Feykir


Feykir - 07.06.2000, Side 8

Feykir - 07.06.2000, Side 8
Sterkur auglýsingamiðill Jón Amar náði Olympíulágmarkinu Það fer ekki hjá því að ís- lenska þjóðin fái að fylgjast með Jóni Amari Magnússyni ásamt fleiri íþróttamönnum sín- um á Olympíuleikunum í Sydn- ey í septembermánuði. Jón Am- ar náði lágmarkinu á tugþraut- armótinu í Götzis um helgina. Hann þurfti 7800 stig en tiyggði sig ömgglega inn á 8206 stig- um. Sá árangur dugði þó aðeins til níunda sætis, en mjög góður árangur náðist á mótinu. Það var Tékklendingurinn Thomas Dovrak sem sigraði á 8900 stigum. Annar var Iandi hans Rornan Seberle nteð 8757 stig og þriðji Eistlendingurinn Erki Nool rneð 8757 stig, en það er jafnframt besti árangur hans og Eistneskt met. Það er gleiðiefni fyrir Jón Amar að hann skyldi nú komast í fyrsta skipti í gegnum þraut ffá því í hitteðfyrra. Ýmislegt var honum samt mótdrægt að þessu sinni. Það vom varla nema þijár greinar sem hann var að ná meðalárangri í að langstökkinu meðtöldu, en þar bætti hann sinn besta árangur í þraut um einif sentimetri, stökk 7,68 metra. En þrátt fyrir að detta um fyrstu grind í 110 metra grindar- hlaupinu, fyrstu greininni seinni daginn, og vera þar tveim sek- úntum frá sínu besta lét Jón Amar ekki bugast og náði þar nteð settu marki. Það er því bara bein brautin fraumundan hjá þeim Jóni og Gísla þjálfara að haga undirbúningi sem best fyrir keppnina rniklu í Sydney sem allirbíða eítir. Menn tóku keppnina misjafnlega alvarlega á sjómanna- daginn. Meira um hátíðarhöldin á 3. síðu blaðsins. KJORBQK Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga með hœstu ávöxtun í áratug! Landsbanki íslands í forystu tíl framtíðar Utibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353 Birgir Gunnarsson framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar á Sauðárkróki, Óskar Óskarsson slökkviliðsstjóri og sjúkraflutningsmennimir Svavar Birgisson og Sigurbjöm Bjömsson. Nýr samningur um sjúkraflutninga Á dögunum var undirritaður nýr samningur um sjúkraflutninga í Skagafirði. Samningurinn er milli Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Bmnavamir Skagafjarðar munu áfram annast sjúkraflutning- ana og sjúkrabflar em staðsettir í slökkvistöðinni. Helstu nýjungar í samningnum em þær að hér eftir verða ætíð tveir sjúkraflutningsmenn til taks í öllum sjúkraflutningum en fram til þessa hefur einungis einn maður verið á bakvakt hverju sinni. Heilbrigðisstofnunin greiðir kr. 6,2 millj- ónir fyrir samninginn á ári. Vesturfarasetrið á Hofsósi Sýningin frá Gimli opnuð um næstu helgi Hvammstangi Nýr kaup- félagsstjóri Á laugardaginn kemur, 10. júní kl. 14, verður opnuð í Vesturfarasetrinu á Hofsósi sýning frá Nýja Islandssafn- inu í Gimli um landnám Is- lendinga þar vestur frá. Það var Stefán Stefánsson ættað- ur frá Djúpadal sem lét gera þessa sýningu til minningar um konu sína, Ollu Stefáns- son. Sýningin er sett upp í fyrsta sinn hér og verður uppi í Vesturfarasetrinu fram í ágúst, en þá er ráðgert að hún verð færð til Nova Scotia í Kanada. Aðspurð sagði Wincy Jó- ...bílar, tiyggingar, bækur, ritföng, framköllun, rammar, tímarit, ljósritun, gjafavara... BÓKABÚÐ BRYWARS SUÐURGÖTU 1 SÍMI 4S3 S9B0 hannsdóttir í Vesturfarasetrinu að þeir í Gimli vildu fá á annað hundrað fermetra undir sýning- una þannig að um viðamikla sýningu væri að ræða, en von var á gám til Hofsós með sýn- ingunni í fyrradag. „Svo við vitum ekki ná- kvæmlega hvemig hún lítur út, en hún byggist að nokkru á myndbandi um landnámið er tengist einstökum hlutum sýn- ingarinnar”, sagði Wincy, en sýningin verður í öðm að nýju húsunum á Sandinum sem formlega var tekið í notkun á dögunum. "’T kodaXTxpress _________gæðaframköllun HvamiTistangi Nýr kaup- félagsstjóri ráðinn Nýlega var gengið frá ráðningu nýs kaupfélags- stjóra til Kaupfélags Vestur - Húnvetninga á Hvamms- tanga. Af sex umsækjendum varð íyrir valinu Bjöm Elíson 38 ára Reykvíkingur sem undanfarið hefur gengt starfi verslunarstjóra hjá Landsím- anum. Bjöm tekur við starfínu á haustmánuðum en þá mun Gunnar V. Sigurðsson iáta af störfum vegna aldurs, eftir tæpiega 40 ára farsælt starf hjá Kaupfélagi Vestur - Hún- vetninga.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.