Feykir


Feykir - 06.12.2000, Blaðsíða 6

Feykir - 06.12.2000, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 42/2000 Hagyrðingaþáttur 307 Heilir og sælir lesendur góðir. Einhvemtíma mun ég hafa birt í þessum þáttum nokkrar vísur eftir Bjöm Sveinsson er síðast bjó á Gili í Borgarsveit í Skagafirði. Hafði hann búið á Botnastöðum í Svartárdal og flutt þaðan að Þverárdal og síðan yfir í Skagafjörðinn að Gili. Þegar hann flutti að Þverárdal mun hann hafa ort svo. Hvar, sem eyða ævi skal ég til reiðu svara. Upp á leiðan Laxárdal líst mér neyð að fara. Bjöm var glaðsinna maður og grínisti og orti margt snyðugt. Um svipað leyti og hann bjó á Botnastöð- um, átti heima á bæ einum framarlega í Langadal ung og falleg heimasæta. Leist mörgum vel á hana, en tveir vom sérstaklega tilnefndir sem aðdáendur hennar og var annar þeirra Sigurjón sem kallaður var Norðurlandspóstur frá Asláksstöðum í Eyjafirði, en hinn Magnús frá Miðhúsum í Þingi. A þess- um bæ var hestur einn bleikur að lit mesti stólpagripur, sem hafði þann kost meðal annarra að kunna ekki að hræð- ast. A þessum hesti var m.a. keyrt á túnið úr hlandforinni á hverju vori. Bjöm gerði grínbrag um þetta ástand allt og mun hann hafa verið kunnur í héraðinu og jafnvel sunginn í gleðskap. Því miður hefur mér ekki tekist að hafa upp á nema fyrsta erindinu, en bið les- endur sem eldri em og kannast við ljóðið að gefa mér upplýsingar þar um. Dunar af ánægju dalurinn langi dæmalaust skelfing er fjömgt þar allt, Sigurjón póstur og Miðhúsa Mangi á mænisás kærleikans vega þar salt. Eg veit ekki hvor þeirra vinnur þann leik en vona að þeir fæli ekki ‘ann hland- forar Bleik. Það mun hafa verið Bjami Jónsson bóndi á Bollastöðum í Blöndudal sem orti svo eftir að hafa hugleitt vistaskipt- in. Þegar styttist leiðin löng loks í sjónarmáli, ætli ég heyri englasöng eða snark í báli. Ásgrímur Kristinsson ffá Ásbrekku fór ekki dult með andstyggð sína á órímuðum kveðskap. Um rímleysis- skáldin yrkir hann svo. Geymdi þjóðin andans auð unni ljóðum hreinum. Er nú glóðin alveg dauð aska í hlóðarsteinum. Fáum betur yrkir óð atóms letur kálfur. Út á setur ýmsra ljóð ekkert getur sjálfur. Margir eiga að ég tel andans forða í sjóði. Aldrei get ég unað vel órímuðu ljóði. Drjúgum tryllist þessi þjóð þroska spillir sönnum að hlusta á illræmd atómljóð og öskur í villimönnum. Um hinn landsfræga Láms í Gríms- tungu orti Ásgrímur svo. Láms er í kolli klár kunnur að orðaglettum. Hefur nærri hundrað ár hampað pela í réttum. Þessa kunnu vísu Vatnsenda Rósu kannast margir við. Man ég okkar fyrri fund forn þó ástin réni. Nú er eins og hundur hund hitti á tófugreni. Þá minnir mig að þessi vel gerða vísa hafi í mín eyru verið eignuð Rósu. Hef ég lengi heimsfögnuð haft og gengið bjarta. Nú veit enginn utan guð að hvað þrengir hjarta. Tekst mér reyndar að rifja upp aðra hringhendu sem ég held að sé eftir Rósu. Ég hef friðar enga stund átt, en kviðið harmi. Mér hefur liðið eins og und opin sviði í barmi. I síðasta þætti birtust vísur eftir Gunnar Einarsson frá Bergskála. Hafa nú þættinum borist þrjár hringhendar vísur eftir Gunnar og mun sú fyrsta ort um Tindastólinn. Lít ég hóla og hnjúka á hafsins bóli synda. Fingur gjólu glettnir slá gamla stólinn Tinda. Brostinn streng og flúinn fdð finn ég genginn máttinn. Stóð þó lengi lúinn við lífsins engjasláttinn. Ei skal kvarta leiðarljós lýsir svartar nætur. Engilbjarta á ég rós innst við hjartarætur. Einhverju sinni mun Jóhann Magn- ússon á Mælifellsá hafa ort svo er hann var vörður á Kili. Nú skal hefja nýjan brag nú er gátan flókin. Einn var hér í allan dag í áflogum við lókinn. Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga, bróðir Jóa, mun eitt sinn hafa ort svo á dansleik. Það er alveg eins að sjá í fjárhúsi og ranni. Lambhrútur þegar lembir á og Lauga býðar upp manni. Bið ykkur þar með að vera sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Blönduósi, sími 452 7154. Sigurganga Tindastólsmanna heldur áfram Sigurganga Tindastóls- manna heldur áfram í körfu- boltanum. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigmðu Isfirðinga 98:88 fyrir vestan sl. sunnu- dag. Tindastóll er nú í öðm sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur færri en topplið Keflavíkur. í næstu sætum eru síðan Haukar, Grindavík og Njarðvík með 12 stig en Tindastólsmenn mæta einmitt Haukum í mjög mikilvægum leik á Króknum annaðkvöld, fimmtudagskvöld. Tindastólsmenn höfðu fmmkvæðið allan leikinn gegn ísfirðingum á sunnu- daginn og voru með 48:39 fomstu í hálfleik. I byrjun seinni hálfleiks náðu þeir síð- an 17 stiga forustu og segja má að þar með hafi bjöminn verið unninn, sigurinn var aldrei í hættu eftir það, jafnvel þó að þeir Svavar og An- tropov þyrftu að yfirgefa völl- inn með fimm villur þegar um fjórar mínútur voru eftir að leiknum. Svavar Birgisson, sem verið hefur að stimpla sig sterkur inn í síðustu leikjum, blómstraði í þessum leik. Þá var Mayers geysisterkur að vanda sem og Kristinn Frið- riksson og Pomones og Ómar vom drjúgir í leikstjómenda- hlutverkinu. Stig Tindastóls skomðu: Svavar Birgisson 28, Kristinn Friðriksson 24, Shawn Mayers 21, 15 fráköst, 6 stolnir boltar og 5 varin skot, Tony Pmones 6 og 7 stoðsendingar, Ómar Sig- marsson 4 og 6 stolnir boltar, Mikhail Antropov 2 og 3 var- in skot og Láms Dagur Páls- son 2 stig. Árnijónsson Minningarorð Enn eitt ótímabært skarð er höggvið í hópinn okkar. Ámi Jóns eins og við kölluðum hann fór í sína síðustu ferð alltof fljótt og við enn minnt á hverfulleika lífsins. Skagafjörður skartaði sínu fegursta er árgangur ‘57 frá Sauðárkróki hittist í haust. í yndislegu veðri út í Drangey var sem tíminn stæði kyrr og hugur okkar reikaði til ljúfsára mótunaráranna á Króknum. Þessir endurfundir em okkur æ dýrmætari eftir því sem árin líða. Við söknuðum Áma Jóns í þessari ferð en á sama tíma var hann í Belgíu að horfa á kappakstur. En bflar og kappakstur vom hans yndi. Er nokkur okkar hittu Áma áður en hann fór í þá ferð mátti finna mikla tilhlökkun en um leið vonbrigði með að árgangs- mótið skyldi verða á sama tíma. Árni okkar Jóns var ljúfur, traustur og hjálpfús. I kringum hann ríkti glaðværð og glettni. Við vomm mörg er nutum hjálpræðis hans, bæði í orði og verki. Góður drengur er genginn er við bekkjarsystkinin minn- umst með söknuði. Við vottum aldraðri móður Áma og öðmm aðstandendum samúð okkar. Við viljum ljúka þessum fáu minningarorðum með kveðju- orðum bekkjarbróður okkar. í bænum við lútum og höld- umst í hendur hugsunum okkar við beinum til þín. Að megir þú himinsins líða um lendur í ljósinu bjarta er í austrinu skín. Ævinnar dagur er kominn að kveldi kær er þín minning, hún lýsir um nótt. Opnist þér hliðin að Alföðurs veldi ástríkis njóttu, svo sofir þú rótt. (Jón Hallur Ingólfsson) Árgangur ‘57 Sauðárkróki. Námskeið í REIKI - heilun REIKI er einföld og örugg aðferð til að hjálpa sjálfum sér og öðrum. Reiki opnar fyrir ljós og kærleika og vinnur á sál og líkama. Reiki byggir upp, styrkir og eflir ein- staklinginn til ábyrgðar á lífi sínu og líðan. Held REIKI-námskeið og sjálfstyrkingamámskeið fyrir einstaklinga og hópa. Er einnig með REIKI-meðferðir, nudd og veiti ráðgjöf. Upplýsingar í síma 452 4483. Þuríður Guðmundsdóttir reikimeistari Hvammi II, Vatnsdal.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.