Feykir - 15.03.2000, Side 3
11/2000 FEYKIR3
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki
Starfsemin jókst á
flestum sviðum
Aðalfundur Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Sauðárkróki var
haldinn í síðustu viku. Niðurstöð-
ur rekstarreiknings sýna að áætl-
anir varðandi reksturinn stóðust á
síðasta ári, útgjöld voru í sam-
ræmi við fjárveitingar og afgang-
ur var tæplega níu þúsund krón-
ur. „Reksturinn á árinu gekk með
ágætum og starfsemin jókst
einnig á flestum sviðum. Þennan
góða árangur ber að þakka öllu
starfsfólki stofnunarinnar”, segir
í skýrslu framkvæmdastjóra.
Helstu annmarkar varðandi
starfsemina í byrjun síðasta árs
voru að ekki tókst að ráða í stöðu
skurðlæknis við stofnunina. Var
því leitað annarra leiða til að
manna stöðuna. Niðurstaðan
varð sú að gerðir voru samningar
við Sjúkrahús Reykjavíkur og
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
um að þessar stofnanir sæju Heil-
brigðisstofnuninni á Sauðárkróki
fyrir skurðlæknum í 40 vikur á
ári. Gengið var út ffá því að skurð-
stofan yrði lokuð í 10 vikur yfir
sumarið og í 2 vikur í lok ársins.
Þetta fýrirkomulag tók gildi 1.
september og kemur hver sér-
fræðingur á stofnunina í eina til
tvær vikur í senn. Þeir koma úr
ýmsum sérgreinum, s.s. almenn-
ir skurðlæknar, kvensjúkdóma-
læknar, þvagfæraskurðlæknar og
bæklunarlæknar. Þetta hefur
mælst vel fyrir meðal íbúa og
hefur starfsemi á göngudeild
stóraukist með meiri breidd í
framboði á sérfræðiþjónustu.
Samningamir gilda út árið 2000
og verður tíminn notaður til að
meta árangurinn og taka ákvörð-
un um framhaldið.
Heilbrigðisstofnunin á Sauð-
árkróki hefur verið ein þeirra
sjúkrastofnana í landinu sem
hlotið hefur viðurkenningu heil-
brigðisráðuneytisins vegna góðr-
ar rekstrarútkomu. Stofnunin
fékk á síðasta ári 14 milljónir af
Ævintýrin gerast enn
Föstudagskvöldið 10. mars sl.
héldu nemendur Grunnskólans
að Hólum í Hjaltadal sína árlegu
miðsvetrarskemmtun eða árshá-
tíð sem tíðkast hefur nú alllengi.
I nokkur ár hefur það verið venja
nemenda að setja upp leikverk
og leggjá áherslu á það eina at-
riði fremur en mörg smærri. Að
þessu sinni var Skilaboðaskjóð-
an eftir Þorvald Þorsteinsson fyr-
ir valinu en sagan gerist í Ævin-
týraskóginum og fjallar um bar-
áttu íbúanna þar við Nátttröllið
sem hefur rænt Putta litla, og
hvemig þeim tekst með sameig-
inlegu átaki að frelsa hann.
Það er skemmst frá að segja
að sýningin vakti mikla lukku
hjá öllum þeim fjölmörgu áhorf-
endum sem vom mættir. Sviðs-
mynd, búningar og leikur var allt
með þeim hætti að hver áhuga-
leikhópur mætti vera stoltur af.
Þó hlutverkin væm misstór þá
voru samt allir nemendur með
og skiluðu sínu með sóma hvort
heldur það var lítið skógardýr, tré
eða aðalleikari. Það er augljóst
að mikill undirbúningur liggur
að baki svona sýningu og æfing-
amar hafa verið teknar alvarlega
því tæplega rak nokkum leikar-
anna í vörðumar þrátt fyrir oft á
tíðum löng samtöl.
Skólastjórinn Jóhann Bjama-
son, kennarar og annað starfsfólk
eiga heiður skilið fyrir ötult starf
að þessari sýningu sem gerir
okkur enn betur ljóst hve miklu
jafnvel fámennir skólar fá áork-
að þegar allir leggja sitt af mörk-
um og hver einstaklingur fær
notið sín. Að sýningu lokinni
bauð foreldrafélagið til mikillar
veislu svo gestir héldu heim á
leið mettir á sál og líkama. Að-
standendur allir hafið bestu
þakkir fyrir góða og skemmti-
lega kvöldstund. Ahorfandi.
Aukakílóin burt! Ný öflug vara!
Náðu varanlegum árangri í eitt skiptið fyrir öll. Ég missti
7 kg. á fimm vikum. Síðasta sending seldist upp.
Persónuleg ráðgjöf og stuðningur. Hringdu strax.
Helma & Halldór sími 557 4402 og 587 1471.
grima@centrum.is
Sími Feykis er
453 5757
Myndsími 453 6703
Stjórn og framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar á aðalfundinum á dögunum.
fjáraukalögum til að mæta launa-
hækkunum sem ekki höfðu verið
bættar í samræmi við samninga,
en Heilbrigðisstofnunin á Sauð-
árkróki hefur ekki þurft að óska
eftir framlögum að fjáraukalög-
um vegna rekstrarstyrkja og
efnahagsreikningur stofnunarinn-
ar sýnir að staða hennar er sterk.
Heildarvelta Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Sauðárkróki var á
síðasta ári tæplega430 milljónir.
Meðaltal setinna stöðugilda í
hverjum mánuði var 121,4 og er
afleysingarfólk þar með talið.