Feykir


Feykir - 09.10.2002, Blaðsíða 4

Feykir - 09.10.2002, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 34/2002 „Sé hér sóknarfærin út um allt“ Spjallað við Jónu Fanneyju Friðriksdóttur nýja bæjarstjórann á Blönduósi „Ég hafði oft ekið í gegnum bæinn með ferðamenn sem leiðsögumaður og alltaf fundist ákaflega fallegt bæjarstæði héma á Blönduósi. Vitaskuld hef ég kynnt mér sögu og menningu svæðisins í gegnum árin og var eitt sumar í sveit á Hnausum þegar ég var 9 ára göm- ul. Síðar varð ástin þess valdandi að ég fór að sækja hingað til Blönduóss í ríkari mæli. Því má segja að ég hafi haft vissa tengingu við svæðið þegar ég ákvað að sækjast eftir bæjarstjórastarfinu”, segir Jóna Fanney Friðriksdóttir sem tók við starfi bæjarstjóra á Blöndu- ósi á liðnu sumri, en það vakti nokkra athygli þegar hún var valin úr hópi 23 umsækjenda, tiltölulega óþekkt ung kona, en meðal umsækjenda vom m. a. reyndir að- ilar sem þekktu vel til sveitarstjórnarmálanna. Jóna Fanney er ijölmiðlafræðingur að mennt og vann lengi vel sem leiðsögumaður á summm. Hún starfaði á síð- asta ári og ffam á þetta hjá Atvinnuþróunarfélagi Þing- eyinga, sem atvinnuráðgjafi. Blaðamaður Feykis brá sér yfir Þverárfjallið á dögnum, og ók þá nýju hrað- brautina frá Skíðastöðum að Þverá í íyrsta skipti, til að spjalla við bæjarstjórann nýja á Blönduósi. „Vissulega framkvæmir ein manneskja ekki kraftaverk, en ég lít á það sem mitt hlutverk að draga vagninn og vera opin fyrir hugmyndum.“ „Ég er Reykvíkingur með viðkomu á ísafirði á unglings- árunum. Ég held það sé hveij- um manni hollt að fá tækifæri á að búa úti á landsbyggðinni. Mér leið vel fyrir vestan á mót- unarárunum, tók virkan þátt í í- þróttum og félagslífinu og vann auðvitað í ffystihúsinu á sumrin. Eftir menntaskóla fór ég til Þýskalands þar sem ég stundaði fjölmiðlafræðinám við háskólann í Vestur-Berlín. Að námi loknu lá leiðin til Reykjavíkur þar sem ég starf- aði um árabil og nú síðast sem ffamkvæmdastjóri netfyrirtæk- is. í fyrra bauðst mér að koma og starfa á Húsavík og með litl- um fýrirvara ákvað ég að láta slag standa. Margir kunningjar mínir hafa haft á orði að ég sé að fara öfugan hring. Frá millj- ónaborg í Þýskalandi, yfir í 101 Reykjavík og þaðan út á land, þegar straumurinn liggur í hina áttina. Mér finnst þetta skemmtileg tilbreyting og finnst það viss forréttindi að bömin mín fái tækifæri á að kynnast lífinu á landsbyggð- inni eins og ég gerði á ámnum fýrir vestan.” Ævintýraleg tiiviljun Hvað kom til að þú fluttist á Húsavík? „Stundum getur lífið verið ævintýraleg tilviljun. Effir að vera búin að starfa sem ffam- kvæmdastjóri netfýrirtækis í nokkur ár í Reykjavik fann ég að mér veitti ekki af tilbreyt- ingu. Ég hef mikla unun af því að fara á fjöll og vera úti i nátt- úrunni og ákvað því að drífa mig aftur í leiðsögumennskuna af krafti í nokkra mánuði. Síð- sumars var ég stödd á Skógum undir Eyjafjöllum og var að ræða við þýsku ferðamennina sem voru í hópnum, þá vindur sér að mér maður sem hafði verið að hlusta á okkur, og spyr mig vafningalaust hvort ég geti hugsað mér að koma til Húsa- víkur um haustið og kenna þýsku við framhaldsskólann þar. Þetta var þá námsráðgjafi skólans og skömmu síðar hringdi skólameistarinn Guð- mundur Birkir Þorkelsson í mig og ítrekaði þessa ósk og bauð okkur að koma norður til að kynna okkur aðstæður. Stefni ákveðið á markið Viku síðar var ég flutt á Húsavík með bömin mín, hundinn og píanóið. Mér bauðst jafnffamt starf atvinnu- ráðgjafa hjá Atvinnuþróunarfé- lagi Þingeyinga. Það biðu mín því skemmtileg verkefhi og gott samstarfsfólk á Húsavík. Og ekki óraði mig þá iýrir að ári síðar biði mín slikt hið sama á Blönduósi.” Sambýlismaður Jónu Fann- eyjar er Hjörtur Einarsson, þekktur hestamaður í Húna- vatnssýslu. Sennilega hefur það togað í Jónu Fanneyju að flytja á vestursvæðið, en