Feykir - 04.10.2000, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 33/2000
Undir borginni
„Viltu bara ekki tala við Birgi“
Nú fer að hausta og rigning-
arnar og kalsinn koma á sína
septembervísu. En eftir sitja
minningar hjá flestum um gott
og gjöfult sumar, Flestir bænd-
ur ættu að geta verið sáttir við
afrakstur sumarmánuðanna og
þeir sem hafa stundað korn-
rækt geta nú staðið báðum fót-
um í jötu. Helst eru það sauð-
fjárbændur sem koma illa út úr
landbúnaðarhagfræðinni og er
viðbúið að ýmsar jarðir geti
farið í eyði ef ekki verður ein-
hvernveginn komið til móts
við lffsþarfir þeirra. Það er
löngu orðið tímabært að létta á
óðaþéttbýlisstefnu stjómvalda
og hlynna ofurlítið að þeim
sem búa í dreifbýlinu og þá
einkum í sveitunum. Kannski
að næsta ríkisstjóm verði já-
kvæðari fyrir slíkri stefnu?
Ef til vill styttist í að fyrir-
spáð Alfreðsstjórn komist á
laggimar og Davíð verði að af-
leggja stjómarjakkann og fara í
kuldaúlpu stjórnarandstæð-
ingsins en það hlutskipti mun
honum varla geðfellt hvað þá
Hannesi Hólmsteini! En það er
nú svo að frá hreinu lýðræðis-
sjónarmiði er varla heppilegt
að menn séu forsætisráðhenar
að ævistarfi og raunar á ráð-
herradómur aldrei að festast
við menn svo lengi að þeir fari
að lifa sjálfa sig í starfi.
Þar skiptir auðvitað ekki
máli hver í hlut á. EnefHall-
dór maddömumaður fer að
hugsa til þess að máta vinstri
peysuna senn hvað líður þá er
hætt við að taugatitringur geri
vart við sig í Valhöll og hrikti í
beinum Heimdallar.
Hvað á Halldór annars eftir
nema að verða forsætisráð-
herra? Og halda menn ekki að
Össur tæki sig vel út í utanrík-
isráðherraembættinu! Hann
verður ekki í vandræðum með
að umgangast stórmennin ytra,
svo gjörkunnugur sem hann er
risaurriðanum úr Þingvalla-
vatni. Þetta em vænstu menn,
þó að fortíð þeirra sé kannski
eitthvað blendin í stjómmála-
legu tilliti.
En það eru sem sagt komn-
ar fram hugmyndir um að
næsta ríkisstjóm verði Frant-
samfylkingarstjóm ef þingfylgi
leyfir og ég þekki mann sem
fær í sig hroll af því einu að
heyra slíkt nefnt. Það er Ólaf-
ur Vísmann, eldhress til sálar-
innar en afieitur til líkamans.
Hann segir að samstjóm Fram-
sóknar og Samfylkingarinnar
geti aldrei orðið annað en ó-
skapnaður, eina vonin sé að
vinstri grænir verði með í slíkri
stjóm til að halda hinum við
efnið. Það væri ekki amalegt
að fá Ögmund í félagsmálin og
Kolbrúnu í iðnaðarráðuneytið!
Annars skiptir víst minnstu
þegar á allt er litið hver er titl-
aður ráðherra hér og þar. Það
eina sem þeir gera er að taka
við lyklunum og afltenda þá
svo aftur. Embættismennimir
og ráðuneytisstjórarnir em
auðvitað þeir sem ráða.
Muna menn ekki hvemig
fór með manninn sem kom
margsinnis í menntamálaráðu-
neytið hér um árið til að fá við-
tal við ráðherrann sem var
aldrei við. Að lokum sagði
stúlkan í móttökunni: „Viltu
ekki bara tala við Birgi sjálfan?
Rúnar krist jánsson.
„Tjáir ekki að deila við dóm.................“
Það er eins með knattspymudómarann eins og dýralæknirinn
og kjötmatsmanninn í sláturhúsinu, að þeirra dómur er
endanlegur og ekki tjáir að deila um það. En kannski em þeir að
ræða allt aðra hluti Jónmundur Ólafsson bóndi í Kambakoti og
Jón Pétursson dýralæknir á sláturhúsi SAH, þó sannfæringar-
kraftinn vanti greinilega ekki hjá Jónmun di.
Epsondeildin í körfubolta
Sigur og tap hjá
T indastólsmönnum
Leiktíðin hefur farið þokkalega
af stað hjá Tindastólsmönnum í
körfuboltanum. Tindastóll
sýndi rnjög góðan leik gegn sig-
urstranglegasta liði deildarinn-
ar, Njarðvík, er það kom í lieim-
sókn á fimmtudagskvöldið, en
eins og fyrri daginn voru Grind-
víkingar erfiðir heim að sækja á
sunnudaginn. Þrátt fyrir góða
byrjun í þeim leik tókst Tinda-
stólsmönnum ekki að fylgja því
eftir og Grindvíkingarnir
keyrðu upp hraðann og unnu
nokkuð öruggan sigur 94:81.
