Feykir - 27.09.2000, Qupperneq 8
27. september 2000,32. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
-—-
\ -h
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
íslands
í forystu til framtíöar
Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353
Samþykkt að stofna
frumkvöðlasetur á
Norðurlandi vestra
Þing SSNV sem haldið var á
Hólum nýlega og aðalfundur
INVEST sem haidinn var að
því loknu, samþykktu að
stofnað verði Frumkvöðlaset-
ur á Norðurlandi vestra. Því
er ætlað að hýsa og styðja við
fyrirtæki sem byggja á sér-
stöðu og nýsköpun á starfs-
svæði félagsins. Aðstoðað verði
við stofnun fyrirtækjanna og
rekstur þeirra í allt að fimm
ár, enda uppfylii þau inn-
tökuskilyrði fyrir Frurn-
kvöðlasetrið. Iðnþróunarfelag
Norðurlands vestra annist
rekstur Frumkvöðlasetursins
eftir reglum sem stjórn þess
setur.
í greinargerð með tillögunni
segir að dagana 4. til 9. apríl á
liðnu vori hafi farið 28 manna
hópur af Norðurlandi vestra í
kynnisferð til írlands. Ferðin
var farin að frumkvæði Vil-
hjálms Egilssonar, alþingis-
manns, og var tilgangur farar-
innar að kynna sér aðferðir íra í
atvinnuþróunar og byggðamál-
um. Þátttakendur í ferðinni
voru flestir sveitarstjómar-
menn. Kynnisferðin var afar
fróðleg og vel skipulögð. Vakti
það mesta athygli hve tengsl at-
vinnulífs og skóla eru sterk og
hvað eftirfylgni og stuðningur
við nýsköpun er markviss á Ir-
landi. Hópurinn ákvað að vinna
áfram eftir heimkomuna að því
að yfirfæra reynslu íra á okkar
aðstæður. Voru settir á fót tveir
starfshópar: Staifhópur um
menntun og atvinnu og starfs-
hópur um Frumkvöðlasetur.
Frumkvöðlasetrið er ekki
staðbundið, heldur starfsstöðv-
ar á Norðurlandi vestra sant-
tengdar með nútíma tækni. Fyr-
irtæki sem fá inni á Frum-
kvöðlasetrinu fá til afnota hús-
næði eftir sínum þörfum og í
boði er á viðkomandi stað. Með
húsnæðinu fylgir nauðsynlegur
skrifstofubúnaður ásamt síma
og tölvu sem tengd er veraldar-
vefnum með mesta hraða sem
þar er völ er á. INVEST annast
stuðning og eftirfylgni við þá
sem gista Frumkvöðlasetrið.
Sveitarstjóm vill selja
Stjómsýsluhúsið
Á fundi sveitarstjórnar
Skagafjarðar í síðustu viku var
samþykkt að fela sveitarstjóra
Snorra Birni Sigurðssyni að
ganga til samninga við Byggða-
stofnun um kaup á hlut sveitar-
félagsins í Stjómsýsluhúsinu.
Sveitarfélagið Skagafjörður
á um 65% hlut í Stjórn-
sýsluhúsinu. Að mati sveitar-
stjómarfulltrúa er ekki ástæða til
að halda í þessa eign þar sem
fyrirsjánanlegt er að Byggða-
stofnun, sem á 35% hlut, muni
þurfa á húsnæðinu að halda
þegar stofnunin flytur með
starfseminu til Sauðái'króks um
mitt næsta ár. Þá veiti sveitar-
félaginu ekki af að losa íjármuni
til að laga skuldastöðuna, sem
talsvert hefur verið í um-
ræðunni, einkuni síðustu
misserin.
Mikill spenningur á Olympíuleikimum í Svdnev
Skagfirðingar í meirihluta
í „íslendinganýlendunni“
Jón Arnar Magnússon hóf keppni í gærkveldi. Margir fylgj-
ast með þátttöku hans af spenningi, m.a. Skagfirðingamir í
Sydney sem ætla að vera á vellinum og hvetja hann óspart,
þar á meðal Þorsteinn Þórsson og Kristín Helgadóttir.
