði.
Ótalið er svo eftirlætisatriði
sýningarinnar er Sigurbjöm
Bárðason sýndi sjálfan Odd frá
Blönduósi sem nú er 15 vetra og
brást það ekki vonum áhorfenda
en þar sýndist maður og hestur
vera eitt.
Vígsluhátíðin hófst með söng
Karlakórs Bólstaðahlíðarhrepps,
blessunarorðum sóknarprestsins
Sveinbjarnar R. Einarssonar,
ávarpi félagsmálaráðherra í for-
föllum landbúnaðarráðherra, á-
varpi formanns LH og fleiri að-
ila. Lofað var með orðum og
gjöfum hið mikla framtak eig-
anda reiðhallarinnar Árna Þor-
gilssonar og leyfir fréttaritari sér
að endurtaka frá fyrri frétt af
byggingunni, að Árni hafi lagt
gull í lófa húnvetnskra hesta-
manna með framtaki sínu.
Formaður samtaka hrossa-
bænda í A.-Hún. tilkynnti val á
hrossaræktarmanni ársins, sem
þeir hlutu sameiginlega feðgam-
ir í Steinnesi í Sveinsstaða-
hreppi, Jósef og Magnús ásamt
eiginkonum sínum. Stjómandi
dagskrár og þulur var Hjörtur
Karl Einarsson og fórst það vel
úr hendi.
Grímur Gísla.
Frystitogarinn Arnar kom til
heimahafnar á Skagaströnd í
gærdag úr mettúr. Skipið var
með um 140 milljóna aflaverð-
mæti og er það talsvert meira en
nokkurt annað frystiskip hefur
komið með af Islandsmiðum.
Samherjaskipið Baldvin Þor-
steinsson kom með rúmlega 126
milljónir á liðnu hausti og fannst
þá mörgum nóg um, en áhöfn
Skagastrandar Amars hefur átt
sérstöku láni að fagna síðustu
misserin. Túrinn á undan var
skipið með 108 milljóna verð-
mæti og á síðasta ári vom túram-
ir fjórir sem fóm yfir 100 millj-
ónimar, og yfir milljarðinn vom
Amarsmenn komnir fyrir skötu-
veisluna á Þorláksmessu.
„Þetta er rosalega gaman þeg-
ar svona gengur. Þetta er náttúr-
lega heppni að lenda í þessu „hel-
víti“, en maður á náttúrlega ekki
að bölva þegar gengur svona vel.
Við vomm að veiðum allan tím-
ann á Austfjarðamiðum og þrátt
fyrir bölvaðar brælur gátum við
verið að allan túrinn nema hálfan
annan sólarhing sem við þurfum
að „slóa”. Við vomm náttúrlega
að veiða verðmætar tegundir,
þorsk og grálúðu, og höfum góð-
ar heimildir í þær. Tókum þama
500 tonn af þorski og það eru
ekki allir sem geta Ieyft sér það”,
segir Ámi Sigurðsson karlinn í
brúnni á Amari, en aflinn í þess-
um túr var 670-80 tonn upp úr
sjó.
I gærmorgun vom 33 dagar
frá því Amar lét úr höfn og vom
aflaverðmætin því að meðaltali
4,3 milljónir á sólarhring. Árni
sagði að veiðin hefði verið nokk-
uð jöfn, engir stórir toppar. Há-
setahluturinn er góður úr túmum,
eða um 1300 þúsund. „Já strák-
amir em vel af því komnir. f>etta
em algjörir jámkarlar sem ég er
með héma um borð, gera allt sem
þeir em beðnir um, og það gera
kannski ekki allir sér grein fyrir
því hvað liggur að baki því að
vinna tæp 700 tonn í haugabrælu
úti á sjó.”
- En hvað gera menn nú í til-
efni dagsins?
„Ja það er svo sem lítið um-
fram það venjulega, en ég á þó
von á því að við skálum saman í
kampavíni félagamir. Síðan
skemmir það ekki hjá okkur að
Skagstrendingur er núna að birta
betri afkomutölur en nokkurn
tíma hafa þekkst í sögu fyrirtæk-
isins”, segir Ámi Sigurðsson
skipstjóri á Amari.
Sjö um Hestamiðstöðina
Sjö sóttu um starf framkvæmdastjóra Hestamiðstöðvar
íslands sem nýlega var auglýst og hefur því stjórn mið-
stöðvarinnar úr góðum hóp að velja, en hana skipar:
Sveinbjörn Eyjólfsson aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra
formaður og meðstjórnendur Bjarni Egilsson Hvalnesi og
Skapti Steinbjömsson Hafsteinsstöðum. Ekki fæst uppgefið
hverjir sóttu um, en á næstu dögum verður gengið frá
ráðningu framkvæmdastjóra.
—chiDI— JfMfTbílaverksfæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ AÆ.JLÆ. sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargafa 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Réttingar jfcSprautun