Feykir - 01.11.2000, Blaðsíða 7
37/2000 FEYKIR 7
Nr. 318. Nr. 318.
Tindastóll fær Hamar í
heimsókn annað kvöld
Tindastóll tapaði naumlega
fyrir Keflvíkingum í Epson-
deildinni sl. fimmtudagskvöld,
78:81 í Keflavík. Næsti leikur í
deildinni verður gegn Hamri
sem kemur í heimsókn annað-
kvöld. fimmtudagskvöld, og
Tindastólsmenn heimsækja síð-
an Þórsara á Akureyri á sunnu-
dagskvöldið.
Tindastóll lék við Reyni í
Sandgerði í Bikarkeppninni á
laugardag og sigraði örugglega
87:52. A sama tíma mættu
Smáramenn í Varmahlíð Léttis-
mönnum og stóðu í þeim, töp-
uðu einungis með 11 stigum,
69:80.
hugann sem tengist minningu
hins liðna tíma. Eitt sumar
haustaði óvenju snemma og
tókst Þverárdalsfólkinu ekki að
ná heim heyinu utan af svoköll-
uðum sléttum áður en allt varð
ófært vegna snjóa. Var heyið sett
saman þar útfrá en eftir að kom
fram á veturinn réðust mál
þannig að ákveðið var að ég færi
ásamt föður mínum og Jónasi í
Blöndudalshólum, sem hafði
öfluga dráttarvél á tvöföldum
dekkum að aftan. Seint gekk
okkur að komast uppeftir en eft-
ir að þeim áfanga var náð var
ekki staðar numið, og strax reynt
að finna færa leið fyrir vélina út
á sléttumar. Tókst það vonum
framar og byrjuðum við feðgar
strax að binda heyið úr fúlgunni
í reipi. Settum síðan sáturnar á
gaffal sem Jónas hafði aftan á
vélinni og flutti hann þær heim
til Áma jafnóðum og bundið var.
Af kappi var unnið allan daginn
og í myrkri um kvöldið höfðum
við lokið við að binda alla fúlg-
una og fengum að vera á vélinni
hjá Jónasi í síðustu ferðinni
heim. Beið okkar þar dásamlegt
veisluborð. sem reyndar kom
mér þá orðið ekki að óvörum í
Þverárdal. Eitt var þó óvenjulegt
og lifði ég slíkt hvorki fyrr né
síðar, að Árni í Þverárdal veitti
gestum vín. Kom hann með á
borðið hálfs annars pela flösku.
eins og það var þá orðað. Köll-
uðu þá reyndar sumir gleðimenn
drykk þannan „helgavatn” og
bað hann okkur endilega að setja
vel út í kaffið. Dásamlega kvöld-
stund áttum við hjá þessu yn-
dæla fólki og héldum við glaðir
heim eftir að fögur vetramóttin
hafði tekið völdin í fjallasalnum.
Það var yndælt að sitja í
Sauðárkrókskirkju og heyra álft-
irnar kvaka í flutningi Heimis-
manna. Magga í Þverárdal átti
slíkt fyllilega skilið að útfarar-
dagurinn yrði bjartur og fagur.
Bið ég dætur hennar að geyma í
minningu sinni þá alúð sem ein-
kenndi þessa elskulegu konu og
votta þeim og öðmm aðstand-
endum við fráfall hennar mína
dýpstu samúð.
Andinn frjáls um fjallasal
fer á kunnar slóðir.
Þína vist í Þverárdal
þakka vinir hljóðir.
Guðmundur Valtýsson.
Hver er
maðurinn?
Ekkert þekktist af þeim
fjórum myndum sem birtust í
síðasta myndaþætti. Nú eru
enn birtar fjórar myndir.
Myndir 316 og 317 em úr eigu
Bjama Haraldssonar, mynd nr.
318 frá Áma Blöndal og nr.
319 frá Pálma Sigurðssyni
flugstjóra í Reykjavík.
Þau sem þekkja myndimar
em beðin að hafa samband við
Héraðsskjalasafn Skagftrð-
inga. Síminn er 453 6640.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Ttl sölu 4 stk. negld Marshal
dekk. Stærð 175/65x14. Upplýs-
ingar gefur Helga í síma 453
59Ó4eða 868 6794..
Til sölu Toyota Corolla XL
árg. ‘92 sjsk. Fallegur og góður
bíll, vel með fainn, ekinn aðeins
85.000 km. Staðgr.verö 350.000.
Upplýsingar ísíma 453 5729
eða 552 4275.
Til sölu VW Golf (skutbfll),
árg. 1995, ekinn 125.000 km.
Verð 590.000 kr. Upplýsingar í
síma453 5530.
Ttl sölu hænuungar, íslenski
stofninn. Upplýsingar gefur
Margrét í síma 453 8054.
Húsnæði!
Þriggja herbergja íbúð í
Sjálfsbjargarhúsinu er til leigu
strax. Upplýsingar gefur Þóra
Kristjánsdóttir í síma 453 5405.
Gott einbýlishús í nágrenni
Sauðárkróks til leigu. Upplýs-
ingar í síma 453 5558.
íbúð til sölu!
Þriggja herbergja íbúð í rað-
húsi með innbyggðum bflskúr.
Upplýsingar í síma 453 6083
eða 866 5603.
Félagsvist!
Félagsvist verður spiluð í
Höfðaborg Hofsósi fimmtu-
daginn 9. nóvember nk. kl. 21.
Kaffiveitingar - fjölmennum.
F.E.B.H.
Áskrifendur góðir - munið eftir að greiða áskriftargjöldin
Á vorönn 2001 verður starfrækt
við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á
Sauðárkróki
Vélavarðanám og
samningsbundið iðnnám
(Bifvélavirkjun, rafvirkjun og vélsmíði)
ef næg þátttaka fæst.
Allir áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu
skólans í síma 453 6400 eða aðstoðarskólameistara
í síma 453 6631 fyrir 15. nóvember.
Skólameistari.
Á vorönn 2001 verður
starfrækt við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á
Sauðárkróki
Nám á sjúkraliðabraut
og Öldungadeild
(íslenska, danska, enska og stærðfræði)
ef næg þátttaka fæst.
Kennt verður með myndfundabúnaði á eftirtöldum stöðum:
Sauðárkrókur, Siglufjörður, Blönduós, Skagaströnd og Hvammstangi.
Allir áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu skólans
í síma 453 6400 eða aðstoðarskólameistara í síma 453 6631.
Skólameistari.