Feykir


Feykir - 09.10.2002, Qupperneq 2

Feykir - 09.10.2002, Qupperneq 2
2 FEYKIR 34/2002 Mikil vinna fer nú fram við Málmeyna í Sauðárkrókshöfn. Málmeyjan í „stórklössun" Tökum höndum saman Frystiskipið Málmey er komið í „stórklössun”. Mestur hluti hennar fer fram við hafhar- bakkann á Sauðárkróki. Tekið var tilboði Sandblásturs Sigur- jóns frá Akranesi sem sér um að vatnsblása skipið alveg inn í stál ofan sjólínu og mála skips- skrokkinn. A sama tíma eru heimaaðilar að vinna í skipinu, i vél og á millidekki, iðnaðar- menn frá mörgum fyrirtækjum í bænum, trésmiðir, vélsmiðir, rafvirkjar og málarar. „Við tókum þá stefnu að reyna að vinna sem mest af þessu í heimabyggð, til að iðn- aðarmenn á svæðinu nytu góðs af ffamkvæmdinni og sýnist að það muni ganga ágætlega upp. Menn munar rnikið um þessa vinnu. Þetta eru fyrirtækin sem eru að þjónusta skipin öllu jöfnu”, sagði Gísli Svan Einars- son útgerðarstjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings. Tvö ár eru síðan Málmey fór í slíka klössun síð- ast. Gísli reiknar með að búið verði að mála skipið um 20. þessa mánaðar. Þá fer það á Ak- ureyri í Slippstöðina þar sem öxuldráttur, viðgerð á skrúfú og botnmálun fer fram, hlutir sem eingöngu er hægt að vinna í slipp. Reiknað er með að Málm- eyjan verði affur komin á veiðar um mánaðamótin. Málmeyjan kom úr síðustu veiðiferð sl. fimmtudag, og byrjað var að blása skipið á laugardagsmorgun. Það var 30 daga á miðunum og veiðar gengu ágætlega, 650 tonn upp úr sjó og aflaverðmæti 92 millj- ónir króna. Aflinn var „bland í poka” eins og Gísli Svan kallar það: mest ufsi, grálúða, þorskur og ýsa. Hegranesið landaði í gær rúmlega 100 tonnum, og fóru 80 tonn aflans í vinnsluna hjá FISK. Tuttugu tonn af ýsa og miðafli voru sett á markaðinn. Veiðar ganga einnig vel hjá Klakki, sem er á grálúðu og þorski, en þessi þijú skip eru nú gerð út hjá Fiskiðjunni Skag- fírðingi. Skaftinn er bundinn við bryggju og búið að selja Skag- firðing vestur á ísafjörð eins og getið hefúr verið í Feyki. Síðast liðið ár hafa orðið nokkrar umræður í Skagafirði um dansleikjahald um Lauf- skálaréttarhelgina. í seinasta tölublaði Feykis var því haldið fram að soðið hefði upp úr vegna þessa dansleikjahalds og að brotið hefði verið sam- komulag um að einungis einn dansleikur skyldi haldinn í Skagafirði. Þessi grein er skrifúð til þess að koma á framfæri öllum staðreyndum málsins og leiðrétta rang- færslur. Áður en lengra er haldið er rétt að líta til baka og velta fyr- ir sér forsögu þess að Lauf- skálarétt varð eins þekkt og vinsæl og raun ber vitni. Ein forsenda þess var að fyrir hendi var gistirými i Skaga- firði, mest á svæðinu í kring- um Varmahlíð. í Miðgarði var einnig haldinn fjölmennur dansleikur. Vinsældir Geir- mundar Valtýssonar áttu líka sinn þátt í að draga fólk að svæðinu. Hestamannafélagið Stíg- andi stóð í upphafi fyrir þess- um dansleikjum en síðar Upp- rekstarfélag Kolbeinsdalsaf- réttar. Á seinustu tíu árum hef- ur framboð á gistirými í Skagafirði aukist, sérstaklega í Hofsós, og gestir því dreifst meira um fjörðinn en áður var. Santhliða þessu hófst dans- leikjahald í Höfðaborg, sem notið hefúr vaxandi vinsælda. Ferðamannastraumur til Skagafjarðar hefúr aukist og tekjur af ferðaþjónustu i hérað- inu hafa farið vaxandi. Ýmis tækifæri eru til tekjuöflunar fyrir ferðaþjónustuaðila og bændur í tengslum við Lauf- skálarétt, má þar nefha gist- ingu, fæði, ýmsa afþreyingu og hrossasölu. Því miður hefur ekki náðst samstarf milli ferða- þjónstuðaðila og Upprekstrar- félags Kolbeinsdalsafréttar. Félagið hefur sofið á verð- inum varðandi þarfir þeirra sem koma í Skagafjörð um