Feykir - 08.11.2000, Page 4
4 FEYKIR 38/2000
„Þó við stöndum fyllilega að baki kennurum
er ljóst að verkföllin hafa bitnað mest á okkur“
segir Guðjón Marinó Ólafsson formaður Nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
„Það er líflegur og góður andi í skólanum og félagslífið betra en oft áður.
Ég held það sé alveg klárt að framboð á afþreyingu og félagsstarfi sé
mjög gott og eitthvað við hvers hæfi. Við höfum verið að stofna nýja
klúbba í vetur og það er líka mikið íþróttalíf í skólanum. Á dögunum
bárum við sigur úr bítum í frjálsíþróttakeppni framhaldsskólanna sem
fram fór á Laugarvatni. Við erum núverandi handhafar körfuboltatitils-
ins og svo má ekki gleyma því að við sigruðum í söngvarakeppninni í
fyrra og eigum því titil að verja núna í vetur. Ég held að það búi alveg
ótrúlegir hæfileikar í nemendum skólans og við eigum mjög frambæri-
legt og gott fólk sem hægt er að virkja á ýmsan hátt’segir Guðjón Mar-
inó Ólafsson frá Siglufirði formaður Nemendafélags Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra. Guðjón segist kunna vel við sig í skólanum á
Króknum, en hann verði þó alltaf Siglfirðingur. Hann gerir þó ekki mik-
ið úr rígnum sem stundum hefur örlað á milli Siglfirðinga og Skagfirð-
inga, segir að það sé nú bara mest í nösunum og komi ekki upp nema við
einstök og sérstök tækifæri.
Guðjón er einn væntanlegra stúd-
entsefna frá FNV sem nú fyrir helgina
(viðtalið var skrifað fyrir rúmri viku)
voru í Reykjavík að gefa blóð til Blóð-
bankans. Guðjón sá sér ekki fært að
fara með hópnum.
„Það er yfirvofandi kennaraverkfall
sem setur strik í reikninginn. Formað-
ur hvers nemendafélags myndar fram-
kvæmdanefnd í Félagi framhaldsskóla-
nema, samtökum sem telja um tíu þús-
und manns. Við höfum lagt okkar að
mörkum í sambandi við verkfallið, efnt
til undirskriftarsöfnunar, sem mjög góð
þátttaka var í, og reynt að miðla þeirri
reynslu sem framhaldsskólanemar hafa
haft að undangengnum verkföllum. Þó
við stöndum fyllilega að baki kennur-
um þá er þó alveg ljóst að verkföllin
hafa bitnað mest á okkur. Við fáum í
gegnum Félag framhalssskólnema að
fylgjast mjög grannt með gangi mála,
og það er síðan okkar sjómenda nem-
endafélaganna að miðla þeim upplýs-
ingum til okkar nemendasamfélags.”
Bitnar yfirvofandi verkfall á
starfi skólans?
„Nei það gerir það ekki, kennarar
halda sínu striki og við nemendurnir
líka. En hinsvegar setur þetta svolítinn
Guðjón Marinó Ólafsson frá Siglufirði formaður Nemendafélags
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
svip á andann í skólanum. Við höfum
áhyggjur af stöðunni engu síður en
kennaramir. En það er alveg ljóst að
við nemendurnir verðum ef til verk-
falls kemur, og ég legg áherslu á það,
að við verðum að halda okkar námsá-
ætlun og vera þessvegna tilbúin að fara
í próf í desember ef verkfallið stendur
svo lengi.”
En þú segir að félagslífið sé gott í
skólanum?
„Já við emm búin að halda tvö böll
Nýjar æviskrár Skagfirðinga
Út ér komin hjá Sögufélagi Skag-
firðinga fjórða bindi af Skagfirskum
æviskrám frá tímabilinu 1910-1950.
Bókin geymir 100 æviskrárþætti
fólks sem uppi var í héraðinu á fyrri
hluta aldarinnar og í mörgum tilfell-
um fram undir okkar daga. Kennir
þar margra grasa úr mannlífsflóru
Skagafjarðar og fjallað um marga
kunna borgara víðsvegar úr héraði
og af Sauðárkróki sem settu svip á
samfélagið. Þar eru m.a. þættir um
Veðramótsbræður, um Ludvig
Kemp, skáldin Gísla Ólafsson, Þor-
stein í Gilhaga og Hálfdan á Giljum,
um Guðmund Andrésson dýralækni,
um Jón Björnsson í Gránu og Sigfús
bróður hans, um Ólínu á bakaríinu
og menn hennar Guðjón Sigurðsson
og Snæbjörn Sigurgeirsson, um
Kristin Briem kaupmann og Jón
Björnsson tónskáld á Hafsteinsstöð-
um og konur þeirra svo einhverjir
séu nefndir. Síðast en ekki síst má
telja einkar litríkan þátt um Gísla
„lága” af Skaganum og sambýlis-
konu hans, Önnu Jónsdóttur. Þar fer
Árni Gunnarsson þáttarhöfundur á
fágætum kostum:
,,Um uppvaxtarár Önnu er fátt
viðað, sem til fróðleiks yrði tíundað.
