Feykir - 30.08.2000, Page 8
30. ágúst 2000,28. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJORBOK
✓
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
9 ..
Landsbanki
íslands
í forystu til framtíðar
Útibúið á Sauðárkróki • S: 453 5353
Samband sveitarfélaga í Nv álvktar
Veiðimálin til Hóla
Ársæll Guðmundsson starfandi skólameistari opnar tréiðnadeild að nýju efitir 20 ár, á tákn-
rænan hátt með því að saga sundur trélista sem kennaramir Valur Ingólfsson til hægri og Atli
Már Oskarsson halda á.
Góð aðsókn í fjölbrautina
Áttunda ársþing SSNV sem
haldið var að Hólunt í Hjaltadal,
25. og 26. ágúst ályktaði að
þingið fagnaði flutningi
Byggðastofnunar til Sauðár-
króks og metur mikils það frum-
kvæði sent með því er sýnt.
Þingið leggur til að Veiðimála-
stofnun verði flutt að Hólum í
Hjaltadal og leggur til að aukin
verkefni verið flutt á landbyggð-
ina.
f ályktun um flutning Veiða-
málastofnunar til Hóla segir að
þar hafi útibú frá stofnuninni
verið um árabil og yrði það mik-
ill styrkur fyrir það rannsóknar-
og vísindasamfélag sem er á
Hólum, að fá aðalstöðvar Veiði-
málastofhunar þangað ásamt þvf
að stofnunin yrði efld. Jafnframt
er stór hluti verkefna hennar
tengdur veiðiám og vötnum á
Norðurlandi.
Þing SSNV skorar á ríkis-
stjóm íslands að standa við og
fylgja enn frekar eftir áfomtum
unt flutning ríkisstofnana og
staðsetningu nýrra ríkisstofnana
á landsbyggðinni. Þrátt fyrir á-
form um hið gagnstæða hafi
þróunin orðið sú að opinberum
störfum fjölgi með meiri hraða
en nokkru sinni fyrr á höfuð-
borgarsvæðinu meðan þeirn
fækki áfram á landsbyggðinni.
Þessari þróun verði að snúa við
og til þess þurf iað stjórna.
Dæmi um þessa þróun sé þegar
Loftskeytastöðin á Siglufírði var
lögð niður og öll starfsemin flutt
til Reykjavíkur. Með stjómun
hefði starfsemin verið flutt frá
Gufunesi til Siglufjarðar og rík-
isstjómin hefði náð fram broti af
markmiðum sínum.
Þá skorar þing SSNV á ríkis-
stjóm íslands að fylgja fast eftir
áformum um flutning verkefna
út á landsbyggðina. Fyrir hendi
em fjölmörg verkefni á vegum
ráðuneyta og ríkisstofnana í
Reykjavík sent vinna má með
skilvirkum hætti á landsbyggð-
inni með nútíma tækni. Fjar-
vinnsla á vegum ráðuneyta og
ríkisstofnana er stórt sóknarfæri
og ætti að vera forgangsverkefni
ríkisstjómarinnar að koma henni
í framkvæntd í Ijósi byggðaþró-
unarinnar.
Nú er að hefjast 22 starfsár
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki og má
segja að það sé frábrugðið á
margan hátt. Jón Friðberg
Hjartarson skólameistari er far-
inn í ársleyft og hefur Ársæll
Guðmundsson, verið settur
skólameistari í fjarveru hans.
Aðstoðarskólameistari er nú
Þorkell Þorsteinsson og náms-
ráðgjaft Ingileif Oddsdóttir. Á-
fangastjóri er Ásbjöm Karlsson.
Vel gekk að ráða fólk til
kennslustarfa en að sögn Ár-
sæls var fullskipað í allar
kennslustöður þegar í júlí.
Reyndar vom kennarar farnir
að hringja frá Reykjavík í aprfl
áður en lausar stöður vom aug-
lýstar við skólann til að athuga
hvort hægt væri að fá stöðu við
skólann. Nemendafjöldi í dag-
skóla er 470, talsvert fleiri en
verið hafa undanfarið og rúm-
lega 120 nemendur em á
heimavist skólans, sem er full-
nýtt. Nýnemar em um 130 tals-
ins.
