Feykir


Feykir - 17.05.2000, Síða 1

Feykir - 17.05.2000, Síða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Betur fór en áhorfðist í óhappi er átti sér stað við Vesturós Héraðsvatna sl. föstudag. Ökumaður dráttarvélar, á leið úr Hegranesinu, varð fyrir því að missa skyndilega niður gál- gann á ámoksturstækjum vélarinnar. Framendi vélarinnar lyftist upp, nokkuð magn af glus- sa spýttist á veginn, og vélin snérist stjórnlaus á veginum og rann undan hallanum út af veg- kantinum og líklega hefur það orðið til happs að vélin stöðvaðist nánast á bakka Vatnanna, að vagn aftan í henni dró nokkuð úr ferðinni. Vel gekk að koma vélinni upp á veg að nýju. Framkvæmdir hjá Kaupfélagi Skagfirðinga Úrbætur á sláturlínu og nýtt bílaverkstæði Á aðalfundi Kaupfélags Skagfirðinga fyrir nokkru kom fram að helstu fram- kvæmdir hjá félaginu á þessu ári verði endurbætur á aðstöðu til sauðíjárslátrunar í sláturhúsi félagsins og stefnt sé að því að hefja byggingu nýs bílaverkstæðis er rísi á nærliggjandi lóð sunnan raf- magnsverkstæðis í iðnaðar- hverfinu. Lengi hefur nokk- uð verið á reiki hvað varðar ákvörðun um byggingu bfla- verkstæðis en á fundinum kom fram að nú Iægi fyrir ákvörðun um að ráðist yrði í þessa framkvæmd. Á fundinum var nefnt að áætlað væri að 20-25 milljónir króna fæm í endurbætur slátur- línunnar, en þar sem hönnun bflaverkstæðis væri ekki lokið, sé ekki ljóst hvað sú fram- kvæmd muni kosta. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri sagði að menn væm þó ekki að tala um eins dýra og mikla fram- kvæmd og áður var uppi á teikniborðinu. Stefán Guðmundsson stjóm- arformaður KS sagði ljóst að ekki yrði lengur hjá því komist að bæta aðstöðuna við bflavið- gerðirnar. Það væri ekki hægt að bjóða iðnaðarmönnum það að vinna við stærri bifreiðir þyrftu að hluta að fara fram utan dyra í hvaða veðri sem er allan ársins hring. Grásleppuveiði frá Haganesvík Fjórar trillur gerðar út og veiðin góð Fjórar trillur em gerðar út á grásleppuveiði frá Haganesvík nú í vor og em það sömu aðilar og stundað hafa veiðamar undanfarin vor. Veiðin á ár fór nokkuð vel af stað og er útlit á að afrakstur geti orðið bæri- legur. Vegna lágs verðs á grá- sleppuhrognum em karlamir með mun fæiri net í sjó en undanfarin ár og segjast ekki sækja veiðamar nema af hál- fum krafti miðað við það sem áður tíðkaðist. Skömmu eftir að vem'ðin hófst var grafið frá bryggjunni í Haganesvík. Þarf að ráðast í það verk a.m.k. annaðhvert ár til að trillumar geti legið við bryggj- una. Árlega skolar miklum sandi og möl að bryggjunni og því er nauðsynlegt að dýpka við hana, að öðrum kosti myndu bátamir standa á þurru við bryggjuna þegar lágsjávað er. Af grásleppuveiðinni er það að frétta að aflabrögð hafa verið ágæt þetta vorið. Skagabændur em til að mynda að gera sína bestu vertíð í mörg ár. Þar em tvö úthöldin komin yfir fimmtíu tunnur og aðrir um og yfir þrjátíu, sem þykir ágæt veiði. Flöskuskeyti finnst á Skaga Flöskuskeyti fannst á Skaganum 8. maí sl. Ámý Ragnarsdóttir húsfreyja á Mallandi fann það á sjávar- bakkanum við veginn að fjár- húsunum. Var það í plast- flösku undan ávaxtasafa og orðið mjög máð þannig að ógjömingur reyndist að lesa það sem á því stóð, en Unnar Ingvarsson á Héraðsskjala- safni Skagfirðinga gat með sínum aðferðum framkallað letrið og reyndist flöskuskeyt- ið vera frá breskum manni. Var það sett út við strendur Noregs 6. ágúst 1998 líklega úr skemmtiferðaskipi. I skeytinu var beðið um að Ámý Ragnarsdóttir á Mal- landi með flöskuskeytið. finnandi mundi tilgreina hvar og hvenær skeytið kæmi í leit- imar og Árný kveðst ætla að svara þó svo að heimilisfang sendandans sé frekar ógreini- legt. „Það er gaman að þessu, en þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem flösku- skeyti finnst á Mallandi. Tengdasonur minn fann eitt fyrir 10-12 árum en ég held að hann hafi ekki gert neitt með það”, sagði Ámý. Svo virðist sem nokkuð sé um að sendingar sem þessar komi á Skagann. Þannig fann Rögnvaldur bóndi á Hrauni flöskuskeyti skammt frá vit- anum nokkru fyrir 1990. Reyndist það skeyti vera alla leið frá Nýja - Sjálandi. —chíDI— Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Æa bílaverkstæði simi: 453 5141 Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6J40 JfcBílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir " Réttingar ^ Sprautun

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.