Feykir - 11.10.2000, Page 7
34/2000 FEYKIR 7
Undir borginni
Maður heyrir í hjartanu kall
kynslóðanna á hverjum bæ
Frá Sævarlandsvík. Skaginn í vetrarbúningi.
Það er margt sem ber fyrir
augu þegar skotist er í ferðir þó
ekki sé farið langt. Ein ferð, far-
in í frábæru veðri fyrir Skagann
getur gefið manni mikla á-
nægju. Þó að fækkað hafi fólki
í Skagabyggðum er mann-
lífsandinn þar enn rismikill og
vonandi verður svo sem lengst.
I sumar fór ég fyrir Skagann,
enda vil ég helst geta farið slíka
ferð að lágmarki einu sinni á
ári. Dóttir mín var með í för.
Við komum við í Selvík og ég
sat uppi á bakkanum þar og sá
fyrir mér skipaher Kolbeins
unga á víkinni meðan dóttir
mín fór niður í íjömna og skrif-
aði ljóð í sandinn. Hugurinn
sveimaði víða á þessari Selvík-
urstund. Hugsað vartil karlsins
í Selnesi sem sat þarna ör-
skammt frá fyrir ekki svo
löngu og rýndi í sín seiðhjalla-
fræði. Einnig var hugsað til hins
eineygða Bergskálaskálds
Gunnars Einarssonar og lífsbar-
áttu hans. Þegar ekið var fram-
hjá hinu hrörlega húsi sem forð-
um hýsti hann og fjölskyldu
hans komu í hugann hendingar
með breyttum formerkjum:
“Drjúpir Bergskáli,
dáinn er Gunnar.
Hann í mergmáli
meitlaði kunnar
stökur sem lifa
og standa í minni.
Margt var til þrifa
þá héma inni!”
En þó margt merkið sé niður
fallið. hafa aðrir sett upp nýja
gunnfána og vonandi verður sú
aðstaða sem Skagabændur hafa
byggt upp í Selvík mörgum til
lífsbjargar og lifandi hagræðis á
komandi ámm. Það er hægt að
gera út frá Selvík án þess að
ætla að fara báli og brandi um
Vestfirði. Það er að minnsta
kosti sá munurinn á Kolbeini
unga og Bjama á Hvalnesi, að
sá síðamefndi er ólíkt friðsam-
ari, þó skagfirskt sé blóðið í
báðum.
Ég kom í ferð þessari að
Hvammi og þótti mér þar auðn-
arlegt um að litast. Þar var einn
forfaðir minn prestur og marg-
ir hafa setið þá torfu, þó einn og
einn hafi kannski flosnað upp
og jafnvel flúið til Vesturheims.
Ekki hefði ég á móti því að vita
alla sögu Hvamms frá upphafi
og þá Atlastaða með. En ekki er
sá fróðleikur á lausu þó hann sé
vafalaust fyrir hendi á allífs-
filmunni.
Ég gekk um kirkjugarðinn
og ekki vom hin merktu leiði
mörg. Það ríkti þama friður og
kyrrð og liðinna alda amstur og
annríki var allt komið í jörð
með þeim sem að því stóðu á
sínum tíma. í hugann flaug lítið
vísukom:
Fyrr hér mátti andann ema
eygja kjamamanns.
En ekki sé ég Amór héma
eða skeggið hans !
Ein ferð fyrir Skagann! Svo
margt að sjá og skynja! Maður
heyrir í hjartanu kall kynslóð-
anna á hverjum bæ og blærinn
syngur söguríkur um famar
slóðir. Enginn rauðkinnungur
liggur nú á dögunt í bæli við
Ketubjörg og skapar mann-
hættu. En skemmtiferðamenn
nútímans ganga fram á björgin
og dást að fegurð lands og sjáv-
ar. Mikill höfundur hefur smíð-
að það sköpunarverk sem við
augum blasir þar sem víðar og
kannski fínnst einn og einn í
ferðamannahópunum sem
þakkar í hljóði fyrir sig. Ég
gerði það að minnsta kosti af
heilum huga. Ein ferð fyrir
Skagann - það erekki lítið!
Rúnar Krist jánsson.
Smáauglýsingar
Ymislegt!
Til sölu tjögur notuð vetrar-
dekk á felgum, stærð 185/70
13”. Passa m.a. undir Toyota
touring 4 WD . Upplýsingar í
síma 453 5245 eða 862 6471.
Dráttarvél!
Til sölu Styr 970 árgerð ‘96
með tækjum, mjög góð vél.
Upplýsingar gefur Jón í síma
453 8258 í hádeginu eða á
kvöldin.
Oska eftir sófa eða sófaborði,
skrifborði, sjónvarpi, önrmustól
og eldhúsinnréttingu, geins eða
fyrir lftinn pening. A sama stað er
til sölu hvítt bamarúm fyir 6-8
ára, sem hægt er að breya.
Upplýsingar í síma 869 6251
(Sigrún)..
Húsnæði!
Þriggja herbergja íbúð í
Sjálfsbjargarhúsinu er til leigu
strax. Upplýsingar gefur Þóra
Kristjánsdóttir í síma 453 5405.
Gott einbýlishús í nágrenni
Sauðárkróks til leigu. Upplýs-
ingar í síma 453 5558.
AVIS Bflaleigan
Sauðárkróki, sími 899 8631.
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eftir
seðlinum með áskriftargjaldinu.
Athugið! Athugið! Athugið!
Viltu léttast hratt og örugglega en borða ennþá
uppáhaldsmatinn þinn?
Misstu I kg. á viku! FRÍ SÝNISHORN!
Hringdu núna ísíma 552 4513
Eða skoðaðu: www.heilsuverslun.is
Heilbrigðisfulltrúi
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
Norðurlands vestra
Hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra er laus til umsóknar tímabundin staða
heilbrigðisfulltrúa. Stefnt er að því að ráða í stöðuna frá miðjum nóvember n.k.
Menntunarkröfur: Sbr. reglugerð um menntun réttindi og skvidur heilbrigðisfull-
trúa, nr. 294/1995. Háskólapróf í heilbrigðis- og umliverfiseítirliti eða
skyldum greinum og/eða starfsreynslu eða önnur sambærileg menntun
(t.d.. líffræði, matvælafræði eða dýralæknir).
Aðsetur Heilbrigðiseftirlitsins er að Aðalgötu 2 Sauðárkróki en til greina kernur að
ráða starfsmann sem hefur aðsetur :innars staðar á Norðurlandi vestra.
Upplýsingar veitir Sigurjón Þórðarson, ftkvstj. Heilbrigðiseftirlits Norðurlands
vestra, í síma 453 5400 og 893 0919.
Skriflegum umsóknum skal skilað fyrir 1. nóvember 2000.
■ij Heilbngðisstofnunin
Sauðárkróki
Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku í stofnuninni í
október og nóvember:
Tímabil Læknir Sérgrein
9/10-13/10 Sigurður Albertsson skurðlæknir
16/10-20/10 Arnbjörn Arnbjörnsson bæklunarlæknir
23/10-27/10 Hrafnkell Óskarsson skurðlæknir
30/10-3/11 Valur Þór Marteinsson þvagfæraskurðlæknir
6/11-10/11 Vilhjálmur Andrésson kvensjúkdómalæknir
13/11-17/11 Ólafur R. Ingimarsson skurðlæknir
20/11-24/11 Arnbjörn Arnbjörnsson bæklunarlæknir
27/11 -1/12 Haraldur Hauksson skurðlæknir
Tímapantanir í síma 455 4000.