Feykir - 07.06.2000, Blaðsíða 7
21/2000 FEYKIR 7
Rauði Krossinn stóð nýlega fyrir bamfóstrunámskeiði á Sauðárkróki fyrir 11-14 ára krak-
ka. Mjög góð þátttaka var í námskeiðinu, rúmlega 30 tóku þátt, og skipta varð í tvo hópa, en
alls stóð námskeiðið í 16 kennslustundunum. A myndinni eru verðandi barnfóstrur ásamt
leiðbeinendunum Sigríði Stefánsdóttur leikskólakennara til vinstri og Guðrúnu Jóhanns-
dóttur hjúkrunarfræðingi til hægri.
Tindastóll fær Skagamenn heim
Tindastóll sigraði KS 1:0 í
undanúrslitum Bikarkeppni KSI í
fyrrakvöld. Markið kom eftir
þunga sókn upp úr miðjan fyrri
hálfleik og var það Joseph Searsh
sem renndi boltanum yfir línuna
eftir að vamarmaður KS féll í
teignum. Hvatarmenn léku gegn
Þór á Akureyri og töpuðu 0:5.
Dregið var í 32-liða úrslit í gær og
fá Tindastólsmenn Skagamenn á
Krókinn í næstu umferð. Sem
sagt tilhlökkunarefni fyrir knatt-
spymuáhugamenn hér um slóðir,
en leikurinn fer fram um miðja
næstu viku.
Tindastóli hefur ekki gengið
alltof vel í deildinni til þessa, er
nú með tvö stig í 8. sætinu ásamt
Sindra. Tindastóll gerði jafntefli í
síðasta leik við KA á Akureyri.
Kristmar Bjömsson kom liðinu
yfír um miðjan seinni hálfleik, en
KA-menn náðu að jafna tíu mín-
útum síðar. Tindastóll mætir í
næstu umferð FH-ingum og fer sá
leikur fram á Króknum nk. föstu-
dagskvöld.
Siglfirðingar hafa unnið tvo
síðustu leiki sína í 2. deildinni eft-
ir að hafa tapað í fyrstu umferð
vestur á Isafirði. KS vann Selfoss
2:1 á Siglufirði og Léttismenn
síðan með sömu markatölu syðra.
Hvatarmenn hafa gert tvö jafntefli
í 3. deildinni, gegn Nökkva og
Magna, en Neistamenn töpuðu
sínum iyrsta leik í deildinni þegar
Völsungar komu í heimsókn á
Hofsós sl. föstudagskvöld. Loka-
tölur í jöfnum leik urðu 0:1.
Sigurjóns. Það var vegna þess,
að menn vissu, að hann gat
engum neitað. í öðm lagi vegna
þess, að enginn skilaði stærra
dagsverki en hann.”
„Ber er hver að baki nema
sér bróður eigi.” Og víst er um
það að Sigurjón stóð aldrei
einn. Móðir hans var fyrir inn-
an hjá honum allt þar til hann
kvæntist. María á Dýrfmnu-
stöðum var mikil kona og
merk. prýðisvel greind. bráð-
lagin til allra verka og hörku-
dugleg. Systkini Sigurjóns tóku
snemma til hendinni og unnu
heimilinu af miklum dugnaði
meðan þau gátu. Svo tíndust
þau í burtu eitt og eitt og reistu
sín eigin heimili. Það er lífsins
saga.
Eins og áður sagði kvæntist
Sigurjón 1963. Sigga á Dýr-
finnustöðum, en svo var hún á-
vallt kölluð, var manni sínum
prýðis lífsförunautur. Stór-
myndarleg húsmóðir og hörku-
dugleg til allrar vinnu, gestrisin
og góð eiginkona. Sá sem þetta
skrifar átti margar ánægju-
stundir með þeim ágætu hjón-
um á heimili þeirra og jafnan
fór sá glaðari heim sem að
garði kom. Slíkra er gott að
minnast og dýrmætt að eiga að
vinum.
Sigurjón á Dýrfinnustöðum
verður öllum minnisstæður er
honum kynntust, sakir mann-
kosta hans og atgerfis til líkama
og sálar. Eins og að framan seg-
ir var hann hörkuduglegur til
allrar vinnu, bráðlaginn, útsjón-
arsamur og stál heiðarlegur.
