Feykir - 15.03.2000, Side 4
4 FEYKIR 11/2000
Sjávarútvegsráðherra í heimsókn í kjördæminu
Vonast til að fiskstofnarnir
gefi um 350 þúsund tonn
Árni Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra kveðst vonast til
þess að takast muni að byggja
upp fiskistofnana þannig að í þá
megi sækja um 350 þúsund
tonna ársafla og væri það ágæt
búbót miðað við það sem stofn-
arnir hafa verið að gefa undan-
farin ár. Þetta sagði ráðheirann á
hádegisverðarfundi á Kaffi
Krók á Sauðárkróki sl. miðviku-
dag, en ráðherrann heimsótti
Norðurland vestra á miðviku-
dag og fimmtudag í síðustu viku
og var þetta lokaáfanginn í
Fundarmenn fylgdust með af athygli því sem ráðherrann hafði fram að færa.
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra ræðir við fundarmenn
á Sauðárkróki. Með honum í för voru Vilhjálmur Egilsson al-
þingismaður, Sigríður Ingvarsdóttir varaþingmaður Norður-
lands vestra og Ármann Olafsson aðstoðarmaður ráðherrans.
heimsókn sjávarútvegsráðheira
í öll kjördæmi landsins.
Á fundinum á Sauðárkróki
fékk ráðherrann forsmekkinn af
því sem menn á svæðinu em að
hugsa varðandi sjávarútveginn.
Hann var spurður margs um
stefnu stjómvalda varðandi
rannsóknarstarf í sjávarútvegin-
um, um byggðakvótann, heim-
ild til að skrá kvóta á fiskvinnsl-
ur, endurskoðun á kvótakerfinu,
framtíð skipstjómarmenntunar í
landinu og ýmislegt fleira. Ráð-
herrann gaf greið svör við
ýmsu, en fram kom í hans máli
að Vatneyrarmálið setti þó ým-
iss mál í biðstöðu, t.d. er varðar
endurskoðun á kvótamálum.
Árni sjávarútvegsráðherra
fundaði einnig með Siglfirðing-
um á ferð sinni, en hann heim-
sótti fyrirtæki og vinnustaði á
Sauðárkróki, Siglufirði, Skaga-
strönd, Blönduósi og Hvamms-
tanga. Ráðherran segir að það
hafi verið ómetanlegt fyrir sig
að kynnast stöðu atvinnugrein-
arinnar og fólki sem að henni
staifi á ýmsuni stöðum út um
landið og hann sé nú reynslunni
ríkari úr þessum heimsóknum.
Tvær Perlur
Fyrir síðustu jól komu út
tveir hugljúfir og skemmtilegir
hljómdiskar. Annars vegar
með Geirmundi Valtýssyni, lög
eftir hann sjálfan, og hins veg-
ar með Álftagerðisbræðrum,
en þar eru söngvar úr ýmsum
áttum.
Hljómdiskur Geirmundar
hefur að geyma virkilega
skemmtilega tónlist. Þarna er
um að ræða mjög fjölbreytt
lagaval, rómantísk lög í amer-
ískum sveifiutónlistarstíl eins
og t.d. „í ljósinu” þar sem Páll
Rósinkranz fer á kostum í söng
sínum og Sonny Garrish leikur
á fetilgítar sinn af mikilli snilld,
en Sonny hefur leikið með
mörgum frægustu sveitasöngv-
urunum í Bandaríkjunum, svo
semRoy Rogers,Tammy Wyn-
ette, Patsy Coline og Marty
Robbins, auk þess leikið með
gítarleikaranum Chet Atkins.
Já, þessi tónlist kemur sann-
arlega fram í bjöitu ljósi, hjá
þeim félögum sem þama koma
fram. Líka má nefna „I örmum
þínum á ég skjól”, sem Ari
Jónsson syngur ásamt þeim fé-
lögum. Og þama bregður Geir-
mundur sér í Suður - ameríska
taktinn, „Við svífum í salsa”,
sem minnir óneitanlega á
gömlu góðu „La Conga”, sem
var svo vinsælt á fimmta ára-
tugnum og heyrðist þá gjarna
spilað af Lecuona Cuben
Boys.
Það er virkilega gaman að
heyra þessa danstónlist. Það
rifjar upp þá gömlu góðu daga.
Og svo er það að sjálfsögðu
sveiflan hans Geirmundar sem
skipar veglegan sess á þessum
nýútkomna hljómdiski.
