Feykir - 03.05.2000, Side 3
17/2000 FEYKIR 3
Góð þátttaka í Vísna-
keppni Safnahússins
„Einhvemtíma var það, - að
Hjalti Pálsson, þáverandi fram-
kvæmdastjóri Safnahússins,
sem hafði mikinn hug á að end-
urvekja aftur Vísnakeppnina, en
hún hafði legið niðri um nokk-
urt skeið, kom með erindi þessa
efnis inn á fund í Safnahúss-
stjóm, og þótti þar hverjum
manni sem þetta væri hið
þarfasta mál og var gerð um það
samþykkt. Þegar síðan fór að
draga nær Sæluviku hermdi
Hjalti þessa samþykkt upp á
stjómarmenn og sagðist ekki
geta staðið einn að þessari ffam-
kvæmd, og þá fór eins og stund-
um áður, - að þá voru allir
hvergi, - eins og einn ágætur
maður orðaði það. Endirinn var
sá að sá sem hér stendur tók að
sér að vera með Hjalta í því að
fara yfir og velja þá botna og
þær vísur sem verðlauna
skyldi”, sagði Bjöm Bjömsson
skólastjóri í inngangi sínum
þegar úrslit í vísnakeppni Safna-
hússins vom kynnt við upphaf
Sæluvikunnar sl. sunnudag.
Og Bjöm hélt áfram í gam-
ansömum tón: „Og þannig hef-
ur þetta gengið síðan. Hjalti hef-
ur um það bil sem líður að
Sæluviku hringt í mig, látið
skrjáfa í blöðum eins og hann
væri að fletta gamalli fundar-
gerðarbók, og sagt með ábúðar-
mikilli rödd eitthvað á þá leið, ja
það var nú héma samþykktin
okkar í Safnahússstjóminni urn
vísnakeppnina’um árið, sem þú
varst nú mjög meðmæltur, - og
þá man ég að Sæluvikan nálgast
og því er það nú að enn einu
sinni stend ég hér og ætla að
kynna ykkur afrakstur þessarar
árvissu keppni.”
Að þessu sinni vom sendir út
þrír fyrripartar sem hagyrðingar
áttu að glíma við, en auk þess
var lagt fyrir að yrkja vísu um
Drangey. Óvenjugóð þátttaka
var í keppninni og þegar höf-
undanöfn vom skoðuð kom í
ljós að höfundar komu flestir frá
Norðurlandi og spannaði svæð-
ið frá Húsavík til Vestur - Húna-
vatnssýslu, en einnig frá fjar-
lægari stöðum svo sem sunnan
úr Vestmannaeyjum, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Einnig má nefna að ekki ein-
asta vom þátttakendur fleiri,
heldur vom botnamir betri en
oftast áður, og mjög lítið um
efni sem leggja mátti til hliðar,
og sem kæmi ekki til álita, svo
sem íyrir það að ekki væri farið
að bragreglum.
Að mati dómnefndarinnar
þótti besti botninn koma ifá
„Kvisti” og bak við það dul-
nefni reyndist Engilráð Sigurð-
ardóttir á Sauðárkróki.
Vermir sólin völl og mela
vorið er á leiðinni.
Ekki lengur fannir fela
fjalldrapann á heiðinni.
Aukaverðlaun fengu tveir
botnar. „Skrámur” sem reyndist
vera Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd.
Afli er nógur út um sjó,
engir róa drengir þó.
Kerfið lógar frelsis fró,
flestum óar status quo.
Og „Austri” en á bak við það
nafn var Bjami Jóhannsson í
Víðilundi.
Sæluvika sýnir oss,
syndakviku bera.
Alltaf þykir ástarkoss,
yndi mikið vera.
í vísnagerðinni var yrkisefn-
ið Drangey. Þar skám tvær vís-
ur sig áberandi úr að mati dóm-
nefndar. Og hlaut sú sem merkt
var Herra X aðalverðlaun. Bak
við það nafn skýldist Pálmi
Runólfsson frá Hjarðarhaga.
Biskupi tókst björg að signa,
bað um náð sem miklu varðar.
Alltaf verður eyjan tigna
aðalsmerki Skagafjarðar.
Svipmyndir af Skag-
firðingumá Króknum
„Svipmyndir af Skagfirðing-
um” heitir sýning Jónasar Þórs
á Kaffi Krók í Sæluvikunni.
Myndimar em teikningar gerð-
ar með blíanti og kolum af 18
gengnum Skagfirðingum sem
settu mikinn svip á samfélagið á
sinni tíð. Jónas Þór hefur haft á
sér orð að vera slingur teiknari
og bera myndimar á Kaffi Krók
þess merki.
Jónas Þór Pálsson fæddist á
Sauðárkróki 15. aprfl 1930.
Hann er lærður málarameistari
og hefur stundað þá iðn nær allt
sitt líf. Einnig hefur hann tals-
vert fengist við gerð leikmynda
fyrir leikhús og séð um förðun.
Hin síðari ár hefur hann snúið
sér að því að mála myndir og er
þetta þriðja einkasýning hans.
Bjarni Jóhannsson í Víðilundi, annar tveggja seni fékk aukaverðlaun fyrir besta botninn,
Pálmi Runólfsson sem fékk verðlaun fyrir bestu vísuna, Engilráð Sigurðardóttir sem þótti
eiga besta botninn, Ingimar Jóhannsson umboðsmaður Sjává almennra sem gaf
verðlaunin og Björn Björnsson dómnefndarmaður.
Og aukaverðlaunin hlaut Forðum klettahöllin háa, Væntanlega mun síðar biit-
Boggi, Kristján Amason á hungrað metta náði lið. ast í Feyki sérstakur þáttur um
Skálá. Nafnið Grettis, kappans knáa, vísnakeppni Safnahússins.
er knýtt og fléttað eyna við.
Föstudagur
SÆLUTILBOÐ
Steiktur kjúklingur kr. 498
Franskar kartöflur fylgja
kr. 98 kg. kr. 98 kg. kr. 98 kg.
Óskum Skagfirðingum
góðrar skemmtunar á Sœluviku