Feykir


Feykir - 29.03.2000, Síða 1

Feykir - 29.03.2000, Síða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Eylendið í Skagaíirði var eins og hafsjór yfir að líta í leysingunum í gær. Upp úr hádeginu var Skagfirðingasveit kölluð að bænum Ytri - Húsabakka en þar voru hús orðin umflotin vatni og flæddi bæði inn í íbúðarhúsið hjá Gísla bónda Jónssyni og fjárhúsin. Ljóst er að tjón hefur orðið talsvert vegna þessara vorflóða á Húsa- bakka, sem eru óvenjumikii og líka óvenju snemma. Björgunarsveitarmenn dældu vatni úr húsum og aðstoðuðu við að koma búpeningi undan vatninu. Eins og sjá má var vegurinn að bænum farinn í sundur og ekkert nema trukkur björgunarsveitar- innar komst þama yfir í gær. Skagfirðingar leiti að Rauði Skagfirðingar, sérstaklega aust- an Héraðsvatna, ættu að svipast vel um í stóði sínu núna á næst- unni, hvort ókunnugur rauður hestur gæti verið þar saman við. Þá væri tilvalið fyrir vélsleða- menn að gera sér ferð í fjöllin. Feyki barst eftirfarandi tilkynn- ing frá Guðmundi Jónatanssyni ritstjóra Bæjarpóstsins á Dalvík. I Svarfaðardal hefur verið týndur hendur frá því um síðustu jól. Hesturinn er dökkrauður 10 vetra gæðingur, frostmerktur á hálsi. Ýmislegt er undarlegt við hvarf þessa hests. Segja má að hann hafi horfið sporlaust, þrátt fyrir mikla leit hefur ekkert fund- ist. Það rifjaðist upp að völva Bæjarpóstsins á Dalvík spáði því að hestur myndi týnast og ekki finnast fyrr en eftir nokkum tíma. Er það að koma fram? Leitað hefur verið til nokkurra miðla og öllum ber saman um að hestur- inn muni vera á h'fi. Tveir miðl- ar hafa tekið fram að hesturinn hafi álpast saman við hóp hrossa án vitundar þeirra sem með hafa að gera. Nú er þess farið á leit við Skagfirðinga að þeir kíki eftir því hvort þessi hestur geti verið hjá þeim Búið er að leita svo mikið að hestinum að farið er að skoða nánast ótrúlega möguleika. Vert er að hafa í huga að hér er um mikinn gæðing að ræða og tjón- ið því tilfinnanlegt fyrir eigand- ann. Vanti einhvem nánari upp- lýsingar er þær að finna í síma 868 2304. Fundur um þjóðlendumálið í Víðihlíð Krefst þess að kröfii- gerð fulltrúa ríkisins verði dregin til baka Sameiginlegur fundur sveit- arstjóma, landbúnaðamefnda og stjóma búnaðarsambanda á Norðurlandi vestra, sem haldinn var í Víðihlíð í fyrrakvöld, mót- mælir harðlega þeim kröfum til eignaréttar á landi sem fram em komnar af hálfu fúlltrúa rfldsins á gundvelli laga um þjóðlendur. Fundurinn lýsir furðu sinni á því að fram skuli vera komnar kröf- ur um, að þinglýst eignalönd bænda, sveitar- og/eða upp- rekstrarfélaga, verði að hluta til eða öllu leyti, gerð að þjóðlend- um og þar með eign ríkisins. Fundurinn krefst þess að þessar kröfúr verði [regar í stað dregnar til baka og virtur verði eignar- réttur aðila á því landi sem þing- lýsingar og skráð landamerki taka til. Þá gerir fundurinn þá skýlausu kröfu til ríkisstjómar og Alþingis að frekari aðgerðum um kröfur til þjóðlenda í Ames- sýslu verði þegar í stað frestað þar til fyrir liggja heildarkröfur ríkisins til þjóðlenda yfir landið í heild, þannig að heildaryfirsýn fáist um þessa kröfugerð hins opinbera á hendur bændum og öðmm landeigendum. Mikill einhugur ríkti á fund- inum í Víðihlíð sem um 60 manns sóttu, þar á meðal þing- menn kjördæmisins og gestir úr Amessýslu. Fundurinn lagði þunga áherslu á stjómmálalega ábyrgð rflcisstjómar og Alþingis og taldi umrædda kröfugerð í mótsögn við það að alþingis- menn og stjómvöld hefðu lagt mikla áherslu á, a.m.k. í orði, að spoma þurfi við frekari fækkun fólks á landsbyggðinni og flutn- ingi þess til Reykjavíkursvæðis- ins. Krafa ríkisins til stórra landssvæða væri í reynd skýr skilaboð til fólks á landsbyggð- inni að vera þiess þar, sem bygg- ir á eignarrétti á landi, sé ekki æskileg. Þetta geri málflutning stjómmálamanna um nauðsyn þess að efla landsbyggðina ekki trúverðugan. Fundurinn lýsir eindregnum stuðningi við ályktun Búnaðar- þings um þetta mál og skorar á stjóm Bændasamtaka Islands að gangast hið allra fyrsta fyrir skipulögðum fundum í öllum hémðum landsins, þar sem þetta mál verði kynnt og rætt, svo að bændum og öðm landsbyggða- fólki gefist þar kostur á að koma skoðunum sínum á framfæri og mótmæla þeim gerræðisfullu vinnubrögðum sem viðhöfð em af hálfu fulltrúa ríkisvaldsins og á ábyrgð þess. I ályktun fundarins segir einnig að hann vilji ekki að ó- reyndu trúa því að það hafi ver- ið ætlun alþingismanna með samhljóða samþykki á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlenda og afrétta, að þau fælu í sér þá eignaupptöku sem fulltrúar rík- isins gera kröfu til. í þeirri trú vill fundurinn mega treysta því að umrædd kröfugerð verði þeg- ar í stað dregin til baka og hún endurskoðuð frá gmnni. —KTeh£Ít! chíDI— JÍMTJlbílaverkstæði Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 jMÆJLÆ-JL sími: 453 5141 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA jfc Bílaviðgerðir Jþ Hjólbarðaviðgerðir • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA jj Réttingar Sprautun

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.