vænt- anlega hefur komið henni að einhverju leyti á óvart að hreppa starf sem 23 aðilar sóttu um? „Það er nú þannig með mig að þegar ég ákveð eitthvað þá stefhi ég ákveðið og af heilum hug á markið. Auðvitað er ég þakklát fýrir að fá þetta tæki- færi því ég veit að á meðal unr- sækjenda var fjöldi fólks með mikla reynslu og þekkingu. Þessi starfsvettvangur er enn mikil karlastétt og því tel ég að bæjarstjómarmenn á Blöndu- ósi hafi stigið ákveðið skref með ráðningu minni. Þó nokkrir hafa haft að orði við mig að þetta lýsi því að mikill hugur sé i fólki með að knýja ffam breytingar í samfélaginu hér. Því er þetta ekki spuming um að ráða konu heldur öllu fremur að fá ffam ný viðhorf og gildi. Ég efa það ekki eina mínútu að starfið er krefjandi og ábyrgðin mikil. Því hef ég þegar kynnst á þessum tveimur mánuðum í starfi. Þetta erheil- mikill lærdómur en mér finnst ákaflega gaman að takast á við þetta og finn að reynsla mín nýtist í starfinu. Geri engin kraftaverk Ég hef verið í stjómunar- störfum og rekstri um árabil og hef auk þess töluverða reynslu af mannlegum samskiptum í gegnum störf mín. Fyrra starfs- umhverfi mitt hefur jafnffamt byggt á uppbyggingu hug- mynda og áhugi minn á lands- byggðarmálum hlýtur að vega þungt. En megin áherslan í bæjarstjórastarfinu er auðvitað reksturinn og íjármálin.” - Staða sveitarfélaga hefur þrengst á síðustu ámm, m.a. eftir því sem manni hefur skilist að það hafi hallað á þau í samskiptum við rikisvaldið, stór hluti tekna sveitarsjóða fer í föst útgjöld, þannig að það er kannski varla hægt að búst við því að ungur og kraffmikill bæjarstjóri geri kraffaverk eða hvað? „Vissulega ffamkvæmir ein manneskja ekki kraffaverk, en ég lít á það sem mitt hlutverk að draga vagninn og vera opin lýrir hugmyndum. Ef allir leggjast á eitt og samstaða næst er hægt að áorka ýmsu. Það er rétt að ábyrgðarsvið sveitarfé- laga hefur verið að breytast og aukast á undanfomum árum. Þar af leiðandi er staðan þrengri og ekki eins mikið svigrúm. Hlynnt sameiningu Undirstaða heilbrigðs sam- félags er trygg og fjölbreytileg atvinna. Því lít ég á eflingu at- vinnumála sem forgangsverk- efni og með því að auka fjöl- breytni atvinnulífsins tekst okkur að snúa búsetuþróuninni okkur í hag. Aukið samstarf og samein- ing nágrannasveitarfélaga get- ur einnig skipt sköpurn til að ná ffam meiri hagræðingu í rekstr- inum. í Austur-Húnavatns- sýslu em um 2.200 íbúar í átta sveitarfélögum. Hér em starf- ræktir þrír gmnnskólar og dijúgur hluti tekna sveitarfélag- anna fer í rekstur skólanna. Það hlýtur að vera hagsmunamál allra í sýslunni að skoða sam- einingarmálin. Við erum öll háð hvert öðru á þessu svæði. Það sést best á því að við emm með héraðsnefhd og hin ýmsu byggðasamlög sem taka sam- eiginlega á okkar málefhum.” - Er nýi meirihlutinn, sem þú vinnur fýrir, farinn að huga að atvinnumálunum? „Það er hafin umræða um atvinnumálin og við erum að fara i stefnumarkandi vinnu. Skýrslugerðin og hugmynda- vinnan sjálf er eitt en höfuðá- hersla verður á eftirfýlgni þeirra hugmynda og kosta sem þar koma ffam. Ég tel það á- kaflega mikilvægt að virkja bæjarbúa og sérstaklega þunga- vigtarfólk úr atvinnulífinu með i þessari vinnu. Reynsla þessa fólks er dýrmæt og stefnumót- un og uppbyggingu atvinnu- mála má ekki einangra við bæjarfulltrúa og bæjarstjóra.” Að átta sig á stöðunni - Eru þið farin að greina einhver álitleg verkefni í at- vinnumálum? „Ég sé sóknarfæri út um allt. Það þarf bara að nýta þau. Við höfum t.d. tvær af dýrmæt- ustu auðlindum landsins hér, heita vatnið og raforkuna. Það hlýtur að teljast nokkur sér- staða og traustur grunnur til uppbyggingar. Ferðaþjónustan er nokkuð öflug á svæðinu og ég er sann- færð um að þessa atvinnugrein rná efla til muna. Ég sé sóknar- færi í að samþætta meira land-

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.