Feykir - 09.10.2002, Page 6
6 FEYKIR 34/2002
„Leggjum höfuðáherslu á
sóknarleikinn í vetur“
segir Kristinn Friðriksson þjálfari Tindastóls
Leikjatafla Tindastóls
Fimmtud. 10. okt.Stykkishólmur 19.15 Snæfell - Tindastóll
Mán. 21. okt. Keflavík 19.15 Keflavík - Tindastóll
Fim. 24. okt. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - Skallagrímur
Sun. 27. okt. Grindavík 19.15 UMFG -Tindastóll
Fim. 31. okt. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - KR
Fös. 15. nóv. Smárinn 19.15 Breiðablik - Tindastóll
Þri. 19. nóv. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - UMFN
Fim. 28. nóv. Ásvellir 19.15 Haukar - Tindastóll
Fim. 5. des. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - Hamar
Fim. 12. des. Valsheimili 19.15 Valur - Tindastóll
Fim. 19. des. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - ÍR
Sun. 5. jan. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - Snæfell
Fim. 16. jan. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - Keflavík
Fös. 24.jan. Borgarnes 19.15 Skallagrímur-Tindastóll
Fim. 30. jan. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - UMFG
Sun. 2. feb.KR hús 19.15 KR - Tindastóll
Fim. 13. feb. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - Breiðablik
Mán. 17. feb. Njarðvík 19.15 UMFN -Tindastóll
Fim. 20. feb. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - Haukar
Fös. 28. feb. Hveragerði 19.15 Hamar - Tindastóll
Sun. 2. mar. Sauðárkrókur 19.15 Tindastóll - Valur
Fim. 6. mar. Seljaskóli 19.15 ÍR - Tindastóll
Veðurspáin fyrir
októbermánuð
„Við ætlum að leggja höíuð-
áherslu á sóknarleikinn í vetur
og ég held ég geti lofað
skemmtilegum leikjum. Mikill
hraði er í liðinu og það held ég
að eigi eftir að nýtast okkur vel.
Við erum með góðar þriggja
stiga skyttur og munum alltaf
leggja upp með það að skora
fleiri stig en andstæðingurinn”,
segir Kristinn Friðriksson þjálf-
ari úrvalsdeildarliðs Tindastóls í
köfubolta en keppnistímabilið er
nú að hefjast. Tindastólsmenn
leggja land undir fót á morgun
og mæta í sinn fyrsta leik í vetur
annaðkvöld í Hólminum, gegn
Snæfelli.
Miklar breytingar hafa orðið
á Tindastólsliðinu frá síðasta
vetri og má segja að þetta sé að
miklu leyti nýtt lið. Það eru að-
eins þeir Kristinn, Andropov og
Óli Barðdal sem voru að leika
mikið með síðasta vetur, og síð-
an koma þeir nú inn í stærri hlut-
verk, Axel og Helgi Rafn sem
voru mikið til að stíga sín fyrstu
skref á síðasta ári.
„Það eru alltaf miklar breyt-
ingar hér á liðinu milli ára, það
er eiginlega reglubundið. Áuk
þess sem við höfum misst þá
Lárus Dag, Helga Frey og Rikka
ffá síðasta ári, þá er meginbreyt-
ingin sú að við erum með litlan
kana núna í staðinn fyrir að hafa
alltaf verið með stóran”, segir
Kristinn. En nýi leikstjómandinn
heitir Clifton Cook og þykir
hraður, hafa gott auga fyrir sam-
heijunum og er góð skytta. Þá er
einnig kominn til liðs viðTinda-
stól annar Bandaríkjamaður með
írsku vegabréfi, og fellur þannig
undir EES-svæðið. Sá heitir
Maurice Carter og er bakvörður.
Þá eru ótaldir tveir Þórsarar sem
gengu til liðs viðTindastól í síð-
ustu viku, Einar Örn Aðalsteins-
son og Sigurður G. Sigurðsson.
