Feykir


Feykir - 05.04.2000, Side 6

Feykir - 05.04.2000, Side 6
6 FEYKIR 14/2000 Opið bréf til sveitar- stjórnar Skagafjarðar vegna álagningar sorpurðunargjalds 1999 Verðlaunahafar á uppskeruhátíðinni í körfuboltanum. Uppskeruhátíð hjá meistara- flokkunum í körfliboltanum Þann 17. desember 1999 sendi ég sveitarstjóm eftirfarandi bréf í kjölfar innheimtu sorpurðunargjalds fyrir árið 1999. Til sveitarstjómar Skagafjarðar. Málefni: Alagning sorpurðunar- gjalds. Þegar reikningur barst vegna sorp- urðunargjalds fyrir árið 1999, með gjalddaga 15. 12. 1999, varðégundr- andi. í bréfi meðfylgjandi gíróseðli var sagt: „Gjald þetta á að innheimta sam- hliða fasteignagjöldum” þá er senni- lega vísað til annarar greinar gjald- skrárinnar. Ég hef nú fengið þær upp- lýsingar að í annarri grein standi einnig: „og á sömu gjalddögum.” Ég vil vekja athygli á að gjaldskrá vegna sorpurðunar var gefin út 30.11. 1999. Ég tel að þá hafi hún öðlast gildi. Þar af leiðandi finnst mér að ekki geti verið löglegt að innheimta gjöld eftir nefndri gjaldskrá fyrr en samhliða fasteignagjöldum á árinu 2000. Ég neita því að greiða þann reikning sem mér var sendur og óska jafnframt eftir að sveitarstjóm dragi þessa afturvirku álagningu til baka. Víðinesi 17. 12. 1999 Virðingarfyllst Gunnar Guðmundsson. Sveitarstjóm virðist ekki hafa séð erindi mitt eða ekki talið það svaravert að öðm leyti en því að senda mér á- minningu dagsetta þann 23. 3. 2000 um að reikningur vegna sorpurðunar- gjalds sé ógreiddur. Þar er þess farið á leit að ég greiði hann hið fyrsta svo ekki komi til frekari innheimtuað- gerða. Þessi innheimtutilraun getur vart talist málefnalegt svar við erindi mínu, þess vegna vil ég bera fram eft- irfarandi spumingar til sveitarstjóm- ar og óska svara við þeim. Til þess að tryggja að sveitarstjóm- armenn sjái þær og geti svarað mun ég jafnhliða óska eftir að fá bréfið birt í vikublaðinu Feyki sem ég treysti að sveitarstjómarmenn lesi. I fyrsta lagi: Telur sveitarstjóm Sveitarfélagsins Skagafjarðar löglegt að innheimta sorpurðunargjald fyrir árið 1999 með þeim hætti sem hún hefur reynt þ.e. með afturvirkri gjald- töku? I öðm lagi: Telur sveitarstjóm Sveitarfélagsins Skagafjarðar sig hafa unnið samkvæmt 2. grein II gjald- skrár varðandi innheimtu gjaldsins? I þriðja lagi: Telur sveitarstjóm Sveitarfélagsins Skagafjarðar að unn- ið hafi verið samkvæmt gjaldskrá þegar gjaldendum sorpurðunargjalds Sveitarfélagsins Skagafjarðar var sagt að beina athugasemdum verðandi gjaldtöku til innheimtu Skagafjarðar eins og fram kom í bréfi meðfylgjandi gíróseðli. Því var ekki bent á 3. grein nýsamþykktrar gjaldskrár, þar sem sagt er að kvörtunum vegna álagning- ar eða innheimtu skuli beina til tækni- deildar sveitarfélagsins? Undirritaður óskar eftir skriflegu svari og jafnframt að sveitarstjóm birti það í Feyki til upplýsingar fyrir fbúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Virðingarfyllst Gunnar Guðmundsson. Uppskemhátíð meistaraflokka UMFT í körfubolta var haldin í Olafshúsi 16. mars sl. Þar vom veitt verðlaun og viður- kenningar fyrir árangur vetrarins, en gef- andi þeirra em Sjóvá - Almennar. Besti leikmaðurinn hjá körlunum, val- inn af leikmönnum, var Shawn Mayers, en gengið hefur verið frá því að þessi frá- bæri leikmaður leiki áfram með liðinu næsta vetur. Mayers haut einnig viður- Össur Skarphéðinsson og Tryggvi Harð- arsson, fonnannsefni Samfylkingarinnar, verða á opnum framboðsfundi í Olafshúsi miðvikudaginn 5 apríl, kl 21.00. Frambjóð- endur kynna stefnumál sín, hugmyndir um hinn nýja flokk sem stofnaður verður form- lega í maí, og framtíðarsýn. kenningu fyrir að vera