Feykir


Feykir - 04.10.2000, Side 7

Feykir - 04.10.2000, Side 7
33/2000 FEYKIR 7 Hver er maðurinn? Um margra ára skeið hefur myndaþáttur birst á síðum Feykis. Otrúlega margir skoða myndimar sér til ánægju og oftast þekkjast einhverjar myndir í hverjum þætti. Stór hluti af þeim ljósmyndum sem berast á Héraðsskjalasafn Skagfirðinga em óþekktar og tekur því við það verkefni að reyna að þekkja fólkið á myndunum, sem tekst oftast sem betur fer með aðstoð góðs fólks. Við þökkum þær ágætu viðtökur sem þátturinn hefur fengið og tökum aftur upp þráðinn þar sem frá var horfíð. Þær myndir sem nú birtast gaf Pálmi Sigurðsson í Reykjavík safninu. Þau sem þekkja myndimar em beðin að hafa samband við Héraðs- skjalasafn Skagfirðinga. Sím- inn er 453 6640. Nr. 314. i ___ Nr. 315. Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík Smáauglýsingar * Ymislegt! Til sölu Hyundai Loupe 1,6 árg. ‘97. Nýr á götu í sept. ‘97. Ekinn 44.000 km. Beinskiptur, álfelgur, topplúga. Hagstætt bfla- lán getur íylgt. Upplýsingar í síma 453 5774 eða 895 6562. Til sölu vetrardekk á felgum sem passa undir Subaru Justy. Upplýsingar í síma 868 7636. Til sölu ISDN sími og tilbúnargardínur 1,35x2,35 hvor vængur, 4 stk. Upplýsingar í síma 453 7325. Til sölu Nissan Terrano, nýskráður 12.10. ‘98, disel, sjálfskiptur. Upplýsingar gefur Jóhann í síma 453 5141 og Ami í síma 453 6229 e. kl. 17. Til sölu Ford FT 100 nýskráður 16.1. ‘95, disel, vsk.- bfll. Tvöfalt hús - pallbfll. Upplýsingargefúr Jóhíuin í síma 453 5141. Húsnæði! Þriggja herbergja íbúð í Sjálfsbjargarhúsinu er til leigu strax. Upplýsingar gefur Þóra Kristjánsdóttir í síma 453 5405. Gott einbýlishús í nágrenni Sauðárkróks til leigu. Upplýs- ingar í síma 453 5558. Athugið! Athugið! Athugið! Viltu léttast hratt og örugglega en borða ennþá uppáhaldsmatinn þinn? Misstu 1 kg. á viku! FRÍ SÝNISHORN! Hringdu núna ísíma 552 4513 Eða skoðaðu: www.heilsuverslun.is AVIS Bílaleigan Sauðárkróki, sími 899 8631. Bjartsýni með októberspána Hjá Veðurklúbbnum á Dal- bæ á Dalvík ríkir nokkur bjait- sýni í októberspánni, alla vega íyrstu tvær vikumar, þó em lík- ur á rigningu og jafnvel slyddu til fjalla þann 5. okt. á kvartela- skiptunum. „Svo gæti hann farið að breytast í kringum tunglfyllinguna 13. okt. en aðr- ir vilja meina að það verði ekki fyrr en í kringum 20. okt. Breytingin komi samt aldrei til með að verða stórkostleg, snjói kannski aðeins en hverfi strax aftur, mánuðurinn verði bjartur en svalur og heldur meiri úr- koma heldur en í september. Þó að hann kólni um miðjan mánuðinn þá emm við bjartsýn með síðustu daga október, jafn- vel að þá verði mjög hlýtt”, segir í spá Dalbæinga fyrir októbermánuð. Eina konu í klúbbnum dreymdi að til sín kæmi maður að nafni Björn og sagði hann að mánuðurinn yrði fallegur, ljós og bjartur. Klúbbfélagar vona að þetta „ljósa” sé ekki snjór, en að dreyma nafnið Bjöm er fyrir hamingju og gæfu. „Októbertunglið kviknaði 27. september í vestri og tók hann því vel. Næsta tungl kviknar svo 27. okt. í austsuð- austri og undir öllum venjuleg- um kringumstæðum er það gott, þ.e.a.s. miðað við þær upplýsingar sem við höfum. Gömul trú er sú að ef veðrið á Mikaelsmessu 29. sept. er gott þá séu auknar líkur á góðu veðri fram að jólum. Veðrið þennan dag í ár var gott og nú er bara að sjá hvemig þetta gengur eftir. A allraheilagra- messu 1. nóvember ættu menn að taka vel eftir veðrinu, ef það er gott þann dag þá boðar það góðan vetur, en ef veður hefur verið gott á undan og spillist þennan dag þá er ekki von á góðu í framhaldinu. Frostavet- urinn mikla var þetta svona, haustið gott en brast á hríðar- bylur á allraheilagamessu og allir hafa heyrt um framhaldið. Septemberspáin gekk nokk- uð vel eftir hjá Dalbæingum, allir höfðu nokkuð til síns máls um veðrið í síðasta mánuði. Þetta kom fram á „veðurfund- inum” á Dalbæ í gær. Áskrifendur góðir! Vinsamlegast munið eftir seðlinum með áskriftargjaldinu. Villur í minningargrein Ekki tókst nógu vel til með samanburðar- og prófarkarlestur á minningargrein systkinanna Helgu og Olafs Ögmundar- bama um Sigríði Ögmundsdóttur í Feyki fyrir skömmu. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum, og þar sem ekki var óskað eftir að lagfæringar yrðu gerðar, skal bent á að greinin birtist rétt í Morgunblaðinu laugardaginn 26. ágúst síðast- liðinn. Slökkviliðsmaður Brunavamir Skagaíjarðar óska eftir að ráða í stöðu slökkviliðsmanns (100% starf). Starfið felst í viimu vegna slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, auk ýmissa starfa sem þessu tvennu fylgir. Útkalls- og bakvaktarskylda er utan dagvinnutíma. Skilvrt er að viðkomandi hafi búsetu á Sauðárkróki. Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði sbr. reglugerð um réttindi, menntun og skyldur slökkviliðsmanna. í reglugerð kemur m.a. fram að: Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. (amk. 60 eminga nám) Hafa ökuréttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. Laun samkvæmt kjarasanmingi SFS og launanefndar sveitarfélaga. Um er ræða gefandi og krefjandi starf fyrir bæði kvenmenn og karlmenn. Upplýsingar um starfið gefur undirritaður á slökkvistöðinni eða í síma 453 5425. Umsóknum skal skilað á slökkvistöð Sauðárkróks, Sæmundargötu, en þar fást einnig umsóknareyðublöð, ásamt úrdráttum úr reglugerð um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmaima. Umsóknarfrestur er til 12. október 2000. Ernnig er óskað eftir mönnum í útkallslið slökkviliðsins á Sauðárkróki. Meim þurfa að hafa náð 20 ára aldri og helst að hafa meirapróf. Um er ræða starf fyrir bæði kveimieim og karlmenn. Upplýsingar geftir undirritaður á slökkvistöðinni eða í síma 453 5425. Slökkviliðsstjóri.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.