„Þessir strákar eru góðir og
það var mjög gott að fá þá. Þeir
gera liðið betra og styrkja hóp-
inn gífurlega. Við erum með
sterkan hóp leikmanna sem eiga
að geta gert góða hluti í vetur ef
menn leggja sig virkilega vel
fram.”
Hveijar eru þínar væntingar
fyrir vetrinum?
„Sem þjálfari þá vonast ég til
að liðið spili alltaf vel og menn
geti gengið hnarrreistir af velli.
Eg vonast eftir því að við náum
jafnvægi í okkar leik og menn
hafi gaman af því að spila körfu-
bolta. Það er nauðsynlegt til að
við getum gert góða hluti.”
Verður ekki erfitt fyrir þig að
halda þínum styrk sem leikmað-
ur, fyrst þú þjálfar liðið?
„Ég held það eigi ekki að
koma að sök. Þegar ég er inni á
vellinum, þá reyni ég að útiloka
ég mig ffá þjálfarahlutverkinu.
Það er Kári Marísson liðsstjór-
inn sem þá sér um liðið og tekur
við þjálfarahlutverkinu. En vita-
skuld setur það þónokkra pressu
á mig utan vallar að vera orðinn
þjálfari liðsins.”
Þegar þú talar um að liðið
leiki fyrir ofan getu, er þetta þá
stemningslið?
„Já mér sýnist liðið hafa ým-
islegt að bera til að verða þannig.
Við erum með mikinn hraða í
liðinu, góðar skyttur og baráttu.
Þegar ég segi að liðið muni spila
sóknarleik, þá læt ég það ósagt
að auðvitað munum við spila
vöm og ég vona að menn leggi
.......................................-................................................
sig ffam um að spila góða vöm,
en fyrst og ffemst ætlum við
okkur að leggja áherslu á góðan
sóknarleik. Þannig verður körfia-
boltinn skemmtilegastur, ffekar
en að liðin spili af varkámi til að
halda stigaskorinu niðri.”
Þýðir eitthvað að spyrja um
hvaða sæti þið stefnið á?
„Sem þjálfari legg ég höfuð-
áherslu á að við höldum sæti
okkar í deildinni. En sem leik-
maður þá vil ég stefna hærra.
Auðvitað munum við sækjast
eftir því að komast í úrslita-
keppnina eins og undanfarin ár,
en þetta fer auðvitað allt eftir
metnaði leikmanna og ég vona
að við verðum samstíga í því að
spila góðan körfubolta og vinna
sem flesta leiki. Það er helsta
takmarkið. Við vonumst að sjálf-
sögðu líka til þess að áhorfendur
inuni sækja vel leikina í vetur og
styðji við bakið á okkur. Það er
gífialega mikilvægt að fá stuðn-
ing áhorfenda og getur skipt
sköpum í jöfhum leikjum, fyrir
utan það hvað það er miklu
skemmtilegra að spila körfii-
bolta fyrir fullu húsi”, segir
Kristinn Friðriksson þjálfari
Tindastóls og vonandi eigum við
eftir að sjá skemmtilega körfu-
boltaleiki í vetur.
Septemberspáin gekk ekki
nógu vel eftir þó margt hafi ver-
ið gott. Veðrið er búið að vera
mun betra en við bjuggumst við,
að vísu voru miklar umræður
um hvað tunglið myndi gera og
hvemig hann myndi taka því,
nokkrir vildu meina að þetta yrði
mjög gott, en fleiri héldu annað
og það er meirihlutinn sem ræð-
ur því hvað er sett í spána sem er
send út.