Á liðnum ámm hafa Geir-
mundur og hans félagar spilað
inn á fjölmargar plötur og
diska og mun þar vera um 10
titla að ræða,dágott safn það.
Þama er að finna fjölmörg vin-
sæl danslög, en efst í mínum
huga em lögin „Ort í sandinn”
og „Tifar tímans hjól.” En síð-
amefnda lagið finnst mér vera
besta lag Geirmundar og er þó
vandi að fullyrða nokkuð um
það, en stundum er ég að
hugsa um þetta lag útsett í
klassísku formi, fyrir strengja-
sveit og messósópranrödd. Það
gæti ekki orðið öðmvísi en
glæsilegt.
Þama em líka mjög fallegir
og velgerðir textar, eins og
raunar við mörg hans lög. Það
er meira en hægt er að segja
um marga aðra danstónlist nú
til dags, þar sem oft á tíðum er
ekki hægt að átta sig á, á hvaða
tungumáli er sungið. Þar
standa þeir Geirmundur og fé-
lagar sig með prýði og fara vel
með okkar móðurmál, og mun
sannarlega ekki af veita.
Já, Geirmundur er búinn að
gleðja marga með danstónlist
sinni, jafnt þá sem heima sitja
og hlusta á plötur hans og hina,
sem sveiflast í salsa á dansgólf-
um skemmtistaðanna víðsveg-
ar um landið. Nú í vor er Geir-
mundur búinn að leika fyrir
dansi í 42 ár og sagði hann mér
að nú væri hann farinn að spila
fyrir þriðju kynslóðina á dans-
leikjum.
Vonandi eiga eftir að koma
út fleiri hljómdiskar með Geir-
mundi og félögum hans, með
fallegum lögum og velgerðum
textum, eins og Magnús Kjart-
ansson sagði, að hann vonaði
að ættu eftir að koma út 100
lög eftir Geirmund, en Magnús
hefur útsett flest lögin hans,
með miklum ágætum og séð
um undirleik ásamt mörgu
öðru ágætu tónlistaifólki.
Hljómdiskur þeina Álfta-
gerðisbræðra er sannarlega
fjölbreyttur. Það er nákvæm-
lega sama hvar maður gnpur
niður í þetta lagaúrval, þar er
hvergi hnökra að finna, alltaf
sömu tæru raddirnar, líkt og
tærasta fjallalind, samstilltar
eins og fegursta hljóðfæri. Já
það virðist vera nákvæmlega
sama hvað þeir bræður syngja,
það verður allt jafn skemmti-
legt og vel með farið af þeirra
hálfu. Það er sama hvort þeir
syngja lög Inga T. Lárussonar
eða Cole Porter, hvoit tveggja
jafn glæsilegt. Ég stilli mig
ekki um að nefna nokkur lög
sem kannski er hægt að segja
að skari fram úr, er þó vandi
um það að segja.
„Saumakonuvalsinn” er
hressilega sunginn, jafnframt
því að vera blíðurog hugljúfur.
Það er stórkostlegt hvað þeir
bræður geta gert þetta litla lag
margslungið með sínum fögru
röddum. Þá er það lag og ljóð
sem allir sannir íslendingar
hljóta að unna, eftir þá Jónas
Hallgrímsson og Inga T. Lárus-
son. „Ég bið að heilsa.” Þama
fara þeir bræður svo sannar-
lega á kostum. Það er ekki
hægt að gera þetta betur, þökk
sé þeim bræðrum fyrir það.
Já það er gaman að heyra
svo fallega sungið um þessa
blessuðu vini sem koma vor
hvert til okkar, „með fjaðra-
bliki háa vegaleysu.” Síðasta
lagið á disknum „Tveir þrestir”
hugljúft og fallegt lag í suð-
vestur þýskum stfl, útsett af
Páli P. Pálssyni. í þessu lagi er
undirleikur, sem fer mjög vel
við söng þeirra bræðra og
söngurinn er þama með sama
glæsibrag.
Og nú bíðum við eftir næstu
hljómdiskum, með tjölmörg-
um fallegum og skemmtileg-
um lögum, sungnum af Álfta-
gerðisbræðmm. Hljóðritun er
einstaklega góð á báðum þess-
um hljómdiskum. Það er meira
en hægt er að segja um margar
aðrar hljóðritanir.
Stefán Jónsson Grænumýri.