Feykir - 20.09.2000, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Stóðréttir voru í Skagafirði um helgina og lögðu margir leið sína í fjörðinn þeirra vegna. Myndin
er frá Staðarrétt, en gangnamenn komu með seinna móti til rétta að þessu sinni. Það var ekki fyrr
en á sjötta tímanum sem stóðið kom í rétt, það var þoka og hríðarhraglandi á fjöllum uppi sem
tafði gangnamenn.
Enginn árangur við Revki í Hrútafírði
Borinn fór framhjá
vænlegri sprungu
Sautján ára
kærir
nauðgun
Sautján ára stúlka á Sauð-
árkróki hefur kært jafnaldra
sinn í bænum fyrir nauðgun og
á hinn meinti atburður að hafa
gerst í heimahúsi á Sauðár-
króki aðfaranótt sunnudags.
Aðilum ber ekki saman um at-
burðarrás.
I fyrstu fréttum af þessu
máli var Fjölbrautaskólanum
bendlað við það og mátti á
fréttinni helst skilja að heima-
vist skólans væri líklegasti
vettvangurinn. Ársæll Guð-
mundsson skólameistari sagði
þennan fréttaflutning óskiljan-
legan, enda hafi meintur
atburður hvorki gerst innan
veggja skólans eða tengst sam-
komu á vegum skólans.
Enginn árangur varð af bor-
unum við Reyki í Hrútafirði
sem lauk í síðasta mánuði, að
sögn Brynjólfs Gíslasonar
sveitarstjóra í Húnaþingi
vestra. Boraðar voru tvær
tilraunaholur og síðan stað-
sett áætluð vinnsluhola og
ætlunin að bcina bornum á
ská niður til að komast í
sprungu þar sem ætlað var
að nýtanlegan jarðvarma
væri að finna.
Borunum var hætt þegar
komið var niður á 312 metra,
þar sem sýnt var að á 220 metr-
um hafði borinn farið framhjá
ætlaðri stefnu. Að sinni verður
því ekki af því að leggja hita-
veitu á bæi í nágrenni Reykja
eins og vonast hafði verið til,
en það eru skólamannvirkin og
örfá hýbýli við Reyki sem
njóta jarðhitans sem þar er.
Það var bor frá Ræktunar-
sambandi Flóa- og Skeiða sem
notaður var við boranir við
Reyki og er hann nú kominn í
Héðinsfjörð þar sem unnið er
að rannsóknum á berglögum
vegna fyrirhugaðra jarð-
gangna.
Malbikað á Skagaströnd
Gerð „skúffugarðs"
að ljúka eftir 50 ár
Þessa dagana er verið að
undirbúa malbikunarfram-
kvæmdir á Skagaströnd.
Veigamesti hluti þeirra er
frágangur viðlegukants á
hafnarsvæðinu, þar sem at-
hafnasvæði smábátaútgerð-
innar er. Planið markar
austasta hluta hafnarinnar
og hefur í daglegu talið verið
kallaður „Skúffugarðurinn”,
en um 50 ár eru liðin frá því
jámskúffur voru reknar nið-
ur og garðurinn mvndaður.
Magnús Jónsson sveitar-
stjóri á Skagaströnd segir að
með þessari framkvæmd nú
megi segja að gerð „Skúffu-
garðsins” sé lokið, enda kom-
inn tími til. Um leið er komið
fyrir góðri lýsingu við garðinn
þannig að sjómennimir geti at-
hafnað sig jafnt á degi sem
nóttu.
Það er Króksverk sem ann-
ast malbikunarframkvæmdirn-
ar á Skagaströnd, en auk
bryggjuplansins verða einnig
malbikaðar þrjár götur, nýlögn
á götuna frá höfninni að rækju-
verksmiðjunni, en yfírlögn á
tvær götur.
Miklibær í Óslandshlið
Riðan lætur á sér
kræla í annað sinn
„Ætli verði nokkur sauðfjár-
búskapur á fslandi þegar ég
má taka fé aftur. Það virðist
ekki bjart framundan í þeirri
búgrein þegar fjöldi bænda er
að selja kvótann”, segir Hall-
dór Þorleifur Olafsson bóndi
á Miklabæ í Óslandshlíð í
Skagafirði, en riða var stað-
fest í einni kind hjá honum
nýlega og liggur því fyrir að
skera niður fjárstofninn á
Miklabæ nú í haust.
Þetta er í annað sinn sem riða
kemur upp á Miklabæ, en
þessi harðgerða veira hefur
látið nokkuð til sín taka á
þessu svæði um árin. „Það var
líka í einni kind 1982 sem
veiran var staðfest í og það er
magnað að þetta skuli stinga
sér svona niður aftur”, segir
Halldór á Miklabæ. Það var í
ágústmánuði sem vart var við
kind í fjallinu ofan við Mikla-
bæ, sem þótti eitthvað athuga-
vert við. Sigurði Sigurðarsyni
dýralækni á Keldum var gen
viðvart og kom hann norður
og náði í kindina. Gmnsemd-
ir manna vom síðan staðfestar
við rannsókn. Á Miklabæ em
sextíu kindur, en þeim hefur
fækkað þar á bæ síðustu árin
eins og víðast hvar.
—KTen^ilt cU$—
Aöalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
•ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRA ÞJÓNUSTA
Æ
bílaverkstæði
Simi: 453 5141
Sæmundorgata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
JfcBílaviðgerðir tþ Hjólbarðaviðgerðir
& fíéttingar ^Sprautun