Feykir


Feykir - 08.11.2000, Qupperneq 6

Feykir - 08.11.2000, Qupperneq 6
6 FEYKIR 38/2000 Hagyrðingaþáttur 305 Heilir og sælir lesendur góðir. Það er Ingibjörg Sigfúsdóttir frá Forsæludal sem á fyrstu vísurnar að þessu sinni. Áður taldi íslensk þjóð óðsnilldina gæði. Kveðin voru og lesin ljóð lærð og sungin kvæði. Nú má kaupa þessi þjóð. Þi-ykkt og gyllt í sniðum. í gerviskinni gerviljóð af gerviljóðasmiðum. Benedikt Valdimarsson frá Þröm mun hafa ort svo til konu sinnar. Tímans breyting tíðum skín og tildurs skreytir fjöðrum. Ávallt heita höndin þín hjálp mun veita öðrum. Eins og stundum áður um þetta leyti heyrist talsvert frá þingmönnum í fjöl- miðlum. Eitt sinn var eftirfarandi vísa ort um þingstörfin, án þess að ég muni hver var talin höfundur að henni. Ei vom spömð orðin þar enda meir en nóg sagt, en megnið af þeirri mælgi var miklu betur ósagt. Eins og margir vita má enginn tala í þingveislum nema í bundnu máli og leggja sumir talsvert á sig til að komast á mælendaskrá þar. I einni slíkri orti séra Hjálmar Jónsson. Áma Johnsen þekkir þjóð og þolir af honum hrekki. Gjaman vill hann gera ljóð en getur það bera ekki. Eiður Guðnason sá eitt sinn í þing- veislu að ntiða var stungið að Áma og fór hann síðan í ræðustól og las af mið- anum. Næstur fór Eiður og flutti eftir- farandi vísu. Ámi fór með eitthvert mix sem annar honum sendi. Hann er bara núll og nix frá náttúmnnar hendi. Eitt sinn var gefið út blað sem kall- að var Vesturlandspóstur. Um það leyti og hann var að syngja sitt síðasta mun Jón Þ. Bjömsson hafa ort svo. Þegar hund í hamsi ber ég hressir lundu fjömgt blað, um þessar mundir oftast er ég enga stund að lesa það. í blöðum birtast oft skondnar aug- lýsingar og mun Sigríður Sigfúsdóttir í Forsæludal hafa séð eina slíka er hún orti svo. Dálítið í brún mér brá brosti þó að vana, auglýst þegar ágæt sá undirföt á hana. Gott væri að heyra frá lesendum ef þeir kannast við eftirfarandi vísu. Aldrei á strik sér andinn náði ótuktarlega brást hann mér. Holdið er þó með réttu ráði og reiðubúið til hvers sem er. Sama má segja um þá næstu, ekki veit ég nein deili á henni. Það er flest að fara sko til fjandans held ég bara. I upphafi hélt ég ekki að svo illa mundi fara. Eitt sinn lærði ég vísur sem gerðar vom um alla mánuði ársins. Held ég að þær séu ættaðar úr Borgarfirði og er trúlega nokkuð langt síðan þær voru gerðar, ef tekið er mið af því sem sagt er um skólana. Tólf em synir tímans sem tifa framhjá mér. Janúar er á undan með árið í faðmi sér. Febrúar á fannir þó læði hann geislum lágt. Mars þó blási biturt þá birtir smátt og smátt. í apríl sumrar aftur ' þá ómar söngur nýr. I maí flytur fólkið og fuglinn hreiður býr. Íjúnísest ei sólin þá brosir blóma fjöld. I júlí baggi er bundinn og borðuð töðugjöld. í ágúst slá menn engi og bömin tína ber. í september fer söngfugl og sumardýrðin þver. í október fer skólinn að bjóða bömum heim. í nóvember er náttlangt í norðurljósageim. Þó desember sé dimmur og dýrleg á hann jól. Með honum endar árið og aftur hækkar sól. Það mun hafa verið í síðasta þætti sem rangt var farið með eina vísuna. Þakka ég upplýsingar þar um og einnig að höfundur hennar mun vera Þórður Einarsson fæddur í Nýlendu í Garði. Bjó hann nokkuð víða en síðast í Reykjavík. Birtist þá vísan hér aftur með leiðréttingu. Stelirðu litlu í steininn mátt staulast karl minn sérðu, en stelirðu miklu og standir hátt í stjómarráðið ferðu. