Feykir


Feykir - 27.09.2000, Blaðsíða 6

Feykir - 27.09.2000, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 32/2000 Hagyrðingaþáttur 302 Heilir og sælir lesendur góðir. Einhverju sinni mun Isleifur Gísla- son á Sauðárkróki hafa boðið Halla Hjálmars heim til að þiggja hressingu. Mun Haraldur þá hafa ort svo. ísleifur ég þakka þér þennan litla sopa. En áttu kannski eins og er annan stærri dropa. Önnur vísa kemur hér sem ég held endilega að sé einnig eftir Halla. Fyrir eyrum ómar suð erfið lífsins brekka. Almáttugur góður guð gef mér nú að drekka. Þorbjöm Kristinsson á Akureyri mun hafa verið vistmaður á dvalar- heimilinu Hlíð er hann oiti svo. Vel mér fellur vistin hér varla skell til muna. í hárri elli eigna mér eina kellinguna. Eitt sinn er sýnt var í sjónvarpi frá þinglausnum á Alþingi orti Guðmund- ur H. Halldórsson á Húsavík. Nú er þinghaldið gengið um garð glaðir menn fara heim að svo búnu. Að endingu loksins af því varð að Albert kyssti Sigríði Dúnu. Nokkru síðar þegar Davíð og Jón Baldvin réðu ríkjum í landsstjórninni varð Guðmundi að orði. Davíð og Baldvin ég bregðast ei vil og búsifjum þeirra með rósemd við tökum. En fortíðarandinn hann væri ekki til ef verið hefðu þeir blettir í lökum. Eftir að Guðmundur fór að eldast mun hann hafa ort þessa. Fækkar skrefum falla tjöld fyrr þó skjöldinn bæri. Bráðum geymir gröfin köld glötuð tækifæri. Einhvem tfma lærði ég eftirfarandi morgunbæn sem ég held örugglega að sé eftir Starra í Garði. Voldugi faðir líkna þú líkama og sál ljá mínu blinda auga þinn ffábæra kíki. Gef oss í dag vort daglega gjaldþrota- mál dýrð sé þér mammon, að eilífu varir þitt ríki. Ein kemur hér í viðbót þingeyskrar ættar, og mun Jón Þorsteinsson á Am- arvatni hafa gert hana eftir ósk frá kon- um. Til þess sem er minnimáttar mannkærleikans þel ég ber. Það er einkum þegar náttar að þetta vakir fyrir mér. Einar Árnason í Landamótaseli í Ljósavatnshreppi mun hafa ort svo til konu sinnar. Ást mín hefur aldrei kunnað að eigra þar og hér. Konu hef ég aldrei unnað annarri en þér. Kannski er ekki alveg eins mikil al- vara í þessari kunnu vísu Stefáns Sveinssonar. Gekk ég ungur grýttan veg af glöpum þungum vola. En Önnu íTungu elska ég eins og lungun þola. Friðrik Hansen veltir fyrir sér svip- uðum hlutum, en hefur trúlega aðra konu í huga. Hoifði ég á hárið greitt háls og fagurt enni. Ég verð ekki orðinn neitt ef ég gleymi henni. Þá er gaman að rifja upp þessa kunnu vísu Sveinbjöms Beinteinsson- ar. Þó í vetur verði kalt vil ég engu kvíða. Hjá þér finnst mér árið allt eilíf sumarblíða. Ef ég man rétt mun eftirfarandi frá- sögn komin frá Hjörleifi Jónssyni frá Gilsbakka. Meyjan sig á ballið bjó byrjaði dans í salnum. Augljóst var hún að sér dró unga sveina í dalnum. Það vom mestu ósköp af ávöxtum á borðum, eins og þeim sem Eva gaf unnustanum forðum. Sá magnaði limmsmiður Jóhann S. Hannesson mun eitt sinn hafa ort svo. Það er hörmung hvað heitt er í Líma í húsonum sést varla skfma því flest er án glugga til að fá einhvem skugga og menn fara ekki út nema í síma. Það er vont að fá fréttir í Varsjá, að vísu sést Moskva í fjarsjá en þar hafa ekki enn fundist heilvita menn sem hægt væri að leita sér svars hjá. Talsvert hefur gengið á þegar Karl Kristjánsson alþingismaður orti svo. Illverka til er allra bragða neitt yfirgangs og svika magnast kraftur. Mannskepnunni miða virðist greitt frá mennskunni til villidýrsins aftur. Verður þá best að fá að lokum þessa einföldu staðreynd sem Júlíus Jónsson mun eitt sinn hafa sett fram. Þú hefur alltaf unnið mér illt í flestum greinum. Minna gott að þakka en þér þarf ég ekki neinum. