Feykir - 17.05.2000, Page 3
19/2000 FEYKIR 3
Sjöundi bekkur Árskóla
Vill að farið verði
að flokka sorpið
Krakkarnir í 7. bekk Ár-
skóia á Sauðárkróki hafa
unnið að verkefnum tengdum
umhverfismálum og sorp-
hirðu að undanförnu. Hafa
þau komist að þeirri niður-
stöðu að endumvting og end-
urvinnsia er nánast engin í
sveitarfélaginu. Þau vilja að
úr þessu verði bætt hið bráð-
asta og afhentu forsvars-
mönnum sveitarfélagsins á-
skorun í síðustu viku. Herdís
Sæmundardóttir formaður
bæjarráðs þakkaði þennan á-
huga krakkanna og lofaði að
koma crindinu tii réttra aðil-
ar, en vilji væri innan sveitar-
stjórnarinnar að gera vel í
umhverfís- og sorphirðumál-
unum.
„Lítil flokkun virðist vera í
sorpi. Sú litla flokkun sem á
sér stað er nánast eftirlitslaus.
Það er okkar einlæga ósk að
bæjaryfirvöld setji upp flokk-
unarstöð með starfsmanni og
bæjarbúum verði leiðbeint um
framkvæmd á sorpflokkun.
Kannaðir verði allir hugsanleg-
ir möguleikar á endurvinnslu
og endumýtingu á sorpi. T.d. er
hægt að framleiða tréspæni
sem nota má í göngustíga og
blómabeð. Sem betur fer höf-
um við aðeins nýtt tréspæni
hér, en betur má ef duga skal.
Endurvinnsla og endumýting á
pappír verður meiri og meiri í
heiminum. Má þess geta að
með hverju tonni endurunnins
pappírs sparast fímm og hálft
skógartré. Hægt er að nýta líf-
rænan útgang sem kemur frá
heimilum þar á meðal garðaúr-
gang til að búa til mjög góða
gróðurmold. Einnig má nýta
garðaúrganginn einan og sér
sem uppfyllingarefni.
Við komum til með að erfa
þetta land og viljum leggja
okkar að mörkum til að það
megi vera hreint og ómengað
þegar næstu kynslóðir taka við
þvf’, segir í áskorun 7. bekkjar
Árskóla. Og vitaskuld tóku
fulltrúar sveitarstjómar vel á
móti krökkunum og var þeim
boðið upp á hressingu eftir
þessa kiöfugöngu á Faxatorgið.
Byggðastofnun opnar
vefsíðu á vefnum
Byggðastofnun hefur að
undanfömu unnið að þróun
vefsíðu fyrir fjarvinnslu og var
hún opnuð formlega af iðnaðar-
ráðherra nýlega. Þessi vefsíða
er ætluð þeim aðilum sem hafa
hugsað sér að starfa við fjar-
vinnslu og einnig þá sem þurfa
að láta vinna verkefni fyrir sig.
Hugbúnaðarfyrirtækið
Snerpa á Isafirði hefur annast
uppsetningu vefsfðunnar. Hér
er um að ræða eins konar mark-
aðstorg, þar sem fyrirtæki sem
hafa hug á að taka að sér fjar-
vinnsluverkefni og aðilar sem
hafa hug á að nýta sér slíka
þjónustu geta skráð sig. í
grunninum yfir verksala er
hægt að skrá allar helstu upp-
lýsingar um hvert fyrirtæki, svo
sem nafn, póstfang, síma, fjölda
starfsmanna og verkefnasvið. í
grunninum yfir verkkaupa set-
ur aðili sem óskar eftir þjónustu
inn nokkurs konar auglýsingu
um það verk sem hann óskar
eftir tilboðum í. Auglýsingin
þarf að innihalda upplýsingar
um verkefnið og hæfniskröfur
til verksala.
Á vefsíðunni er að finna
upplýsingar um það hvað er í
boði ásamt skilmálum varðandi
skráningu á vefinn, skráningar-
kerfi fyrir aðila til að geta feng-
ið afhent lykilorð og fært inn í
gmnninn, gagnvirk skráninga-
blöð annarsvegar fyrir verksala
og hins vegar verkkaupa og
leitarvél fýrir gagnagrunninn,
sem leitar eftir orðum í gagna-
safninu.
Slóðin inn á vefsíðuna er
www.fjarvinnsla.is, en einnig
verða tengingar inn á síðuna af
heimasíðu Byggðastofnunar
www.bygg.is og Iðntæknistofn-
unar www.iti.is. Leitað verður
eftir tengingum af heimasíðum
fleiri aðila. Nánari upplýsingar
um vefsíðuna em veittar á Þró-
unarsviði Bvggðastofnunar á
Sauðárkróki.
Auglýsing í Feyki
ber árangur
Fulltrúi 7. bekkinga Ies áskorunina fyrir þau Herdísi Sæmundardóttur formann byggðaráðs
og Gísla Gunnarsson forseta sveitarstjómar Skagaijarðar.
Trélistasýning var í Safnahúsinu í Sæluvikunni, þar var m.a. til sýnis útskorinn kistill af
Bólu-Hjálmari, sem Þjóðminjasafnið lánaði á sýninguna og var keyptur til landsins frá
Danmörku. Það sem vakti þó mesta athygli, stærðar sinnar vegna á sýningunni, voru raftar
úr gömlu Emunni og munir sem þeir ,Jobbar“ og frændur, Svavar Jósepsson og Óiafur
Þorbergsson hafða rennt og skorið út með tækjum sínum og tólum. Það er Unuar Ingvarsson
forstöðumaður Safnahússins sem heldur í raftinn að beiðni ljósmyndara Feykis.
Hofsós 2000 Helgina 14.-16. júlí
„Hofsósingamót“ í sumar....
Hofsósingar, vinir og vandamenn með fortíðarþráhyggju ætla
að liittast á Hofsósi helgina 14-16 júlí í sumar.
Mætum öll með íjölskyldu og vini og eigum góða helgi
saman.
Ýmsar uppákomur s.s. ball og boltaleikir, veiði, útigrill og
margt fleira.
PS. vinsamlegast látið sem flesta vita.
Nánar auglýst síðar.
Upplýsingar hjá Björgvin Guðmundssyni í síma 453 5609
eða 852 6667.