Feykir


Feykir - 15.11.2000, Síða 1

Feykir - 15.11.2000, Síða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Nýtt sameinað verkalýðsfélag Jón gefur kost á sér til formennsku Jón Karlsson gefur kost á sér til formennsku í nýju samein- uðu verkalýðsfélagi í Skagafirði en stofnfundur verður haldinn 2. desember nk. Aætlað er að tæplega þúsund félagar verði í hinu nýja félagi. „I þeirri sameiningarvinnu sem farið hefur fram milli Öld- unnar og Fram, hef ég oft verið spurður þeirrar spumingai' hvort ég gefi kost á mér til for- mennsku í nýju félagi. Þessi spuming er réttmæt og eðlileg. Svar mitt er já”, segir Jón og em ástæður þess m.a. tilgreindar í grein hans í blaðinu í dag. „A þeim tíma sem ég hefi unnið að verkalýðsmálum hér í Skagafirði, hefi ég öðlast mikla reynslu. Ég veit hversvegna hlutir eru eins og þeir em og hverju er æskilegt að fá breytt. I kjarasamningum sem verða stöðugt flóknari er sú þekking serri kemur með reynslu nauð- synleg, ásamt því að þekkja vel til í verkalýðshreyfingunni. Hvort tveggja hefi ég í farteski. Ég vil sjá þá vinnu sem felur í sér sameiningu verkalýðsfélaga í Skagafirði í höfn”, segir Jón Karlsson. Asdís Guðmundsdóttir formaður Öldunnar segist á þessari stundu hvorki geta sagt af eða á um hugsanlegt framboð til fonnennsku. Hún ætli að bíða eftir niðurstöðu uppstill- ingamefndar, en ef til þrýstings komi muni hún skoða vel þann möguleika að gefa kost á sér. Frá poppmessu í Sauðárkrókskirkju á sunnudagskvöldið. Það voru þær Rakel Guðnadóttir og Ragnheiður Olöf Skaptadóttir sem önnuðust forsöng. Góður árangur borana eftir heitu vatni við Hofsós Lofar góðu og líkur á mjög heitu vatni Skíðasvæðið opnað um helgina Kristján Sæmundsson jarð- fræðingur hjá Orkustofnun segir að boranir sem gerðar voru skammt ofan Bræðraár í Hrolleifdal í haust lofi góðu, en frekari rannsóknir þurfi að gera á svæðinu til að unnt verði að segja til um livort það sé virkjanlegt. Þetta er betri ár- angur en hingað til hefur orðið \ið leit að heitu vatni á svæðinu í grennd við Hofsós. Borunum lauk fyrir um hálf- um mánuði og þar fannst á 540 metra dýpi 68 gráðu hiti og virt- ist fara vaxandi eftir því sem neðar dró. Kristján sagði að væntanlega væri þarna heitt vatn, en hinsvegar væri það spurningin að finna vatnsæðina. „Við emm snillingar að fara franthjá” sagði Kristján í gam- ansömum tón, og hefur þá væntanlega haft í huga boranir á Reykjum í Hrútafirði á liðnu sumri en þar fór borinn framhjá æðinni. Kristján sagðist ekki geta sagt fyrir um hvenær á- framhaldandi boranir yrðu gerðar á svæðinu í Hrollleifsdal. Páll Pálsson framkvæmda- stjóri Hitaveitu Skagafjarðar sagði að næsta skref væri að yf- irfara árangur borana. Síðan mundi það ráðast við gerð fjár- hagsáætlunar hvort að ráðist yrði í frekari boranir á næsta ári eða síðar, en Ijóst væri að til að finna heita vatnið þyrfti að bora frekar á svæðinu. Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa- og Skeiða vinna að bornum í Hrollleifsdal. Þrátt fyrir að snjólaust sé enn á skíðasvæðinu í Tindastóli og er lálendi í vestanverðum Skagafnói stefnt að opnun um næstu helgi. er kominn nægur snjór á nýja Skíða- og brettafólk getur því komið sér í viðbragðsstöðu, en þar sem talsvert þarf að vinna við und- irbúning nú í vikunni, er ekki vit- að nákvæmlega hvenær opnað verður, og skíðafólk því beðið að hafa samband við síma skíða- deildar þar semverða boð. Að sögn Gunnars Bjöms Rögnvaldssonar formanns skíða- deildar þurfti að stytta vírinn í lyft- unni og á að gera í það í dag, mið- vikudag. Því næst verða stólarnir hengdir á vírinn og lyftan stillt. Búið er að upplýsa göngubraut á svæðinu, sem er á annan kílómet- er að lengd, og einnig verða sett ljós á möstrin í lyftunni, þannig að unnt verður að skíða líka þegar rökkvað er í vetur. Fastur starfs- maður hefur verið ráðinn að skíðasvæðinu og er það Viggó Jónsson, en hann er einn þeina sem staðið hafa í fylkingarbrjósti íyrir uppbyggingu skíðasvæðisins í Tindastóli. Þar er nýlokið við að reisa skemmu fyrir skíðatixxlarann og annan búnað. Einnig er unnt að skapa þar aðstöðu fyrir fólk til að nærast þegar ntikil traffík verður á svæðinu og gamli flugvallarskúr- inn fyllist. —ICTch^íI! cftjDI— Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Æa bílaverkstæði Simi : 453 5141 Sæmundargala Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 ^Bflaviðgerðir 0 Hjólbardavidgerðir 0 Réttingar # Sprautun

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.