Feykir - 11.10.2000, Qupperneq 5
34/2000 FEYKIR 5
Réttarferðin meiri
tímamótaviðburður í lifi
minu en sjálf fermingin
Þessi dásamlegi dagur leið nú að
kvöldi og brátt var haldið heinrleiðis.
Þegar fé er rekið úr Stafnsrétt til
Skagafjarðar, er um tvær leiðir að
velja. Önnur er austur um Kiðaskarð
en hin út Svartárdal, upp hjá Hvammi
og síðan norður fjallið og norður í
Valadal. Sjálfgefið er fyrir Lýtinga að
velja Kiðaskarðið. Beinna liggur
hinsvegar við fyrir Seylhreppinga og
okkur frá Eyhildarholti að reka norð-
ur fjall. Það gerum við líka.
Allmargt fé var enn ódregið í rétt-
inni er við fórum en nokkrir menn
urðu eftir til að hirða það. Féð var
heimfúst og rakst vel út Svartárdal-
inn, enda rekstrarmennirnir margir.
Sveigt var út af veginum hjá
Hvammi og féð rekið þar upp á fjall-
ið, sem kallað er, en er raunar frem-
ur heiði en fjall. Er það mun auðveld-
ari leið en upp Stafnsbrekkurnar, sem
eru bæði hæm og miklu brattari.
Myrkur var nú skollið á og við
bættist ærin ófærð, því töluvert hafði
snjóað á fjallinu. Hægviðri var og
með nóttunni gerði allskarpt frost.
Það gerði mér ekkert því föt mín voru
nú þurr orðin og auk þess gat eg
gengið mér til hita, fyndist mér þess
þörf. Gerðist féð nú latrækt í ófærð-
inni, enda þreytt orðið eftir langar
göngur og réttarrag. Máttu menn hafa
sig alla við til að gæta þess að ekkert
týndist úr hjörðinni og kom sér því
vel, að rekstrarmennirnir voru marg-
ir. Ein og ein kind gafst jafnvel upp
og var þá tekin á hnakknefið. Man eg
að pabbi reiddi veturgamla gimdur
sem hann átti, akfeita og níðþunga.
Hún hét Heillin og átti eftir að verða
afbragðs ær. En Þyrill gamli kafaði
ófærðina með tvöfalda byrði á bak-
inu, bruddi beislismélin og þótti ferð-
in sækjast seint.
Út í Valadal var komið síðla næt-
ur. Lengra var ekki farið með féð að
sinni, en það rekið í girðinguna og
skyldi svo dregið sundur að morgni.
Var það áreiðanlega hvíldinni fegið.
Rekstrarmennirnir riðu nú hver
heim til sín nema við pabbi, enda áttu
þeir mun styttra að fara. Þau Vala-
dalshjón, Jón Árnason og Dýrborg
Daníelsdóttir, voru á fótum þótt álið-
ið væri nætur. Synir þeirra tveir, mig
minnir að það væru þeir Kári og
Gissur, voru meðal rekstrarmanna og
auk þess var pabbi vanur að gista í
Valadal á leið úr Stafnsrétt. Kaffiilm-
inn lagði um húsið. Þess mun óspart
hafa verið neytt og mig grunar raun-
Góð þátttaka í sundmóti
Tindastóls og Kiwanis
Nítjánda sundmót Kiwanis-
klúbbsins Drangeyjar og U.M.F.
Tindastóls var haldið í sundlaug
Sauðárkróks, fimmtudaginn 5.
október. Alls mættu 37 keppendur
til leiks í kulda og trekki. Keppt var
um Kiwanisbikarinn í þremur
aldurshópum stráka og stelpna.
Hlutskörpust í hópi stúlkna var
Margrét Guðmundsdóttir. í flokki
telpna Rannveig Einarsdóttir, í flokki
meyja Heiða Björk Jóhannsdóttir og
í flokki sveina Ingvi Aron Þor-
kelsson. Þetta sundfólk vann glæsi-
lega bikara til eignar sem Kiwani-
sklúbburinn gaf til keppninnar.
Óhætt er að fullyrða að mikil gróska
er í sundíþróttinni og keppendur frá
Tindastóli hvarvetna til sóma.
ÞÞ.
Vöruflutningar
Sauðárkrókur - Skagaljörður
Daglegar ferðir
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningum Héðinsgötu 2
Sími 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.
Hér birtist fjórði og síðasti hluti skenimtilegra bernskuminninga
Magnúsar frá Frostastöðum af ferð í Mælifellsrétt og Stafnsrétt.
ar að þeir pabbi og Jón hafi setið á
skrafi yfír kaffibollanum og ef til vill
einhverri brjóstbirtu nóttina út. Eg
hafði hinsvegar hallað mér upp í rúm
þar sem búið hafði verið um mig og
leið þar inn í svefninn með tónlist lið-
ins dags í eyrunum, jarm fjársins og
söng kóranna í einum óaðgreinanleg-
unt hljómi, hljómi Stafnsréttar.
Morguninn eftir komu svo Seyl-
hreppingarnir. Féð var rekið í rétt,
dregið í sundur og hver rak sinn hóp
síðasta áfangann heim. Veðrið var hið
blíðasta, logn, sólskin og sterkjuhiti.
I rauninni alltof heitt fyrir féð. En við
gátum leyft okkur að fara hægt og þó
náð að koma fénu út í Borgareyna
fyrir myrkur.
Eg átti eftir að fara margar ferðir í
Stafnsrétt eftir þetta. Allar voru þær
skemmtilegar þótt fyrir kænti að
þeim fylgdi nokkur vosbúð. En eng-
in þeirra stendur mér þó eins ljóslif-
andi fyrir hugskotssjónum og þessi
frumraun. Mér fannst, þegar frá leið,
að hún væri mun meiri tímamótavið-
burður í lífi mínu en sjálf fermingin
og vil eg þó engan veginn gera lítið
úr þeirri athöfn.
Magnús H. Gíslason.
VETRARÁÆTLUN
ÍSLANDSFLUES
2. 10. 2000 - 24. 3. 2001
Brottför SAK Mœting
Mánud. - Föstud. 09:30 09:00
18:20 17:50
Laugardaga 10:20 09:50
Sunnudaga 18:20 17:50
ÍSLANDSFLUG
flýgur 12 ferðir
í viku til Sauðárkróks
Stöndum vörð um góðar samgöngur
til Skagafjarðar.
Nýtum okkur flugið
^'ÍSLANDSFLUB
Sími 453 6888 • Fax: 453 6889
Netfang: sak@islandsflug.is