I allt sumar hefur verið unn-
ið hörðum höndum að því að
breyta verknámshúsi skólans til
þess að mæta kröfum nýrrar
námsbrautar, gmnndeildar tré-
iðna. Aðsókn að gmnndeild tré-
iðna er frámar vonunt og fyllt-
ist hún fljótlega en nemendur
eru 12. Ársæll segist líta fram-
tíð verknáms á Sauðárkróki
björtum augum því einnig hefði
hann orðið vart við mikinn
stuðning og velvilja sveitar-
stjóma á Norðurlandi vestra við
uppbyggingu verknámsins.
í skólasetningarræðu sinni
sagði skólameistari að stefna
skólans í öllum málum birtist í
því sem mætti kalla leiðarljós
skólastarfsins: vinnusemi, virð-
ing og vellíðan, og þessa þrenn-
ingu ættu nemendur og starfs-
fólk alltaf að hafa að leiðarljósi.
„Til stendur að ráða í starf
forvarnarfulltrúa við skólann.
Forvarnarfulltrúi mun staifa
með það að markmiði að vímu-
efni nái ekki til ykkar hverju
nafni sem þau nefnast. Hann
mun ásamt námsráðgjafa að-
stoða þá nemendur sem hrasa
eða hafa hrasað á þessari braut
að ná fótfestu á ný. Forvamar-
fulltrúi mun starfa náið með
stjórn nemendafélagsins og
stjórnendum skólans. Stefna
skólans í þessum málum er
skýr. Vímuefni? aldrei”, sagði
Ársæll Guðmundsson.
Búhöldar semja um byggingu
fjögurra parhúsa við Hásæti
Byggingarfélagið Búhöldar á Sauðárkróki,
sem byggir ibúðir fyrir aldraða í nýju skipulögðu
hverfi ofan Sauðárhæðar, hefur gert samning við
byggingarfélagið Farhús í Búðardal um byggingu
alls átta íbúða í fjórum parhúsum og koma fyrstu
tvær íbúðirnar til afhendingar í október nk. þær
tvær næstu í febrúar og síðan koll af kolli, að
sögn Þórðar Eyjólfssonar stjórnarformanns Bú-
hölda.
Búið er að skipuleggja tvær götur ofan sjúkra-
hússins í og við land Sauðár, sem heita Hásæti og
Forsæti og það er við Hásæti sem félagið hefur
fengið úthlutað lóðum. Þórður segir að lánsum-
sóknir liggir fyrir átta íbúðum en sex aðilar verði
að bíða til næsta árs, en sótt verður um ný lán á
næstu dögum.
„Það er mikið spurt og talsverður áhugi fyrir
þessum byggingum”, segir Þórður sem telur að
húsin hafi fengist á góðu verði. Þórður segir að
Steypustöðin hafi tekið að sér að sjá um frágang
húsgrunns og lóðar, en sáð verður í lóðir þessara
fjögurra húsa nú í haust. Frá sökklunum verður
þannig gengið, að steyptar einingar eru í sökkul-
veggjunt, og allar inntakslagnir verða tengdar um
leið og húsunum verður komið fyrir, sem sagt
ekki almennur byggingarmáti.
„Við ætlum að drífa þetta áfram og það er ljóst
að við þurfum ekki að kvíða því að selja þær
eignir sem við eigum og flytjum úr, því það verð-
ur nóg eftirspurn eftir húsnæði þegar Byggða-
stofnun flytur norður", sagði Þórður Eyjólfsson.
(<£>) TOYOTA
VV - tákn um gæði
...bílar, tryggingar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABtJÐ
BRYNJABS
SUÐORGÖTU 1 SÍMI 453 3950
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest a reynir!
Kodak Pictures
KODAfCEXPRESS
gæðaframköllun