Feykir - 15.11.2000, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Nýtt sameinað verkalýðsfélag
Jón gefur kost á sér
til formennsku
Jón Karlsson gefur kost á sér
til formennsku í nýju samein-
uðu verkalýðsfélagi í Skagafirði
en stofnfundur verður haldinn
2. desember nk. Aætlað er að
tæplega þúsund félagar verði í
hinu nýja félagi.
„I þeirri sameiningarvinnu
sem farið hefur fram milli Öld-
unnar og Fram, hef ég oft verið
spurður þeirrar spumingai' hvort
ég gefi kost á mér til for-
mennsku í nýju félagi. Þessi
spuming er réttmæt og eðlileg.
Svar mitt er já”, segir Jón og em
ástæður þess m.a. tilgreindar í
grein hans í blaðinu í dag.
„A þeim tíma sem ég hefi
unnið að verkalýðsmálum hér í
Skagafirði, hefi ég öðlast mikla
reynslu. Ég veit hversvegna
hlutir eru eins og þeir em og
hverju er æskilegt að fá breytt. I
kjarasamningum sem verða
stöðugt flóknari er sú þekking
serri kemur með reynslu nauð-
synleg, ásamt því að þekkja vel
til í verkalýðshreyfingunni.
Hvort tveggja hefi ég í farteski.
Ég vil sjá þá vinnu sem felur í
sér sameiningu verkalýðsfélaga
í Skagafirði í höfn”, segir Jón
Karlsson.
Asdís Guðmundsdóttir
formaður Öldunnar segist á
þessari stundu hvorki geta sagt
af eða á um hugsanlegt framboð
til fonnennsku. Hún ætli að
bíða eftir niðurstöðu uppstill-
ingamefndar, en ef til þrýstings
komi muni hún skoða vel þann
möguleika að gefa kost á sér.
Frá poppmessu í Sauðárkrókskirkju á sunnudagskvöldið. Það voru þær Rakel Guðnadóttir og
Ragnheiður Olöf Skaptadóttir sem önnuðust forsöng.
Góður árangur borana eftir heitu vatni við Hofsós
Lofar góðu og líkur á mjög heitu vatni
Skíðasvæðið opnað um helgina
Kristján Sæmundsson jarð-
fræðingur hjá Orkustofnun
segir að boranir sem gerðar
voru skammt ofan Bræðraár í
Hrolleifdal í haust lofi góðu, en
frekari rannsóknir þurfi að
gera á svæðinu til að unnt verði
að segja til um livort það sé
virkjanlegt. Þetta er betri ár-
angur en hingað til hefur orðið
\ið leit að heitu vatni á svæðinu
í grennd við Hofsós.
Borunum lauk fyrir um hálf-
um mánuði og þar fannst á 540
metra dýpi 68 gráðu hiti og virt-
ist fara vaxandi eftir því sem
neðar dró. Kristján sagði að
væntanlega væri þarna heitt
vatn, en hinsvegar væri það
spurningin að finna vatnsæðina.
„Við emm snillingar að fara
franthjá” sagði Kristján í gam-
ansömum tón, og hefur þá
væntanlega haft í huga boranir á
Reykjum í Hrútafirði á liðnu
sumri en þar fór borinn framhjá
æðinni. Kristján sagðist ekki
geta sagt fyrir um hvenær á-
framhaldandi boranir yrðu
gerðar á svæðinu í Hrollleifsdal.
Páll Pálsson framkvæmda-
stjóri Hitaveitu Skagafjarðar
sagði að næsta skref væri að yf-
irfara árangur borana. Síðan
mundi það ráðast við gerð fjár-
hagsáætlunar hvort að ráðist
yrði í frekari boranir á næsta ári
eða síðar, en Ijóst væri að til að
finna heita vatnið þyrfti að bora
frekar á svæðinu.
Starfsmenn Ræktunarsambands Flóa- og Skeiða vinna að
bornum í Hrollleifsdal.
Þrátt fyrir að snjólaust sé enn á skíðasvæðinu í Tindastóli og er
lálendi í vestanverðum Skagafnói stefnt að opnun um næstu helgi.
er kominn nægur snjór á nýja Skíða- og brettafólk getur því
komið sér í viðbragðsstöðu, en þar
sem talsvert þarf að vinna við und-
irbúning nú í vikunni, er ekki vit-
að nákvæmlega hvenær opnað
verður, og skíðafólk því beðið að
hafa samband við síma skíða-
deildar þar semverða boð.
Að sögn Gunnars Bjöms
Rögnvaldssonar formanns skíða-
deildar þurfti að stytta vírinn í lyft-
unni og á að gera í það í dag, mið-
vikudag. Því næst verða stólarnir
hengdir á vírinn og lyftan stillt.
Búið er að upplýsa göngubraut á
svæðinu, sem er á annan kílómet-
er að lengd, og einnig verða sett
ljós á möstrin í lyftunni, þannig að
unnt verður að skíða líka þegar
rökkvað er í vetur. Fastur starfs-
maður hefur verið ráðinn að
skíðasvæðinu og er það Viggó
Jónsson, en hann er einn þeina
sem staðið hafa í fylkingarbrjósti
íyrir uppbyggingu skíðasvæðisins
í Tindastóli. Þar er nýlokið við að
reisa skemmu fyrir skíðatixxlarann
og annan búnað. Einnig er unnt að
skapa þar aðstöðu fyrir fólk til að
nærast þegar ntikil traffík verður á
svæðinu og gamli flugvallarskúr-
inn fyllist.
—ICTch^íI! cftjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
Æa
bílaverkstæði
Simi : 453 5141
Sæmundargala Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
^Bflaviðgerðir 0 Hjólbardavidgerðir
0 Réttingar # Sprautun