Feykir - 09.10.2002, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Sveitarstjórn Skagafjarðar
Deilt um árangur
í fjármálastjórn
Þessi kraftmikli hópur lauk við að þekja malarvöllinn á Sauðárkróki um helgina.
Framkvæmdir við vallargerð vegna landsmóts eru hafnar að fullum krafti.
Enn fækkar innarlega á Skaga
Milliuppgjör sem sveitar-
stjóm Skagafjarðar hefur látið
gera fyrir fyrstu sex mánuði árs-
ins sýnir að rekstur málaflokka
tekur mun meiri til sín af skatt-
tekjum en fjárhagsáætlun gerði
ráð fyrir, eða um 10% meira. Ut-
tektin sýnir að 91% tekna sveit-
arsjóðs fer í rekstur málaflokka,
er það svipað hlutfall og hjá Ak-
ureyrarbæ og heldur minna en í
Borgarbyggð, þar sem hlutfallið
er 95%. Til samburðar má einnig
nefha að 79% skatttekna Siglu-
fjaðar fara í rekstur málaflokka,
77% í Sandgerði, 76% í Vestur-
byggð og 75% í Garðabæ.
Samkvæmt úttektinni eru
skuldir sveitarsjóðs á hvem íbúa
án lífeyrisskuldbindinga, 247
þúsund í lok júní 2002, en voru
272 þús. í árslok 2001. Skuldir
samstæðu sveitarfélagins vom í
júnílok sl. 540 þúsund á hvern
íbúa, en vom 582 þúsund við lok
síðasta árs.
Árshlutareikningurinn var
tekinn til umræðu á fúndi sveitar-
stjómar í gær. Þar urðu nokkrar
sviptingar i skoðanaskiptum
milli minnihlutans og meirihlut-
ans, og deilt um árangur í efiia-
hagsstjómun sveitarfélagsins á
síðasta hluta liðins kjörtímabils.
Ársæll Guðmundsson sveitar-
stjóri sagði að skuldir sveitarfé-
lagsins hefði ekki lækkað eins
mikið eins og ætla mætti miðað
við sölu eigna. Ársæll sagðist
hafa áhyggjur af stöðu sveitarfé-
lagsins og ljóst að grípa yrði til
aðgera til að lækka rekstrarkostn-
að sveitarfélagsins. Gísli Gunn-
arsson forseti sagði að enn og
aftur væri komið að sama hlutn-
um, að rekstur sveitarfélagsins
væri of dýr og það þyrfti ekki að
undrast að rekstur málaflokka
yrði yfir 100% á seinni hluta árs-
ins. Gísli sagðist vonast til þess
að samstaða yrði meðal allra
flokka sveitarstjómar að taka á
rekstrinum við gerð fjárhagsáætl-
unar fyrir næsta ár.
Gunnar Bragi Sveinsson
Framsóknarflokki sagði að að-
gerðir á síðasta ári hefðu skilað
þeim árangri í efhahagsstjórn-
inni, að handbært fé væri 150
milljónir nú í stað þess að á
miðju síðasta ári hefði vantað
260 milljónir upp á það að endar
næðu saman. Gunnar Bragi bentí
á að öll lán væri nú í skilum, en
sagðist taka undir það að taka
yrði á rekstri sveitarfélagsins.
Það var bókun Snorra Styrk-
árssonar Skagafjaraðarlista á
fúndinum sem hleypti nokkrum
hita í umræðuna og Snorri flutti
síðan alllanga ræðu, „kennslu í
hagffæði” eins og fúndarmenn
kölluðu hana. í bókun Snorra
sagði m.a.: „Ástæða er til að
undirstrika að þær miklu aðgerð-
ir sem meirihluti Skagafjarðar-
lista og Framsóknarflokks réðust
í á síðari hluta síðasta árs og
fyrstu mánuðum þessa árs em
hér með sýnilegum hætti famar
að skila árangri í fjármálum
sveitarfélagsins. Heildarskuldir
sveitarsjóðs hafa lækkað um 91
milljón kr. á fyrstu sex mánuðum
ársins og hafa þá lækkað um 488
milljónir á aðeins einu ári eða frá
júlíbyrjun árið 2001 til loka júní
árið 2002. Hreint veltufé sveitar-
sjóðs var orðið jákvætt um 159
milljónir í lok júní 2002, en var
neikvætt um 260 milljónir i lok
júní árið 2001. Breytingin nemur
419 milljónum króna. Heildar-
skuldir sveitarsjóðs og stofnana
og fyrirtækja em nú 148 milljón-
um kr. lægri en í lok síðasta árs.”