Tindastólsmenn gáfu Njarðvík-
ingum engin grið j^egar þeir komu
í heimsókn á Krókinn. Leikurinn
var hnífjafn lengst af, en í síðasta
leikhlutanum sigu heimamenn
framúr og úrslitin réðust endanlega
þegar Njarðvíkingar fengu dæmd á
sig tvö tæknivíti fyrir kjaftbrúk
þegar rúmar tvær mínútur vom eft-
ir.
Leikurinn fór rólega af stað og
leikmönnum gekk illa að stilla
kanónurnar til að byrja með og
hittnin var léleg, en það átti eftir að
lagast auk þess sem mikil barátta
var í leiknum og ekkert gefið eftir.
Hjá Tindastóli var Shawn
Mayers geysilega drúgur og í vam-
arleiknum var hann hreinlega ógn-
vekjandi, varði hvert skotið á fætur
öðru og tók fjölda frákasta. Lárus
Dagur Pálsson lék líka skfnandi vel
og hefur ekki verið svona afger-
andi í langan tíma. Þá var Ómar
mjög drjúgur og Kristinn stimplaði
sig sterkur inn. Svavar lét óvenju-
lítið að sér kveða en lék samt vel
eins og föðurbróðir hans Friðrik
Hreinsson.
Gangur leiksins: 0:3, 9:10,
15:11 (20:18)28:25,31:30(42:36)
46:42,53:51 (57:55)67:60,72:62,
77:67 (84:73)
Stig Tindastóls: Shawn Mayers
20, Lárus Dagur 18, Ómar Sig-
marsson 14, Toni Pomonis 10,
Svavar Birgisson 8, Kristinn Frið-
riksson 8, Friðrik Hreinsson 4 og
Mikhail Antropov 2.
Stigahæstir hjá Njarðvík voru
Teitur Örlygsson með 19 stig og
Logi Gunnarsson með 14 stig.
I leiknum á móti Grindvíking-
um voru stigahæstir í Tinda-
stólsliðinu Shawn Mayers með 20
stig, Kristinn Friðriksson gerði 14,
Tony Pomonis 12, Ómar Sigmars-
son 9, Svavar Birgisson 9 og Mik-
hail Antropov 8.
Nýjung í heilsueflingu
fyrir konur í Skagafirði
Líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri
sem eru búnar að vera á leiðinni í líkams-
rækt og aðhald lengi og eru tilbúnar að
bretta upp ennar og taka á núna. A þessu
námskeiði verður leitast við að vinna ineð
hóptilfinningu sem veitir styrk við aðhald
og minnkar líkur á að konur detti út úr ferl-
inu eftir fyrstu tvo þrjá tímana.
Flestir hafa reynslu af því að byrja af
fullum krafti í átaki með sjálfan sig en
missa móðinn á miðri leið. Það aðhald og
sá styrkur sem fæst með því að vinna sam-
an í hóp gerir leiðina að settu marki léttari
og skemmtilegri.
Námskeiðið sem nær yfir 8 vikna tíma-
bil, með dagskrá 4 sinnum í viku, tekur á
eftirfarandi þáttum: Reynt verður að efla
jákvætt hugarfar með skemmtilegri fræðslu
um hin ýmsu kvennamál. Unnið verður
með þætti eins og streitu. sjálfsmat, sjálfs-
styrk og sjálfsmynd, þættir sem oft há kon-
um í hinu kröfuharða glansmyndaþjóðfé-
lagi sem við lifum í. Stefnt verður að skýr-
ari líkamsvitund með auknu aðhald í formi
vigtunar og fitumælingar. Algengt er að
konur hafi óraunhæfar hugmyndir urn eig-
in líkama og þá hjálpa áðumefnd atriði oft
til að fá raunsærri sjálfsmynd.
Jórunn Sigurðardóttir, sem hefur stund-
að nám í næringarfræðum í Danmörku
undanfarin ár, kemur með nýjar og ferskar
áherslur og leiðbeinir hópnum um matar-
æði. Áhersla hefur verið lögð á að hafa
hreyfinguna sem fjölbreyttasta og verður
því boðið uppá dagskrá bæði úti og inni
með mismunandi leiðbeinendum hverju
sinni.
Við undirbúning þessa námskeiðs var
leitast við að samnýta ólíka þekkingu fag-
fólks og aðstæðna sem eru í kringum okk-
ur hér í Skagafirði. Þar ber að nefna að hluti
námskeiðsins mun fara fram í Ólafshúsi þar
sem Ólafur mun töfra fram léttar og hollar
veitingar. Hólmfríður Jóhannsdóttir íþrótta-
kennari og Sigurveig Þonnóðsdóttir sjúkra-
þjálfi sjá um hreyfinguna inni. Rita Didrik-
sen sjúkranuddari sér um gönguna úti. Síð-
ast en ekki síst sér Sigríður Sigurjónsdóttir
sálfræðingur um að hressa uppá sálartetrið.
(fréttatilkynning)
Auglýsing í Feyki
ber árangur!