Hann hafði yfirburða greind,
vel lesinn og fjölfróður. Hann
var hagorður ágætlega, hafði
gaman að binda saman orð sín
og hugsanir og tókst það oft
með ágætum vel. Hann var
skapntaður mikill, en tókst vel
að hemja skap sitt, enda maður-
inn stilltur að eðlisfari, prúður
og samvinnuþýður. I engu vildi
hann vamm sitt vita, tryggur
vinur, en ekki allra viðhlæjandi.
Hann bjó aldrei stórt, hafði
aldrei margt á fóðrum. en átti
ævinlega nægt fóður og var oft-
ast nær aflögufær um hey. Fjár-
málamaður var hann meir en í
meðallagi, glöggur og úrræða-
góður um alla útvegun. Sigur-
jón bar mikla persónu, var því
jafnan í forystuhlutverki á
gleðifundum. Þótt segja mætti.
að stundum væri Bakkus karl-
inn dýrkaður bæði fast og helst
til lengi, gleymdi Sigurjón
aldrei skyldunt sínum og stóð
jafnan eftir sem sigurvegari.
I fáeinum kveðjuorðum
verður saga Sigurjóns á Dýr-
finnustöðum ekki rakin, heldur
stiklað aðeins á stöku stein.
Saga hans er eins og annarra ís-
lenskra bænda greift í þjóð-
arlíkamanum, ávöxtur og at-
orka kynslóðarinnar sem er og
verður.
Eg hitti Sigurjón vin minn
daginn áður, en hann kvaddi
þetta jarðneska líf. Við kvödd-
umst þá með óskum um endur-
fundi að fáeinum dögum liðn-
um, en enginn veit sína ævina
fyrr en öll er, og h venær sá dag-
ur kemur, að við fáum að hittast
á ný, ræður Guð einn. En eitt er
víst, þá verður gleðifundur.
Eg votta eftirlifandi eigin-
konu hans og dóttur ásamt öðr-
um ættingjum og vinum mína
innilegustu samúð og bið Guð
að blessa okkur minningu góðs
vinar.
Gísli Víðir Björnsson
frá Framnesi.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu 4 lítið notuð heils-
ársdekk á felgum Hankook
Dynamic radial Z36
LT215/75R15 . Upplýsingar í
síma 453 5933 e. kl. 18.
Soda Stream tæki óskast.
Uppl. í súna 453 5303.
Sundþjálfari óskast!
Sunddeild Tindastóls óskar
að ráða sundþjálfara frá 15.
ágúst nk. Upplýsingar í síma
453 5024 (Ebba) eða 453 6141
(Jón Þór).
Vöruflutningar
Sauðárkrókur - Skagaflörður
Daglegar ferðir
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningum Héðinsgötu 2
Sími 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.
Bændur athugið!
Tek að mér að saga rekavið í girðingarstaura.
Er með öfiuga og góða stórviðarsög sem
auðvelt er að ferðast með. Get einnig útvegað
girðingarstaura á hagkvæmu verði.
Pantanir teknar í síma 453 5383.
/n:
Fjármálastjóri
Staða fjármálastjóra við Hólaskóla, Hólunt í Hjaltadal
er laus til umsóknar
Hólaskóli er stofnun í örum vexti en þar er boðið upp
á nám á sviði hrossaræktar, ferðaþjónustu og fiskeldis.
Rekið er öflugt rannsóknarstarf á ýmsum sviðum, auk
þess sem starfrækt er ferðaþjónusta, fiskeldi og
búrekstur.
Starfssvið:
Starfið felur í sér umtalsverða aðkomu að
rekstrarstjórnun og stefnumótun.
Umsjón með fjárreiðum og bókhaldi.
Gerð fjárhagsáætlana, fjárlagatillagna og verkefnavísa.
Umsjón með launa- og starfsmannamálum.
Menntun-og hæfniskröfur:
Viðskiptafræði- eða rekstrarfræðimenntun.
Reynsla ;if sambærilegum störfum er æskileg.
Góðir samstarfshæfileikar.
Fmmkvæði og skipulagshæfileikar.
Urn er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í
örum og spennandi vexti framsækinnar stofhunar.
Nánari upplýsingar veitir Skúli Skúlason skólameistari
í sírna 453-6300.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Hólaskóla, Hólum í
Hjaltaclal fyrir lO.júní n.k.