Feykir


Feykir - 31.05.2000, Qupperneq 1

Feykir - 31.05.2000, Qupperneq 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Guðni með hnakkinn góða ásamt starfsfóiki Hestsins. Honum á vinstri hönd eru næst eig- endur fyrirtækisins Hannes Friðriksson og Þórdis Jónsdóttir. „Það verður stoltur reiðmaður sem heldur héðan úr héraði“ sagði landbúnaðarráðherra er starfsfólk Hestsins gaf honum hnakk Ársreikningur sveitarfélagsins Skagafjarðar Skuldir lækka litið þrátt fyrir sölu eigna Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra fór aldeiiis ekki tómhentur heim úr for sinni til Skagaijarðar nú fyrir hclgina. Þá heimsótti hann ýmsa staði er tengjast landbúnaðinum í héraðinu, en á söðlasmíðastof- unni Hestinum færði starfs- fólkið ráðherranum forkunn- arfallegan hnakk, úr hlýra- fiskleðri, og er það sá eini í heiminum sem \ itað er um úr slíku efni, en fiskroð er sútað á Króknum. Mikill undrunar- svipur kom á ráðherrann en hann þakkað fyrir sig á viðeig- andi hátt: „Góðar eru gjafir ykkar en meira finnst mér samt um þann hug og vináttu sem að baki býr. Það verður stoltur reiðmaður sem heldur héðíin úr héraðf’, sagði Guðni í ávarpi til starfsfólksins. Hannes Friðriksson fram- kvæmdastjóri Hestsins sagði þegar hann afhenti Guðna hnakkinn að starfsfólkið væri á einu máli um að ráðherrann ætti það inni hjá Skagfirðingum að fá smá þakklætisvott fyrir fram- göngu sína í málum þeim til handa. Síðan yrði ráðherran nátt- úrlega að hafa eitthvað vemlega veglegt undir sér í hópreiðinni á landsmótinu í sumar. Það var vitaskuld afgreiðsla ráðherrans á Hestamiðstöð Is- lands í Skagafjörð sem Hannes í Hestinum vék þama að, en fyrir það mál er Guðni án ef langvin- sælasti ráðherrann í Skagafirði. Móttökumar vom líka góðar sem hann fékk hvar sem hann kom. Guðni byrjaði daginn á að heim- sækja starfsfólk Búnaðarsam- bands Skagfirðinga og eftir að hafa heimsótt Hestinn, var litið við hjá Sveini Guðmundssyni og stóð hans skoðað. Þá vom þau Ingibjörg og Sigurður mjólkur- bændur í Vík heimsótt og ráð- herrann fór einnig í kaffi til þess þekkta hestafólks Skafta og Hild- ar á Hafsteinsstöðum. Þannig bám Skagfirðingar landbúnaðar- ráðherra á höndum sér þegar hann kom í heimsókn. Skuldir sveitarsjóðs Skaga- fjarðar lækkuðu einuugis um 28 milljónir á síðasta ári þrátt fyrir sölu hlutabréfa í Fiskiðj- unni að nafnvirði 180 milljónir. Skuldimar voru samkvæmt ársreikningi síðasta árs 1.327 milljónir í stað 1355 árið á undan. Ársreikningurinn kom til fyrri umræðu í sveitar- stjóm Skagafjarðar í gær. Minnihlutinn gagnrýndi að fjárhagsáætlun stæðist ekki í flestum málaflokkum, þannig hefði Ld. verið áætlað að rekstur- inn skilaði 60 milljóna afgangi en niðurstaðan hefði orðið tap upp á 34 milljónir. Þannig væri peningaleg staða sveitarfélagsins slæm þrátt fyrir sölu eigna, og útlitið ekki bjart svo sem í ljósi þess að það hefði sýnt sig að rekstur málaflokka væri sífellt að verða hærrra hlutfall af tekjum sveitarfélagsins. Ingibjörg Haf- stað oddviti Skagafjarðarlistans sagði alveg ljóst að sveitarfélag- ið Skagfjörður væri í verulegum vanda og ekki yrði undan því vikist að taka á fjármálum sveit- arfélagsins með öllum tiltækum ráðum. Snorri Bjöm Sigurðsson sveitarstjóri sagði að þegar fjár- hagsáætlun var gerð á sínum tíma hefðu ekki legið fyrir nægj- anlega traust gögn til að byggja áætlunina á, enda þá skammt lið- ið frá sameiningu. Snorri viðraði stöðu sveitarfélagsins og sagði ljóst að á fjárhagsstöðunni yrði að taka og til þess væru ýmsar leiðir, og þar væri vænlegast til árangurs að skoða sölu eigna, en einnig yrði að vinna að því eins og kostur er að lækka það hlut- fall sem málaflokkamir em orðnir í rekstrinum. Herdís Sæmundardóttir for- maður byggðaráðs kvaðst geta tekið undir margt af því sem sagt hafi verið, og það væri alveg ljóst að á þessum vanda yrði að taka og „spamaðamefndin” svo- kallaða mundi skila tillögum í því efni síðsumars. Brynjar Pálsson sagði umræðuna þmngna svartsýni og þegar fjallað væri um skuldirnar þá gleymdu menn eignunum. Brynjar sagði að vissulega væri sveitarfélagið skuldugt en það ætti lika miklar eignir á móti. Þar mætti t.d. verðlegga veitumar á milljarð, hlutabréfin í Steinull- inni fyrir vemlegar upphæðir og þannig mætti áfram telja. Landsvala á Svölur em mjög sjaldséðir fuglar hér á landi, enda heimkynni þeina í heitaii löndum. Landsvala ein hefur sést á ferli á Sauðárkróki að undanfömu og er talið að hún hafi borist hingað til lands með sunnanáttunum í vor. Svalan hefur sést á flugi sunnan í Nöfúnum og stundar þar sínar flugnaveið- ar. Hún birtist gjaman um hádegisbilið og er að veiðum um sex tíma á dag. Halldór Gunnlaugsson kennari og vistarvörður við Fjölbrautaskólann Sauðárkróki sagðist fyrst hafa orðið var við fuglinn eftir fyrra norðanhretið á dögunum, þá flögrandi sunnan í Nöfunum. Hann sagðist strax hafa haft samband við Náttúmfræðistofnun, enda alveg viss á því að hér væri um svölu að ræða, þekkti hana frá náms- ámm sínum í Danmörku þar sem hann bjó um tíma. „Þetta er fremur lítill fugl, heldur minni en skógarþröstur, mjög mjósleginn að framan og flýg- ur mjög hratt’', segir Halldór Gunnlaugsson. —ICTcH^íff chjDI— Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 •ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA jm bílaverkstæði simi: 453 5141 Sæmundorgata Jb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 jfcBílaviðgerðir ÍJ- Hjólbarðaviðgerðir ) Réttingar # Sprautun

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.