Sauðfé og ábúendum fækkar
með hveiju árinu á jaðarsvæð-
um í Skagafirði og Húnaþingi.
Sérstaklega er þetta áberandi í
byggðunum innarlega á Skag-
anum við sýslumörkin. Núna í
haust leggst af búskapur í Norð-
urárdal, þegar síðasti bóndinn í
dalnum, Bragi Reynisson á
Þverá, fargar fénu, en hann seldi
helming kvótans á síðasta hausti
og nú er komið að því að selja
allan kvótann. í Skefilsstaða-
hreppi heldur sauðfjárbúunum
áfrarn að fækka. I hitteðfyrra
seldu þrír bændur í hreppnum
kvótann, núna bætist sá fjórði
við, Ásgrímur Ásgrímsson á
Mallandi, og em þá einungis
eftir fimm bæir í Skefilsstaða-
hreppi þar sem bústofh er yfir
hundraði fjár. Lætur nærri að
sauðfé hafi fækkað um þriðjung
í hreppnum á síðustu tveimur
árum.
Bragi Reynisson kom fjög-
urra ára gamall í Þverá og hefúr
verið þar í tæp 50 ár. Bærinn
sem stendur undir Þverárfjallinu
að vestanverðu hefúr oft á tíðum
verið einangraður að vetrum, en
núna hafa orðið stórkostlegar
samgöngubætur með nýja kafl-
anum af Þverárfjallsveginum
sem liggur að bænum, en þá vill
svo til að Bragi bóndi sér engan
grundvöll lengur til að halda bú-
skapnum áfram og hefúr ákveð-
ið að hætta með sauðféð, en
venjulegast bjó hann með á
fjórða hundrað fjár. Bragi ætlar
þó að vera áffam á Þverá og
hyggst stunda venjulega dag-
launavinnu, vonast að sjálf-
sögðu til þess að haldið verði á-
fram með Þverárfjallsveginn.
Bragi býst ekki við að hægt
verði að treysta á færð yfir fjall-
ið til Sauðárkróks í erfiðum
vetrum, þar sem veður á Þverár-
fjalli séu talsverð verri en á
Vatnsskarðinu. I Laxárdalnum
austan við Norðurárdal, er ein-
ungis búskapur á einum bæ.
Það eru ffænkumar tvær á Bala-
skarði sem búa enn að sínu þó í
ffemur litlu mæli sé. Það stend-
ur því tæpt byggðin á þessu
svæði.
Ásgrímur á Mallandi sagði í
samtali við Feyki að þau hjónin
væru orðin fúllorðin og tími til
komin að hætta búskapnum. Á
Mallandi þurfti að skera niður
vegna riðu fyrir nokkrum árum.
Fjárstofninn þar var lengi vel
um 600 fjár, en hefúr ekki verið
nema á fjórða hundrað síðustu
árin. Malland er til sölu en við-
undandi tilboð ekki fengist, og
þangað tíl ætla þau Ásgrímur og
Ámý að eiga sitt heimili á
Mallandi, og sækja sitt félagslíf
eins og undanfama vetur í söng-
starfið hjá Rökkurkómum, þótt
það taki rúman klukkutíma að
aka hvora leið á æfingar, við
bestu aksturskilyrði.
Að sögn Eíriks Lofssonar
búnaðarráðunauts hjá Leiðbein-
endaþjónstu Skagafjarðar em
viðskipti með sauðfjarkvóta
ekki byijuð, en nú mega bænd-
ur selja kvóta sín á milli. Hann á
þó von á því að eitthvað verði
um það í haust.
—KTen£ÍM ck|DI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
. VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
■'/!KJ
bílaverkstæði °*
sími: 453 5141
Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
JfcBílaviðgerðir & Hjóibarðaviðgerðir
Réttingar ^Sprautun