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Blönduósi, sími 452 7154. Leikir Tindastóls í Epson- deildinni í körfubolta Veturinn 2000-2001 (Allir leikir klukkan 20). 1. Fimmtudagur 28. september....Tindastóll - IJMFN 2. Sunnudagur 1. október.........UMFG -Tindastóll 3. Fimmtudagur 12. október.......Tindastóll - Valur 4. Sunnudagur 15. október..........Tindastóll - ÍR 5. Fimmtudagur 26. október.........ÍBK - Tindastóll 6. Fimmtudagur 2. nóvember......Tindastóll - Hamar 7. Sunnudagur 5. nóvember...........Þór - Tindastóll 8. Þriðjudagur 14. nóvember.....Tindastóll - UMFS 9. Sunnudagur 3. desember...........KFÍ - Tindastóll 10. Fimmtudagur 7. desember....Tindastóll - Haukar 11. Fimmtudagur 14. desember........KR -Tindastóll 12. Fimmtudagur 4. janúar........UMFN - Tindastóll 13. Fimmtudagur 11. janúar......Tindastóll - UMFG 14. Þriðjudagur 16. janúar........Valur - Tindastóll 15. Fimmtudagur 1. febrúar...........ÍR - Tindastóll 16. Fimmtudagur 8. febrúar........Tindastóll - ÍBK 17. Sunnudagur 11. febrúar.......Hamar - Tindastóll 18. Fimmtudagur 22. febrúar.......Tindastóll - Þór 19. Sunnudagur 25. febrúar........UMFS- Tindastóll 20. Fimmtudagur 1. mars............Tindastóll - KFÍ 21. Sunnudagur4. mars............Haukar - Tindastóll 22. Fimmtudagur 8. mars............Tindastóll - KR Úrvalsdeildin í körfubolta Njarðvíkingar í heim- sókn í fyrsta leiknum Alvaran í körfuboltanum byrjar ann- að kvöld, en þá fer fram fyrsta umferð- in í úrvalsdeildinni, sem heitir eins og síðasta vetur, Epson-deild. Það eru Njarðvíkingar sem mæta í þessa fyrstu rimmu og kvöldskemmtun í Síkinu, en væntanlega eiga áhorfendur eftir að eiga þar margar skemmtilegar og spennandi stundir í vetur. Ljóst er að í mjög tvísýnan leik stefnir annað kvöld og eftir æfingaleikj- um að dæma í haust má reikna með að Tindastólsmenn þuifi að taka á öllu sínu ef þeir ætla sér að hafa eitthvað í Njarð- víkinga að segja, sem ávallt eru með sterkt lið, en þar em nú við stjómvölinn félagarnir Teitur Örlygsson og Friðrik Ragnarsson. Valur Ingimundarson þjálfari Tinda- stóls hefur að undanfömu unnið að því að púslaTindastólsliðinu saman, en það er mikið breytt frá liðnum vetri. Tinda- stóll hefur á undanfömum dögum leik- ið tvo æfingarleiki á Króknum og þar hefur komið í ljós að einhvem tíma mun taka að slípa liðið saman þannig að það fari að spila yfirvegaðan leik. Tindastólsmenn léku illa gegn Skalla- grími en unnu samt. í leik á móti Þórs- umm sl. föstudagskvöld byrjuðu Tinda- stólsmenn illa og vom mun slakari að- ilinn fyrri hlutann og vom 17 stig undir í leikhléi. Það var síðan allt annað lið sem kom inn á völlinn og nú sýndi það hvað í því býr og sigraði örugglega 96:80. Svo er að sjá sem Tindastólsliðið sé í þokkalegu úthaldi og þeir Svavar, Lár- us og Kristinn voru að leika vel ásamt Mayers. Rússinn kom ekki nægjanlega vel út í leiknum, en Grykkinn lifnaði er á leið. Gaman verður að fylgjast með nýliðunum í liðinu í vetur, Axeli Kára- syni og Matthíasi Rúnarssyni og einnig er gamli maðurinn Kári Marísson að æfa með liðinu og verður til taks í vet- ur, en hann lék meðal annars um árabil með Njarðvíkingunum á sínum lands- liðsámm. M iimM) (gmiáÍMmMiii^mnKgæMíEi

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.