Veðrið undanfarið hefur ver-
ið einstakt, við höfum verið að
fylgast með ýmsum snjósköflum
sem hafa verið að hverfa, nú er
svo komið að það eru mörg ár
síðan margir af þessum sköflum
hafa svo mikið sem minnkað en
eru nú að hverfa. Margir hafa
spurt okkur og einnig hafa marg-
ir verið að velta jarðskjálftum
fyrir sér, bæði vegna þessa um-
róts sem hefur verið og síðan
þessi tenging við veðrið, sem er
aðallega veður sem hefur verið í
þau skipti sem verulegir jarð-
skjálftar hafa komið, við höfum
haft mikið af slíku veðri undan-
farið.
Við ræddum heilmikið um
jarðskjálfta á síðasta fundi og
mikill meirihluti var sammála
um að það kæmi enginn stærri
skjálfti núna á næstunni, það
yrði eitthvað um minni skjálfta
en ekkert stórt. Það var frekar
erfitt að einbeita sér að því að
spá í veðrið þar sem fyrir utan
gluggann hjá okkur var sól og al-
gjör sumarblíða og varla komið
næturfrost nema örlítið ffammi í
dal.
Október verður þokkalega
góður en misjafn, fyrri hlutinn
verður með svipuðu sniði og ver-
ið hefur undanfarið, það koma
dagar innan um þar sem rignir
og þegar líður á mánuðinn fáum
við fol, það er ekki svo langt í
það að við fáum hvíta fjallatoppa
og meira til. Það verður ekki
mikið um snjó í mánuðinum,
þegar hann kemur þá festir hann
lítið. Tunglið kviknar 6. okt í
suðaustri, síðast þegar tunglið
kviknaði í suðaustri var veðrið
ekki gott þann tíma sem það
tungl réði ríkjum, síðasta tungl
kviknaði í NNA og við fengum
gott út úr því, þá er bara spum-
ingin hvort að hann haldi sig við
að koma á tunglið, og ef við gef-
um okkur það fer góða veðrið að
hverfa fljótlega í kringum 6. okt.
En flestir vom nú á því að fyrri
hluti okt yrði góður og í seinni
hlutanum kæmi smám saman
það veður sem við þekkjum á
þessum tíma. Margt bendir samt
til þess að það verði mjög góðir
og hlýjir dagar í mánuðinum. 26.
október er fyrsti vetrardagur og
við skulum fylgjast með því
hvað gerist þá.
Bjart veður á Gallusmessu
16. okt boðar góðan vetur. Við
látum standa þessi orð frá sept.
spánni, með von um að þau ræt-
ist. Stundum er sagt að veðrið frá
krossmessu að hausti 14. sept. og
ffarn til allraheilagramessu, 1.
nóv ráði veðurfari til ársloka.
Með kveðju ffá Veðurklúbbn-
um á Dalbæ Dalvík
Von er á góðum gestum
í Safnahúsinu á Sauðár-
króki mun listakonan Anna
Hrefnudóttir halda sýningu á
olíumálverkum dagana 12.-20.
október. Við opnun sýningar-
innar mun eiginmaður lista-
konunnar, Þorvaldur Þorvalds-
son, bjóða gesti velkomna með
söng.
Eftir nám við Handíða- og
myndlistarskólann hefiir Anna
tekið þátt í samsýningum
myndlistarfólks á höfuðborgar-
svæðinu. Það hefur einkennt
sýningarferil þessara listakonu,
að hún hefur lagt rækt við að
sýna á landsbyggðinni. Anna
hefur sýnt á Akureyri, þar sem
hún hafði vinnustofu í Hrísey,
en þar var hún við kennslu og á
síðan ítök í Hríseyingum.
Einnig hefur hún sýnt austur í
Breiðdal, enda er listakonan
Austfirðingur að uppruna.
í upphafi ferils síns gerði
Anna afar fingerðar smámynd-
ir oft með svipmóti ævintýra.
Síðan hefur hún færst meira í
fang og myndir hennar eru nú
olíumálverk á stórum fleti og
með sterku litaspili.
Skagfirðingar, látið þessa
mögnuðu sýningu ekki ffam-
hjá ykkur fara!
Þórunn Magnúsdóttir.