„Hérna snýst lífið allt í kring-
um Olympíuleikana. Eg var
á vellinum í dag og hef aldrei
á ævinni séð annan eins
mannfjölda og það var ekki
viðlit að fá miða á keppnina í
kvöld, þegar Vala var að
keppa. Það var löngu uppselt
því þá var aðalstjarnan
hérna Cathy Freeman að
keppa, og 110 þúsund nianns
á vellinum. En við emm með
miða á keppnina á miöviku-
daginn þegar Jón Arnar og
Guðrún verða í sviðsljósins og
ætlum að styðja vel við bakið á
þeim”, segir Kristín Helga-
dóttir frá Sauðárkróki, ein af
Tungusystkinunum.
Kristín heldur til hjá Sigríði
dóttur sinni í Sydney og þar er
hálfgerð „íslendinganýlenda”
þessa dagana. Þar á meðal er
Þorsteinn Þórsson fyrrum tug-
þautarkappi, mágur Gísla Sig-
urðssonar þjálfara Jóns Amars,
en Kristín er einmitt móður-
systir Gísla. Með Þorsteini em
þama einnig Friðrik Þór Ósk-
arsson og Sighvatur Dýri Guð-
mundsson þekktir frjálsíþrótta-
menn á ámm áður. Kristín kall-
ar þessa stráka „tölvusnilling-
ana”, enda Iáta þeir sér ekki
duga að fylgjast með keppninni
á vellinum og í beinni í sjón-
varpinu, heldur er líka flett upp
netinu hvað íslenskir miðlar
segja í umfjöllun sinni.
Aðspurður sagði Þorsteinn
Þórsson að þetta væri algjör há-
tíð fyrir frjálsíþróttamenn og
þetta kvöld hefði verið æðis-
legt og spennuþrungið. „Þetta
var hreint ótrúlegt hjá Völu og
Guðrúnu og nú bíðum við bara
eftir því hvað Guðrún og Jón
Amar gera”.
- Já nú gerir þjóðin miklar
kröfur til Jóns Ámars, þegar
þetta er búið að ganga svona
vel hjá hinum?
„Já ég heyrði í Gísla í gær
og þá leit þetta ágætlega út. Jón
Amar er í fínu formi, og ef allt
gengur upp þá er alveg raun-
hæft að búast við honum með-
al þeirra átta bestu. En hinsveg-
ar er ekkert ömggt að hann nái
að klára. Undirbúningurinn
hefur ekki verið alveg snurðu-
laus og það getur sett strik í
reikninginn, en við vonum það
besta. Og við verðum þama til
staðar og hvetjum hann eins og
við mögulega getum”, sagði
Þorsteinn gamli tugþrautaiTef-
urinn.
Dreymdi ekki um ævintýri
Kristín Helgadóttir flutti til
Átralíu árið 1968 ásamt manni
sínum Magnúsi Jónssyni og
fjórum börnum. Magnús lést
fyrir nokkrum ámm eftir að þau
fluttu heim árið 1987. Ástæður
flutningsins voru veikindi hans,
talið var að átralskt loftslag
myndi henta hoitum betur, en
vistaskuld var það erfitt fyrir
fjölskylduna að rífa sig upp og
flytja hinum megin á hnöttinn,
en Kristín og Magnús sögðu frá
Átralíutíma sínum í viðtali í
Feyki á sínum tíma.
„Nei auðvitað dreymdi
mann ekki um að eiga eftir að
upplifa svona ævintýri og
svona glæsilegt kvöld sem
tengdist Islandi hér í Átralíu.
Þetta var alveg frábært hjá Völu
og Guðrúnu héma í kvöld og
spenningurinn hér á heimilinu
var mikill. Svo bíðum við bara
spennt eftir miðvikudeginum
hvað gerist þá”, sagði Kristín
Helgadóttir. en hún hefur líka
mikla ánægju af því að fylgjast
með gengi áströlsku kepp-
endananna, enda bjó hún þama
suður frá í 19 ár.
En hvað sem á eftir að ger-
ast á OL í Sydney má segja að
íslenska liðið sé búið að ná stór-
kostlegum árangri og allt gott
héðan í frá sé bónus.
Œ>
TOYOTA
- tákn um gæði
...bflaj, tiyggingar,
bækur, ritföng,
franiköllun, rarnmar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYBcJARS
SUÐUBGÖTU 1 SlMI 463 6950
Kodak Pictures
<@>
TRYCCINCA-
MIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynir!