Feykir - 17.05.2000, Qupperneq 8
17. maí 2000,19. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Bvggðasafnið á Revkium
Síðasta aftakan sýnd
í Hillibrandtshiisinu
Byggðasafn Húnvetninga og
Strandamanna stendur í sumar
fyrir athyglisverðri sýningu í
Hillebrandtshúsinu á Blönduósi.
Sýningin fjallar um síðustu af-
töku á íslandi og refsingar á Is-
landi allt frá þjóðveldisöld.
Höggstokkurinn og öxin sem
notuð voru við aftökuna á Þrí-
stöpum við Vatnsdalshóla 12.
janúar 1830 og fleiri munir
verða fengnir að láni frá Þjóð-
minjasafninu og áætlað að sýn-
ingin standi uppi í tvo mánuði,
frá miðjum júní.
Pétur Jónsson forstöðumað-
ur Byggðasafnsins á Reykjum,
sem tók við starfmu nú í vor, er
einmitt af Vatnsnesinu þar sem
þeir voveiflegu atburðir gerðust
sem leiddu til síðustu aftökunn-
ar, þegar Natan Ketilsson og
Pétur Jónsson voru myrtir og
síðan borinn eldur að líkunum
og Illugastaðabænum.
Aðspurður hversvegna Hil-
lebrantshús hafi orðið fyrir val-
inu fyrir sýninguna, sagði Pétur
að það hentaði mjög vel til þess,
auk þess að það væri í þjóðbraut
þverri og búast mætti við að
þessi sýning vekti forvitni
margra. Pétur segir að sýningin
byggist upp á tveimur þemum,
síðustu aftökunni og refsingum
fyrri alda. Pétur segir að refsing-
ar hafi harðnar með tilkomu
Jónsbókar, lagabókar sem út var
gefin 1281.
Samstaða gerir fjölda
vinnustaðasamninga
Verkalýðsfélagið Samstaða í
Húnavatnssýslum attýsti
verkfalli sem heíjast átti að-
faranótt mánudagsins 15.
maí. Þetta var gert í ljósi þess
að vinnuveitendur á félags-
svæðinu hafa tekið vel í gerð
vinnustaðasamninga, en fé-
lagið hefur að undanförnu
gert um 30 vinnustaðasamn-
inga ásamt skriflegu sam-
komulagi um gerð fleiri slíkra
fyrir ákveðinn tíma.
Þessir samningar fela það í
sér að lágmarkskaup losar 100
króna mánaðarlaun í lok
samningstímans, 2003. Telur
Valdimar Guðmannsson for-
maður Samstöðu þetta betri
samninga en VMSI samningana
en þama munar sjö þúsund
krónum i lok samningstímans.
Fundur í samninganefnd
Samstöðu sem haldinn var sl.
fimmtudag, lýsti yfir miklum
vonbrigðum með að ekki
skyldi takast að fara fram með
sameiginlega kröfu ófaglærðra
starfsmanna hjá þeim stéttarfé-
lögum sem aðild eiga að ASI
eins og Samstaða lagði til áður
en farið var í viðræður við
Samtök atvinnulífsins í vetur.
„Fomsta hreyfingarinnar
skuldar verkafólki skýringu á
þeirri ákvörðun sem leitt hefur
af sér mun lélegri kjarasamn-
inga til handa þeim lægst laun-
uðu í landinu en væntanlega
hefði mátt ná með samstilltu á-
taki”, segir m.a. í ályktun fund-
arins.
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
islands
í forystu til framtíðar
Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353
Eins og fram kom í frétt í Feyki í vetur efndu frönskunemendur í FNV til samskipta og gagn-
heimsókna við nemendur í skóla í mið - Frakklandi og færðu skólamir á leiksvið þjóðsögur.
Frönsku nemendumir endurguldu heimsóknina nú á dögunum og m.a. var efnt til veislu sem
foreldrar frönskunema í FNV stóðu fyrir. Þar svignuðu borð undan kræsingum.
Skagstrendingur eykur
eignarhlut sinn í Nasco
Gengið hefur verið frá kaup-
um Skagstrendings hf. á aukn-
um hlut í Nasco ehf. Þar með er
Skagstrendingur orðinn stærsti
hluthafinn í félaginu. I janúar á
þessu ári gengu Skagstrendingur
og Burðarás hf. frá kaupum á
25% hlut í Nasco. Þá var samið
um kauprétt á 26% til viðbótar
sem nýir eigendur hafa nú nýtt
sér ásamt kaupum á 10% hlut
fyrri eigenda.
Af hálfu nýrra eigenda hefur
verið horft til þeirra veiðiheim-
ilda sem Nasco býr yfir utan ís-
lenskrar fiskveiðilögsögu og
möguleikum til þess að auka
þær veiðiheimildir í framtíðinni.
Nasco var stofnað árið 1995
af Agli Guðna Jónssyni og eigin-
konu hans, Huldu Þorbjamar-
dóttur. Starfsemi félagsins hefur
byggst á þremur þáttum: útgerð,
rækjuvinnslu, afurðasölu og
miðlun hráefnis.
Vöxtur Nasco hefur verið
hraður og á skömmum tíma hef-
ur félagið náð þeim árangri að
vera stærsta fyrirtækið í útgerð
og miðlun á rækju á Islandi.
Velta samstæðunnar árið 1999
var rúmlega 4 milljarðar. Aætl-
anir gera ráð fyrir að veltan auk-
ist um 10-15% á þessu ári. Nasco
tengist útgerð 9 rækjufrystiskipa
á Flæmingjagrunni við Kanada
og í Barentshafi sem veiða á
veiðileyfum sem fengin eru fyrir
millgöngu Nasco. Af þessum 9
skipum em 3 í eigu Nasco.
Sölustarfsemi Nasco hefur í
megindráttum verið tvískipt,
annars vegar miðlun á iðnaðar-
rækju til rækjuvinnslna innan-
lands sem erlendis og hins vegar
sala á soðinni og pillaðri rækju
ásamt sölu á skelrækju frá skip-
um tengdum Nasco. Félagið
rekur fullkomna rækjuvinnslu í
Bolungarvík, áður Bakki hf, sem
er með vinnslugetu upp á um 12
þús. tonn á ári.
Náið samstarf hefur verið
milli Skagstrendings og Nasco
undanfarin misseri um útgerð
rækjufrystiskipa og hráefnisöfl-
un til rækjuvinnslu Skagstrend-
ings á Skagaströnd. Samstarfið
við Nasco hefur verið hagfellt
fyrir Skagstrending, og m.a. gert
félaginu kleift að verjast þeim
aðstæðum sem skapast hafa
vegna aflabrests á heimamiðum.
Af 2,4 milljarða króna veltu
Skagstrendings á árinu 1999 var
rúmur milljarður úr veiðum og
vinnslu á rækju. Skagstrending-
ur kemur að útgerð tveggja
rækjufrystiskipa í samstarfinu
við Nasco og afla þau stærstum
hluta þess hráefnis sem unnið er
í rækjuvinnslu Skagstrendings.
...bílar, tiyggngai-,
bækur, ritföng,
framköllun, ranunar,
tímailt, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYBcJARS
SUÐURGÖTU 1 SÍMI 4S3 5950