Laufskálaréttarvikuna. Gott dæmi urn þetta er dansleikja- haldið, en þar hefúr greinilega ekki verið fylgst með óskum og væntingum gestanna. Alla vega varð aðsókn að hinum hefðbundna dansleik Upprek- starfélagsins í Miðgarði dræm í fyrra þegar Svaði og Neisti héldu dansleik með Pöpunum í Höfðaborg. Viðbrögð Upprekstrarfé- lagsins við þessu voru athygl- isverð, því stjómin gaf ekki upp dagsetningu á réttinni fyrr en í byijun september. Það gengur augljóslega ekki ef menn ætla sér að markaðssetja réttina og vera í stakk búnir til þess að taka á móti gestum. Viðbrögð sveitarstjómar vom ennþá athyglisverðari, því í endaðan júlí s.l. héldu þeir fúnd með fúlltrúum úr stjóm Svaða og Neista og skipuðu þeint að hætta við ráðgerðan dansleik með Pöpunum. Helst vildu þeir að húsinu yrði lokað þessa helgi því ekki væm for- sendur til þess að halda nema einn dansleik. Eftir nokkra um- hugsun ákváðu stjómir Svaða og Neista að halda dansleik í trássi við vilja sveitarstjómar. Þessi afstaða sveitarstjómar og stjórnar Upprekstarfélags- ins bar bæði vott um þröngsýni og þekkingarleysi. Ef auka á tekjur Skagfirðinga af ferða- mönnum um Laufskálaréttar- helgina þarf að efla framboð á afþreyingu til muna. Þetta kemur vel í ljós þegar skoðuð er aðsókn að þeim dansleikjum sem haldnir vom um seinustu Laufskálaréttarhelgi. í Reið- höllina komu meira en 900 manns, í Höfðaborg vom um 500 og fúllt hús var á Hótelinu í Varmahlíð og víðar. Láta mun nærri að hátt í 2000 manns hafi verið á skemmtistöðum þetta kvöld, fleiri en nokkm sinni fyrr. Þarna kom greini- lega í ljós að með auknu og betra framboði á afþreyingu koma fleiri gestir og allir hagn- ast. Það er enginn vafi á því að möguleikar em á því að auka enn frekar tekjur af ferðaþjón- ustu í kringum Laufskálarétt. Hægt er að fá ferðamenn til þess að dvelja hér lengur með því að bjóða uppákomur alla vikuna fýrir Laufskálarétt. Það er öllum hagur af því að fjölga sem mest gestum í Skagafirði á þessum tíma árs og að þeir dveljist liér sem lengst. Það mun helst gerast með því að auka framboð á afþreyingu. Það er von mín að allir þeir sem að málinu koma geti sam- einast um þetta og tekið mynd- arlega á málunum fyrir næstu Laufskálaréttir. Jón Garðarsson. Um prófkjör í Norðvesturkjördæmi Nýlega tilkynnti ég þátttöku í próf- kjöri Framsóknarl- fokksins í hinu nýja Norðvesturkjör- dæmi. Jafnframt lýsti ég því, að ég stefni að kjöri í 1. sæti listans en úti- loka að sjálfsögðu ekki annað eða þriðja sæti nái ég ekki kjöri í það fyrsta. Um árangurinn er lítið hægt að segja fyrirfram enda um nýtt kjör- dæmi að ræða þar sem hagsmunir íbú- anna geta verið injög misjafnir eftir svæðum. Niður- stöðunum verð ég að taka eins og aðr- ir hveijar sem þær verða. Mín skoðun er hins vegar sú, að það sé raunhæft og eðlilegt markmið að sækjast eftir 1. sæti listans. Kemur þar einkum tvennt til. Annars vegar fjöldi flokksbund- inna félaga í okkar gamla kjördæmi og hins vegar áskoran- ir frá töluverðum hópi ffamsóknar- manna. Þessum á- skorunum hef ég nú tekið og vonast eftir stuðningi sem flestra. Árni Gunnarsson. ó láð fréttablað á Noröurli indi vcstra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Hennannsson, SigiuóurÁgiistsson og Stefán Árnason. Skrifstofa:Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4, Áskriftarverð 190 krónur hvert tölublað með vsk. 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og Farsími 854 6207. Netfang: feykir @ krokur. is. umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Blaðstjóm: Jón F. aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Hjartarson, Guöbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.