stigahæsti maður liðsins sem og Kristinn Friðriksson sem var stigahæstur innfæddra eyjaskeggja í liðinu. Svavar Birgisson var hins vegar valinn besti leikmaðurinn að mati þjálf- ara. Hjá konunum var Bima Eiríksdóttir valin besti leikmaðurinn, Jill Wilson var stigahæsti leikmaðurinn og Dúfa Dröfn Asbjömsdóttir jxjtti efnilegust. Þeir halda sams konar fundi í hverju kjördæmi vegna formannskosningar. Gestir á fundum frambjóðendanna fá tækifæri til að spyrja um þau mál sem fólki þykir mestu varða. Þá verða íjölmiðlamenn á hverjum stað í hópi fyrirspyrjenda. í upp- hafi flytja formannsefnin stutt ávörp. Össur og Tryggvi á Króknum Ágóðinn af Vinnuvök- unum kemur sér vel í grein um vinnuvökur SSKí síðasta blaði þurfti að fella úr smákafla vegna plássleysis. Þess hefur verið óskað að úr verði bætt og fylgir kaflinn hér á eftir: Til fróðleiks er hér listi yfir ágóðann af vinnuvökunum, hverju sinni, og þau málefni sem styrkt hafa verið. Árið 1982, kr. 28.000 - Hjúkrunar- og dvalarheimilið á Sauðárkróki. 1983, kr. 26.395 - Sónar- tæki fyrir Sjúkrahúsið. 1984, kr. 54.960 - Utan- fararsjóður sjúkra. 1985, kr. 60.680 - Öldrun- amefnd Skagafjarðar. 1986, kr. 71.550-Dvalar- heimilið Sauðárkróki. 1988, kr. 99.000 - Tækja- kaup f. Sjúkrahúsið. 1989, kr. 136.000 - Skóla- heimilið á Egilsá og Sambýlið á Sauðárkróki. 1990, kr. 150.000 - Byggða- safnið í Glaumbæ. 1991, kr. 220.000 - Nátt- úrugripasafnið í Vannahlíð. 1992, kr. 220.000-Tónlist- arskólamir í Skagafirði. 1993, kr. 200.000 - Löngu- mýri. 1994, kr. 220.000 - Sund- laugin við Sjúkrshúsið. 1995, kr. 240.000 - Gmnn- skólamir í Skagafirði, til styrkt- ar handmenntakennslu. 1996, kr. 202.600 - Styrktar- sjóður bama Auðuns Hafsteins- sonar. 1997, kr. 230.000 - Utan- fararsjóður sjúkra. 1998, kr. 264.000 - Björg- unarsveitimar í Skagafirði. 1999, kr. 218.000 - Endur- hæfingarstöðin við Sjúkrahúsið. Gunnlaugur Maron Pétursson Fæcldur 9. desember 1919, dáinn 2. mars 2000 Mágur minn var fæddur að Brekkukoti í Svarfaðardal. For- eldrar hans voru Sigurjóna Jó- hannsdóttir úr Svarfaðardal og Pétur Gunnlaugsson frá Akur- eyri. Maron ólst upp í stómm systkinahópi, en alls vom böm- in 9. Maron nam við bænda- skólann að Hólum í tvo vetur og var síðan einn vetur í íþrótta- skóla hjá Sigurði Greipssyni í Haukadal. Maron kenndi ung- meyjurn að Laugalandi sund, en þar kynntist hann eftirlifandi konu sinni Kristínu Bjamadótt- ur frá Uppsölum í Blönduhlíð. Þau gengu í hjónaband 7. ágúst 1948. Maron vann mörg ár við jarðvinnslustörf. Þá hafði hann aðsetur sitt hjá okkur Víglundi bróður sínum í Ásgeirsbrekku enda átti hann þá jörð. Maron var dagfarsprúður og ljúfur í umgengni. Kristín og Maron fluttu að Ásgeirsbrekku 1959 og bjuggu þar þangað til þau fluttu að Hólavegi 11 á Sauðárkróki 1966 og hafa þau búið þar síð- an. Maron og Kristín eignuðust tvö böm, Bjama Pétur bónda í Ásgeirsbrekku og Sigurlaugu Helgu, búsetta á Sauðárkróki. Bjami Pétur er kvæntur Jómnni Ámadóttur frá Höskuldamesi á Melrakkasléttu og eiga þau fjögur böm: Kristínu, Am- björgu, Valgerði og Friðrik. Sig- urlaug Helga bjó með Jónasi Hallgnmssyni. Þau bjuggu að Helgavatni í Vatnsdal. Þau eign- uðustu þrjú böm: Maron, Þor- gjörgu Óttu og Kristínu. Sigur- laug missti Jónas 1992 en sam- býlismaður hennar nú ér Lúðvík Bjamason frá Hofsósi. Kæri mágur. Ég fel sál þína Guði. Hann leiði þig inn í ríki himnanna, inn í ljósið á þroska- brautina. Ég kveð þig með þökk fyrir öll árin sem við vomm samferða. Kristín mín ég sendi þér og öðmm aðstandendum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Margrét Jónsdóttir f'rá Fjalli.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.