Feykir - 03.05.2000, Side 5
17/2000 FEYKIR 5
Þegar vel brugguð
launráð duga ekki
Sú var tíðin að flökkufólk og
förumenn fóru um Skagafjörð
sem önnur hémð í landinu. Ekki
er þekkt að mikið hafi verið am-
ast við þessum mönnum en víst
er að ekki voru þeir allsstaðar
auðúsugestir, að minnsta kosti
ekki á þeim heimilum sem þeir
gerðu langan stans, jafnvel svo
vikum ef ekki mánuðum skipti.
Kannski var það af meðfæddri
manngæsku og hjartahlýju
landans að ekki voru brugguð
ráð til að koma slíkur gestum af
bæ, því trúlega hafa þeir oft
reynt á þolrif heimilisfólks.
Það má kannski segja að
svipaðir hlutir séu að gerast á
fjölum félagsheimilisins Bifrast-
ar um þessar mundir. Þar kemur
óboðinn gestur mikið við sögu í
Sæluvikustykki Leikfélags
Sauðárkróks. Það er kannski út
í hött að mörgu leyti að líkja
honum við förumennina gömlu,
því stfllinn er allt annar og upp-
átæki hans ákaflega nútímaleg.
Hann er sem sagt uppáþrengj-
andi þessi náungi svo um mun-
ar, en mjög skemmtileg „típa”
eins og það heitir á nútíma ís-
lensku.
Það er þessi „nær öldungis
ruglaði drengur” sem er beina-
grindin í þessari sýningu LS,
N.Ö.R.D. Hér er á ferðinni
mjög skemmtilegt leikverk,
tæknilega góð leikflétta, reynd-
ar þegar öllu er á botninn hvolft,
sáraeinföld, eins og allar snjall-
ar leikfléttur. Og þeir sem hafa
gaman af hamagangi og húmor,
ættu endilega að leyfa sér að
skreppa í Bifröst eitt kvöld og
hlæja fyrir vikuna. Þetta er
þannig stykki.
Enn er Leikfélag Sauðár-
króks að gera góða hluti. Leik-
stjórinn Guðjón Sigvaldason og
leikhópurinn ásamt aðstoðar-
fólki hafa þama gert góða sýn-
ingu. Það þýðir með öðmm orð-
um að vel er leikið og umgerðin
góð. Styrmir Gíslason fer á
kostum í hlutverki Nördsins.
Guðbrandur Guðbrandsson og
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
em mjög sannfærandi í sínum
leik og einnig komast þau vel
frá sínu Sigurður Freyr Emils-
son og Unnur Eygló Bjamadótt-
ir sem Waldgraw hjónin. Sonur
þeirra, sem leikinn er af Amari
Þór syni Sigurðar, er haldinn
mátulegri ofvirkni, og síðast en
ekki síst mætir þama nýr leikari
á sviðið í Bifröst, Sigurður
nokkur Halldórsson. Og af til-
burðum hans að dæma þá virð-
ist sem þessi maður sé alvanur
leikari, a.m.k. leikur hann
skemmtilega.
- En sem sagt. Það er ekki til
einskis fyrir Leikfélag Sauðár-
króks að setja upp sýningar þar
sem kannski skemmtanagildið
er sett ofar „listgræna” gildinu
svokallaða og umdeilda. Og ef
þú hefur gaman af því að hlæja
áhorfendi góður, þá ættirðu
endilega ekki að sleppa því að
sjá Nördinn í Bifröst.
Þama er það bara þetta eina
kvöld. Lagahöfundamir sjá sitt
lag í þeim búningi sem því er
búð með ljósum og fíneríi, og
áhorfendumir koma til að sjá
þessa skemmtun, sem er ekkert
annað en „sjóv” og nema
stemmningu augnabliksins.
Það er margt jákvætt við
dægurlagakeppnina og ég
mundi segja að það væri mikil
byggðastefna í þessu framtaki
Kvenfélags Sauðárkróks. Mér
finnst líka gott að ég sé greini-
leg merki þess að metnaðurinn
í keppninni er sífellt að aukast.
Þetta skapar ungu fólki hér á
svæðinu líka aukna möguleika
að koma fram og spila og
syngja og verður áreiðanlega til
þess að skapa okkur hæfari
flytjendur þegar fram í sækir.
En það er ekki nóg með það
að margir leggist á eitt við að
.undirbúa lögin og keppnina
sjálfa. Þegar komið er að því að
standsetja íþróttahúsið, sem er
eina húsið hér um slóðir sem
getur tekið við keppninni, þá
þurfa líka marga hendur að
leggjast á eitt.
Óg síðan em það Skagfirð-
ingar sem með þátttöku sinni,
með því að mæta á úrslita-
kvöldið, sjá til þess að áfram-
hald verði á þessari skemmti-
legu keppni, en ég held ég geti
lofað því að sjálfsagt verður
kominn tími á það að fá nýjan
hljómsveitarstjóra eftir þessa
keppni. Þó þessar síðustu tvær
keppnir og sú sem haldin var
1997, hafi verið skemmtilegur
reynslutími fyrir mig.
Að síðustu vil ég um leið og
ég þakka kærlega öllum þeim
sem ég hef haft samvinnu við,
kannski fá að koma þeirri vin-
samlegu og hvetjandi ábend-
ingu til ökumanna varðandi
umferðarmenninguna á föstu-
daginn kemur, þegar úrslita-
keppnin fer fram, að ég hef
ákveðið að stýra ekki ökutæki
þennan dag, eftir reynsluna ffá
síðasta ári, en þá var ég svo
gjörsamlega út á þekju við und-
irbúning keppninnar, að ég olli
hörðum tveggja bfla árekstri á
mesta umferðarhomi bæjarins
og var stálheppinn að ekki urðu
slys á fólki þar á meðal mér.
Eftir keppnina um kvöldið varð
ég reyndar þess var að ég hafði
fengið gat á höfuðið”, sagði Ei-
ríkur Hilmisson að endingu.
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Styrmir Gíslason í hlutverkum sínuni. Mynd/Sveinn Hj.
Leikfélag Sauðárkróks sýnir í Sæluviku
SPRENGhlægilegur gamanleikur eftir Larry Shue
Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason
Næstu sýningar:
Fimmtud. 4. maí kl. 20.30
Laugard. 6. maí kl. 15.00
Sunnud 7. maí kL. 20.30
Miðvikud. 10. maí kl. 20.30
Miðapantanir í s: 453 5727
milli kl. 18 og 20
Leikfélag
Sauðárkróks