Feykir - 11.10.2000, Page 1
©
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Starfshópur um þjónustuíbúðir fvrir aldraða í Skagafirði
Leggur til byggingu 24 íbúða
fjölbýlishúss á rúmmu svæði
Starfshópur um íbúðir fyrir
aldraða sem unnið hefur í sam-
vinnu við atvinnuþróunaifélagið
Hring, mælir eindregið með
stofnun félags um byggingu fjöl-
býlishúss á Sauðárkróki með
þjónustuíbúðum fyrireldri borg-
ara. Félagið hafi ráðstöfunarrétt
yfir íbúðunum og íbúar mundu
kaupa sér búseturétt. Með tilliti
til sýnilegrar mikillar fjölgunar
eldri borgara í Skagafirði er talið
nauðsynlegt að finna fjölbýlis-
húsinu stað þar sem rúmt er um
og möguleikar að bæta við húsum
í framtíðinni. Mælt er með a.m.k.
24 íbúða húsi til að hagkvæmni
stærðarinnar skili sér í lægri
kostnaði við byggingu og rekstur.
Þetta kom fram á fundi með
eldri borgurum þar sem skýrsla
vinnuhópsins var kynnt. Við
vinnu sína og athuganir greindi
starfshópurinn þrjú mikilvæg at-
riði er vegi þyngst þegar stað-
setning þjónustuíbúða er ákveð-
in: Að stutt sé í alla þjónustu, að-
gengismál séu í góðu horfí, þar á
meðal að ekki sé halli við húsin
sem skapi eifiðleika í vetrarfærð
og í þriðja lagi stækkunarmögu-
leikar nægir.
Þrír staðir á Sauðárkróki hafa
verið nefndir sem hentugar lóð-
ir undir þjónustuíbúðir eldri
borgara. Með tilliti til aðgengis
og þjónustuþátta og eftir að hafa
kynnt sér staðsetningu húsa og í-
búða í Borgamesi og á Selfossi,
er álit nefndarinnar að fjölbýlis-
hús sem hér um ræðir sé best
komið á sléttlendi, annað hvort á
þeirri lóð sem úthlutað hefur ver-
ið á Flæðunum eða á svæði sem
skipulagt hefur verið undir fjöl-
býlishús við Víðimýri, austan
Abæjar. Mælt er með að gerður
verði uppdráttur að hugsanlegu
húsi þar og staðsetningu með
svipuðum hætti og gert hefur
verið á Flæðunum nú þegar.
Þá telur vinnuhópurinn að
nauðsynlegt sé að í húsinu verði
sameiginlegt rými fyrir tóm-
stundir og þjónustu, en þó megi
kostnaður við það ekki koma inn
í verð íbúðanna nema að litlu
leyti, og því verði að fjármagna
það með öðrum leiðum, s.s. í
gegnum framkvæmdasjóð aldr-
aðra og framlögum frá sveitarfé-
lagi, einstaklingum eða frjálsum
félögum.
I lokagrein skýrslunnar segir
að til að nauðsynlegur kraftur
komi í málið verði sveitarstjóm
að koma að því á einn eða annan
hátt. Lagt er til að skipaður verði
framkvæmdahópur er undirbúi
byggingamar. Nauðsynlegt sé að
allir hagsmunaaðilar í málinu
eigi fulltrúa í hópnum og þar
þurfí að vera fagleg þekking til
að leggja mat á tækni- og fjár-
málaþætti. Stefnt verði að því að
verkið verði boðið út í vetur og
framkvæmdir geti hafíst næsta
vor.
Góð útkoma á skemmtisiglingum um Skagafjörð á liðnu sumri
Yfir 1200 farþegar í 42 ferðum
Ómar Unason, sem hefur
stundað skemmtisiglingar um
Skagafjörð í sumar, telur að þetta
fyrsta sumar hafí þegar sýnt að
að mjög góður grundvöllur er
fyrir þessari starfsemi. Frá miðj-
um júlí hafa verið famar 42 ferð-
ir og farþegafjöldinn í þessum
ferðum er liðlega 1200 manns.
Þá sér Ómar fram á að tíminn
sem sótt er í þessar siglingar er
Iengri en liann ætlaði. Þannig
liggja fyrir pantanir í tvær ferðir
í þessum mánuði.
í vor var keypt til Skagafjarð-
ar hraðskeytt skip til skemmti-
siglinga sem tekur 62 farþega.
Aðaleigendur skipsins em Ömar
Unason og Sigurður Friðriksson
á Bakkaflöt en um kaupin var
stofnað hlutafélagið Eyjaskip.
Siglingarnar um Skagafjörð í
sumar vom aðallega í svokölluð-
um „gullna þríhymingi”. Siglt
var umhveríis Drangey og norð-
ur fyrir Málmey og Þórðarhöfða.
Ekki fer hjá því að mjög góð
veðrátta í sumar hjálpaði til með
góða nýtingu á stuttum útgerðar-
tíma Straumeyjar. en það nafn
fékk skemmtiferðaskipið.
„Það liggur við að við höfum
farið á sjó á hverjum degi. Félag-
ið stendur ágætlega eftir þennan
tíma en samt á eftir að vinna í
hlutafjáimálunum. Veturinn verð-
ur svo notaður til að vinna í
markaðsmálunum og þetta lítur
vel út”, segir Ómar Unason.
Talsvert er um fólk leggi leið sína upp á nýja skíðasvæðið í
Tindastóli til að komast í enn meira návígi við tjallið og virða
fyrir sér þá aðstöðu til skíðaiðkunar sem þar er komin, þó
snjólaust sé enn, enda fegurð fjallanna mikil og ný veröld
opnast fyrir marga. En Sigurður Þorbjömsson frá Geita-
skarði þekkti þó til uppi í Lambárbotnum, kom þar ungur
drengur þegar hann átti heima á Heiði, en þess má geta að
Þorbjöm Björnsson faðir hans, einn Veðramótssystkina var
meðal stofnenda Tindastóls. Með Sigurði í för síðasta
sunnudag og honum til sitthvorrar liandar, voru hjónin
Ingibjörg Bjamadóttir og Ingvar Steingrímsson á Blöndu-
ósi, kennd við Eyjólfsstaði í Vatnsdal.
Slysadagur í Húnaþingi
Sunnudagurinn síðasti var
mikill slysadagur í Húnaþingi
vestra. Þá urðu tvö alvarleg
slys, rækjubáturinn Ingi-
mundur gamli fórst og með
honum skipstjórinn Friðrik
Jón Friðriksson. Aðfaranótt
sunnudag var ekið á miðaldra
hjón við félagsheimilið Víði-
hlíð, þar sem þau voru á gangi
á þjóðveginum skammt frá.
Þau vona flutt með þyrlu á
sjúkrahús í Reykjavík mikið
slösuð.
Tveim mönnum var bjarg-
að af Ingimundi gamla en til
aðstoðar kom bátur frá
Hólntavík sem var á veiðum
skammt frá. Friðrik heitinn
var 64 ára, búsettur á
Hvammstanga og lætur hann
eftir sig eiginkonu og þrjár
uppkomnar dætur.
—KTCH^ÍH eh$— SIWfMbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sínii 453 5519, fax 453 6019 Æ JLJLMlÆ. sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA JfcBílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Réttingar ^ Sprautun