Feykir


Feykir - 15.03.2000, Síða 6

Feykir - 15.03.2000, Síða 6
6 FEYKIR 11/2000 Hagyrðingaþáttur 292 Heilir og sælir lesendur góðir. Byrjum þáttinn að þessu sinni með vísu eftir Magnús Finnsson frá Stapa- seli. Aldrei hef ég eignast féð eins og dæmin sýna, og því varla eyri séð ævidaga mína. Önnur vísa kemur hér eftir Magnús. Ég þó kasti ýmsu á glæ einu verð ég feginn. Það er ef ég eignast fæ eitthvað hinum megin. Eins og þessar vísur bera með sér mun Magnús hafa glímt við sárafátækt alla ævi. Brá þó oft fyrir gamansemi í vísum hans, t.d. þessum. Hann þá kyssti hana fyrst hún var þyrst í muna. Litli Kristur, lífs af kvist léði mixtúmna. Ástarstríðið örðugt gekk oft sem bíður trega. Mædd um síðir Magga fékk manninn prýðilega. Jóhann Ólafsson frá Gerðum í Ós- landshlíð yrkir svo um ellina. Er við sáttur ævikjör úti brátt er glíma. Dvínar máttur, dofnar fjör dregur að háttatíma. Eggert Norðdal yrkir svo 94 ára gamall. Öll mín liðin ævistig em í veður fokin. Sá er hingað sendi mig sér um ferðalokin. Jón Karlsson í Gýgjarhólskoti yrk- ir svo á fundi er hann sat við hlið stúlku. Út frá Stínu yl ég finn allt niðmndir miðju. Um mig geislar ástúðin eins og glóð í smiðju. Þótt við sæt og sælurík samvistanna njótum. Þá er engin erótík í þeim vinahótum. Næstu vísur em ortar fýrir nokkmm ámm um Ólaf Lámsson í Skarði í Gönguskörðum. Höfundur er Guð- mundur Sigurður Jóhannsson fræði- maður á Sauðárkróki. Hattinn ber á höfði sér hreifur fyrr en varði, hláturmildur heilsar mér hreppsstjórinn í Skarði. Trútt við rætur Tindastóls téður safnar arði, árla kominn er til róls Ólafur í Skarði. í bændafarir bregður sér búandkarlinn harði, ærslast þá og ólmur er Ólafur í Skarði. Hefur enga í réttum ró ræður aldrei sparði, sveiflar staf og segir hó signorinn í Skarði. Býr við rausn í bestum rann í bænda ræmdum garði bið ég guð að geymi hann gosann þama í Skarði. Það er Rúnar Kristjánsson sem orti svo um Guðmund Böðvarsson eitt sinn er hann var á ferð um Hvítársíðu. Kirkjubóli bjó hann á besta skjóli að vonum. Kyssti sólin kulda af brá kraftinn ól í honum. Sinnar tíðar kappakrans kostafríður bar hann. Hvítársíða saknar hans sveitarprýði var hann. Þegar horft er til himins verður næsta vísa til. Máni fullur fer um loft flestum þykir karlinn em. Þannig sést hann ekki oft einu sinni mánuð hvern. Rúnar kveðst hafa komist í kynni við ákveðið spillingarmál og ort af því tilefni. Skömm er að þeim skólareit skýrt ég á það bendi. þar sem engin ærlegheit em fyrir hendi. Einn ég þekki hér á haug hana er flíkar drambi, þar er engin ærleg taug undir rauðum kambi. í lok bréf síns sendir Rúnar undir- rituðum þessa þörfu ábendingu. Ef þú klippir stöku stilk stýrt er nærri tjóni. Fleiri mætti draga í dilk með Dagbjarti og Jóni. Það mun hafa verið Grétar Ó Fells sem orti svo. Gleymska hylur genginn stíg. Goð af stöllum falla. Loksins enginn þekkir þig. Þögnin gleypir alla. Ég held að það hafi verið Jón S. Bergmann sem orti þessa til ferskeytl- unnar. Meðan einhver yrkir brag og íslendingar skrifa. Þetta gamla þjóðarlag það skal alltaf lifa. Að lokum ein góð eftir Kára í Valadal. Kætir lundu kveðið mál kosta er fundið gaman. Ég hef stundum öls við ál orðin bundið saman. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Blönduósi, sími 452 7154. Eldri dansaklúbburinn Hvellur Dansleikur verður haldinn í Ljósheimum laugardaginn 18. mars kl. 23-3. Bassi sér um fjölbreytta dansmúsík. Mætum vel og sundvíslega. Allir velkomnir. Stjórnin. Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku í stofnuninni í marz og apríl: Tímabil Læknar Sérgrein 13/3 -17/3 Valur Þór Marteinsson þvagfæraskurðlæknir 20/3 - 24/3 Vilhjálmur Andrésson kvensjúkdómalæknir 27/3 - 7/4 Ólafur R. Ingimarsson skurðlæknir 10/4 - 14/4 Edward Kiernan kvensjúkdómalæknir 17/4 - 19/4 Sigurður Albertsson skurðlæknir Tímapantanir í síma 455 4000. Sigurður og Stefán vara við norskum Þeir Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í búfjársjúkdóm- um og Stefán Aðalsteinsson fyrrv. framkvæmdastjóri í genabanka iyrir búfé hafa sent frá sér bækling þar sem þeir vara mjög eindregið við inn- flutningi á fósturvísum úr norskum kúm. Telja þeir innflutning fóst- urvísanna stórhættulegan og óþarfan þar sem íslenski naut- gripastofninn sé heilbrigður og kostum búinn með tilliti til af- urðagetu og fullnægi nógsam- lega framleiðsluþörf mjólkur- vara í landinu, auk þess að miklar líkur séu á því að opnast muni markaður erlendis íyrir mjólkurduft til framleiðslu á bamamjólk þar sem íslensku kýmar séu að mestu lausar við prótínið „betakasein Al” er valdið geti aukinni sykursýki í bömum. Telja sérfræðingar að inn- flutningur fósturvísanna óhag- kvæman og ótímabæran þar sem ekki liggi fyrir mat á hag- kvæmni hans. Hætta sé einnig á innflutningi smitsjúkdóma, en fyrir þeim sé íslenskt búfé mjög viðkvæmt. Niðurstaða sérfræðinganna er því sú að innflutningur hinna norsku fósturvísa sé með öllu ótímabær vegna sjúk- dómahættu og mikils og margskonar kostnaðar er af honum hlytist. Umræddan bækling sinn sendu þeir Sigurður og Stefán búnaðarþingsfulltrúum, ráðu- nautum, skrifstofum búnaðar- sambanda og dýralæknum, í þeim tilgangi að þessir aðilar taki afstöðu til fósturvísamáls- ins út frá þeim rökum sem til- færð em í bæklingnum, og auk þess gefa þeir kost á að senda bæklinginn til þeirra er áhuga hafa á málinu og óska að fá hann sendan. gg/ruv.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.