Feykir


Feykir - 08.11.2000, Blaðsíða 5

Feykir - 08.11.2000, Blaðsíða 5
38/2000 FEYKIR 5 Gamli bæjarhlutinn á Blönduósi. Aldrei dreginn í efa réttur íbúð- areigenda til endurgreiðslu Opið bréf til ritstjóra Feykis vegna fréttar um félagslegar íbúðir eldri borgara í A.-Húnavatnssýslu I blaði yðar, Feyki, birtist á fremstu síðu þann 1. nóvember s.l. frétt frá héraðsnefnd A.- Húnavatnssýslu varðandi íbúð- ir eldri borgara í A.-Húnavatns- sýslu sem staðsettar eru við Flúðabakka 1 og 3 hér á Blönduósi. Fyrst farið er að hreyfa þessu vandræðamáli á opinberum vettvangi, þótti stjórn Félags eldri borgara í A,- Hún. rétt að eftirfarandi kæmi fram: í upphafi vega var það hér- aðsnefndin sem kom bygging- armálum umræddra íbúða á Flúðabakkanum af stað á sínum tíma með skipun undirbúnings- nefndar til þess að kanna þörf fyrir byggingu íbúða fyrir eldri borgara í sýslunni. Sú nefnd skilaði jákvæðri niðurstöðu og í framhaldi af því var Félag eldir borgara stofnað fyrir tilstilli sömu aðila í þeim tilgangi að hrinda í framkvæmd félagsleg- um íbúðum aldraðra. Byggingamefndin var skip- uð þremur aðilum, frá Blöndu- ósbæ, héraðsnefnd og Félagi eldri borgara. Allir þessir aðilar tóku þátt í störfum byggingar- nefndarinnar til loka byggingar- tímans, hvað allar ákvarðanir snertir svo sem verksamninga og fjármál. Hvað fjármálin snertir þá samþykkti héraðs- nefndin bakábyrgð vegna fram- kvæmdanna enda engar líkur á að stjóm Húsnæðisstofnunar eða aðrar lánastofnanir hefðu lánað fé til framkvæmdanna án slíkrar ábyrgðar. Strax í upphafi og æ síðar af- greiddi stjóm Félags eldri borg- ara allar innlausnarbeiðnir með fyrirvara um samþykki héraðs- nefndar enda ætíð litið svo á að sveitarstjórnimar eða héraðs- nefndin væri fjárhagslegi ábyrgi aðilinn þar á bak við. Aldrei var dregið í efa að íbúðareigendur ættu rétt á endurgreiðslu óskuðu þeir eftir að verða leystir frá íbúðunum. Þann skilning hafði og héraðsnefnd og sá framan af um allar slíkar fyrirgreiðslur umyrðalaust. Þegar fram liðu tímar kom að því, að erfitt reyndist að fá kaupendur að þessum íbúðum. Flutningur fólks úr dreifbýlinu á Stór-Reykjavíkursvæðið hef- ur gert það að verkum að verð- lag fasteigna þar hefur fallið en verðlag félagslegu íbúðanna staðið í stað. Nú bregður svo við að hér- aðsnefndin snýr við blaðinu og neitar að greiða íbúðareigend- um eða dánarbúi þegar óskir þar um láu fyrir. Héraðsnefndin gerir gott betur, hún færir til skuldar við Félag eldri borgara fyrri greiðslur héraðsnefndar í þessum tilgangi. Félag eldri borgara í A.-Hún. er félag sem fyrst og fremst hef- ur það að markmiði að sjá um félagslegan þátt eldri borgara í sýslunni. Að taka að sér fjár- hagslegar skuldbindingar er víðs fjarri, þótt félaginu hafi verið falin viss umsjá varðandi ofangreindar íbúðir aldraðra. Afleiðing þessa ástands sem Flúðabakkamálin hafa verið í síðan héraðsnefndin snérist beinlínis í andstöðu við lausn þeirra með því að halda því fram að þau hafi aldrei verið á hennar vegum nema á bygging- artímanum er sú, að málin í heild eru í óreiðu og kostnaður hleðst