Samtíð sinni er hún minnisstæð sem
roskin kona, lifandi ímynd þeirra
kynsystra sinna, sem dregnar eru
fram í dagsljósið í sögum þessarar
þjóðar, kynslóð eftir kynslóð, hver
annarri líkar. Enginn lét sig varða
vonir þeirra og væntingar og úr být-
um báru þær það, sem bændur þeirra
og húsbændur töldu þeim nægja.
Ekki varð á Önnu séð, að hún
harmaði hlutskipti sitt, sem flestum
mun hafa verið fullkomlega öfund-
laust. Húsakynni lélegri en sæmileg
gripahús á þeim tíma og sambýlis-
maðurinn bar í dagfari sínu fátt það
er líklegt sýndist til að bæta upp ytri
skilyrði.
Anna var skepnuvinur, og leiða
má að því líkur, að þau andartök
hlýrrar nærveru, sem hverjum manni
standa að líkindum öðrum gildum
ofar, hafi hún átt með sínum mál-
lausu vinum. Það veit hins vee;,v
enginn með vissu.
Séra Helgi Konráðsson segir í lík-
ræðu um Önnu, að hún hafi verið
skyldurækin og vinnusöm. Hún hafi
annast fóstru sína rúmliggjandi í 11
ár. Hún hafi verið trúhneigð og æv-
inlega lesið guðsorð á helgidögum.
Symbólsk staða alþýðukonunnar frá
þeim tíma er „lífsvonin eina er sam-
tvinnuð krossinum rauðum”. í Sjálf-
stæðu fólki heitir þessi kona Hall-
bera, í öðrum bókum eitthvað annað.
„Hún var góð kona”, sagði lífsföru-
nautur hennar í banalegunni og
klappaði á mynd af henni, sem hékk
við rúmið hans. Þetta munu vera þau
einu orð, sem munað er til að féllu af
munni hans í formi mannlýsinga og
væru hlýju blandin. Kannski segja
þau meira um Önnu Sigríði Jóns-
dóttur, skartlausa alþýðukonu af
Skaga, en velgjuleg skrúðmælgi.”
Ekki er að efa að þessi bók verð-
ur fengur áhugamönnum Skagfir-
skra æviskráa, en hún er 15. ævi-
skrárbókin sem Sögufélag Skagfirð-
ino^ heflir nt
og menningarkvöld. Stofnaður hefur
verið leiklistarklúbbur og málfundafé-
lag, og efnt til spilakeppni í skólanum,
„kanakeppni”, þar sem sjónvaip var í
verðlaun. Við höfum líka verið að
keyra í gegn prófgram í sambandi við
spumingakeppni framhaldsskólanna „-
Gettu betur”. Þetta er æfingaáætlun
sem miðar að því að þjálfa nemendur
fyrir þessa keppni, en hingað til hefur
það aðeins verið síðasta vikan fyrir
keppnina sem nýtt hefur verið til æf-
inga. Nú er ætlunin að það verði
þannig að nemendur haldi áfram í
þessari æfingaáætlun, þó svo að það
fari þannig að við komumst ekki langt
í keppninni núna. Markmiðið er vita-
skuld leynt og ljóst að vinna þessa
keppni í framtíðinni, enda er það engin
smá auglýsing fyrir hvem skóla að
komast í sjónvarpskeppnina. Skólayf-
irvöld hafa líka stutt okkur vel í þessu
efni.
Svo er von á Molduxa blaðinu okk-
ar á næstu dögum. I nóvember verður
listakvöld hjá starfsdeild skólans og á-
stæða að hvetja fólk til að mæta þar,
enda hæfileikafólk í deildinni sem á
það skilið að því sé veitt eftirtekt. Stúd-
entsefni verða með uppákomu í tilefni
1. des. Svo er söngvarakeppnin eftir
áramótin, Opnu dagamir, árshátíðin og
þessir föstu viðburðir í starfi skólans.
Með mér í stjóm nemendafélagsins
er mjög gott og duglegt fólk, stjómin er
mjög samhent”, sagði Guðjón Marinó
en með honum í stjóm em þær Erla
Guðrún Gísladóttir og Helga Kristín
Gestsdóttir frá Blönduósi, Guðný Erla
Steingrímsdóttir og Garðar Víðir
Gunnarsson frá Sauðárkróki og Ægir
Finnsson og Vilhjálmur Ámason frá
Hofsósi.