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Blönduósi, sími 452 7154. Þetta kemur okkur öllum við Þetta kemur okkur öllum við er yfirskrift borgarafundar sem Sveitaifélagið Skagafjörð- urbýðurtil í samráði við sýslu- mann, Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks og Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra um vímu- og fíkniefnamál í Skaga- firði. Verður fundurinn á sal FNV miðvikudaginn 15. októ- ber. Margir góðir frummælend- ur taka til máls í stuttum erind- um, allt fólks sem þekkir til þessara mála frá ólíku sjónar- horni og verður víða komið við. Eftir fundinn verða al- mennar umræður um erindin og gefst fundargestum tækifæri að koma á framfæri spumingum. Foreldrar og aðstandendur eru sérstaklega hvattir til að mæta. „Því þetta kemur jú okk- ur öllum við og er orðið löngu tímabært að viðurkenna það fyrir sjálfum okkur að vímu- og fíkniefni eru hér allt í kringum okkur. Við verðum að halda vöku okkar og vera á varðbergi gegn þessari vá”, segir í til- kynningu vegna fundarins. NM|jj Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku í stofnuninni í nóvember og desember: Tímabil 6/11-10/11 13/11-17/11 20/11-24/11 27/11 -1/12 4/12- 8/12 11/12 - 15/12 Læknir Vilhjálmur Andrésson Arnbjörn Arnbjörnsson Ólafur R. Ingimarsson Haraldur Hauksson Edward Kiernan Ari Ólafsson Sérgrein kvensjúkdómalæknir skurðlæknir bæklunarlæknir skurðlæknir kvensjúkdómalæknir bæklunarlæknir Tímapantanir í síma 455 4000. Epsondeildin í körfubolta Tindastólsmenn á sigurbraut Úrvalsdeildarlið Tindastóls hefur átt velgengni að fagna síðustu vikuna í körfuboltan- uni. Liðið hefur unnið báða sína leiki í Epson-deildinni. Fyrst Hamarsmenn frá Hveragerði á Króknum sl. fimmtudagskvöld og síðan Þórsara á Akureyri á sunnu- dagskvöldið. Tindastóll er nú í þriðja sæti deildarinnar, með 10 stig eins og Grindavík sem er í öðru sæti og Haukar sem eru í því fjórða, en efstir eru Keflvíkingar með 12 stig. Tindastólsmenn áttu á bratt- ann að sækja framan af gegn Þórsurum á Akureyri. Þeir voru fimm stigum undir í leikhléi en náðu að komast yfir áður en þriðja leikhluta lauk. I síðasta fjórðungnum sýndu þeir hverjir voru betri og sigruðu örugglega 81:65. Tony Pomones, Kristinn Friðriksson og Shawn Mayers voru einna bestir Tindastóls- manna í leiknum. Kristinn gerði 21 stig.Tony 18, Mayers 17,An- dropov 9, Svavar 6, Ómar 3 og Lárus 2. Það var frekar þunglamaleg- ur körfubolti sem leikinn var á Sauðárkróki á fimmtudags- kvöldið. Heimamenn virkuðu frekar áhuga- og stemmnings- lausir í upphafi leiks og voru seinir í gang. Það voru gestirnir sem voru mun grimmari og sterkari í byrj- un, en strax í upphafi annars leikhluta voru heimamenn fam- ir að ranka við sér og tókst að halda jöfnu í hálfleik, 32:32, þrátt fyrir að vera að leika illa í fyrri hlutanum. í seinni hálfleik var síðan engin spurning hvort liðið væri sterkara og ekki bætti úr skák fyrir Hvergerðinga að þeir pirruðu sig ákaflega mikið út í dómara leiksins. Lokatölur urðu 81:63 fyrir Tindastól. Hjá Tindastóli átti Kristinn Friðriksson mjög góðan leik og þeir Maeyrs og Andropov voru einnig mjög góðir, sömuleiðis léku Ómar og Lárus vel. Stig Tindastóls: Kristinn Friðriksson 18, Shawn Mayers 17, Michail Andropov 16, Lárus Dagur Páls- son 8, Toni Pomones 8, Ómar Sigmarsson 8, Friðrik Hreinsson 3 og Svavar Birgisson 3.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.