upp vegna vanskila á lán- um auk þeirrar óvissu og ör- yggisleysis sem íbúar og eig- endur Flúðabakkaíbúðanna hafa búið við undanfarið. Staðreyndin er sú að héraðs- nefndin hefur á undanfömum mánuðum sýnt mikla viðleitni til þess að leysa umrædd mál með samkomulagi og í sam- vinnu við Félag eldri borgara og íbúðalánasjóð, en nú á síð- ustu stundu (24. okt.) kippt að sér hendinni og slegið strik yfir öll orð og samþykktir til lausn- ar málsins. Niðurstaða alls þessa er að héraðsnefnd Austur - Húna- vatnssýslu hefur hrapalega bmgðist skyldu sinni að vera brjóstvöm héraðsbúa til góðra mála og í stað þess orðið til vandræða með því að klúðra Flúðabakkamálunum svo sem orðið er og valda þeim rúmlega 200 einstaklingum sem eru í Félagi eldri borgara í Austur - Húnavatnssýslu ófyrirsjáanleg- um eifiiðleikum og þó einkum íbúum Flúðabakkaíbúðanna. Eins og hér að framan grein- ir hefur aldrei staðið til að Félag eldri borgara í A.-Hún. sæi um greiðslur varðandi íbúðir eldri borgara. Stjórn félagsins hefur aðeins starfað sem milliliður milli héraðsnefndarinnar og íbúðareigenda. Það er því al- rangt sem fram kemur í um- ræddri frétt að Félag eldri borg- ara hafi neitað að innleysa íbúð Jökuls Sigtryggssonar. Að lokum vænti eg þess að þessi frétt mín birtist ekki á verri stað en umrædd frétt um félagslegar íbúðir aldraðra í A,- Hún. Hafi Feykir ekki krufið til mergjar og fjallað um fjárhags- erfiðleika sveitarfélaga vegna félagslegra íbúða væri rétt, að það yrði tekið til athugunar ef það mætti verða til þess, að þingmenn almennt tækju sig til og leystu þennan vanda sveitar- félaganna, vanda sem verður vart leystur nema innan veggja Alþingis. Blönduósi 6. nóvember 2000. Með vinsemd Sigursteinn Guðmundsson formaður Félags eldri borgara í A.-Húnavatnssýslu. Áskrifendur góðir! Munið eftir bankagíróinu fyrir áskrifargjöldunum fí É 11 Heilbrigðisstofnunin wr Sauðárkróki Skagafjörður Sfe Sýslumaðurinn Sauðárkróki Þetta kemur okkur öllum við! Borgarafundur í Fjölbrautaskólanum, miðvikudaginn 15. nóvember 2000 kl. 19:45 - 22:30 um vímu- og fíkniefhamál í Skagafírði Frummælendur: Gísli Gunnarsson, forseti sveitarstjórnar. Ríkarður Másson, sýslumaður og lögreglustjóri. Kolbeinn Konráðsson, húsvörður í Miðgarði. Óskar Björnsson, skólastjóri Árskóla. Ársæll Guðmundsson, skólameistari FNV. Nemendur í FNV. Páll Ragnarsson, formaður UMFT. Hera Garðarsdóttir, foreldri. Dr. Þórólfur Þórlindsson, prófessor við HÍ. Jakob Frímann Þorsteinsson, Félagsmiðstöðin Friður. Ómar Bragi Stefánsson, Menningar-íþrótta- og æskulýðsfulltrúi. Sigríður Sigurjónsdóttir, sálfræðingur. Jón Brynjólfsson, geðlæknir. Sveinn Allan Morthens, uppeldisfræðingur. Herdís Sæmundardóttir, formaður Byggðarráðs. Fundarstjórar eru Birgir Gunnarsson, framkv.stj. Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og Halldór Halldórsson dómstjóri Héraðsdóms Norðurlands vestra. Hvetjum sem ílesta tíl að mæta! HtfÍTTjMRT Landsbanki Islands hönnun í ^^^rentun BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS HF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.