Feykir - 26.01.2005, Blaðsíða 8
OShe| ■ PSjSL Sími: ^jj^ 453 6666
VlDEQ 1 a Sími: E1IF 453 6622
Sparisjóður Skagafjarðar__________________
Líkur á að núverandi
eigendur kaupi alla
aukninguna
Útboð á nýju stofnfé í Sparisjóði Skagafjarðar, sem hófst
á mánudag gengur vel. Stofnfjárhafar sem eru 87 talsins
eiga forkaupsrétt að stofnfjáraukningunni.
Mikill áhugi er á útboðinu og milljónir að nafnvirði en að
býst Vilhjálmur Baldursson, teknu tilliti til ónýttri heimildar
sparisjóðsstjóri við að núverandi til endurmats stofnfjár, þá er
eigendur muni kaupa alla heildarverðmæti útboðsins 78
aukninguna. Um er að ræða 66 rn.kr. og verður stofnfé í
Sparisjóði Skagafjarðar eftir
hækkunina því um 100 m.kr.
Tíu stofnfjáreigendur í
sjóðnum lögðu fram kröfú til
sýslumanns urn lögbann á
stoíhfjáraukninu og þann
gjörning að breyta nafni spari-
sjóðsins úr Sparisjóði Hóla-
hrepps í Sparisjóð Skagafjarðar.
Sýslumaður hafnaði lögbanns-
kröfúnni og var þá kært til
héraðsdóms þar sem málið
hefur nú verið þingfest.
Lögbannskröfúr fá flýtimeðferð
fýrir dómstólum og má búast
við niðurstöðu hérðasdóms á
næstu vikum.
Hvatningarverðlaun ANVEST_________________
Heimilisiðnaðarsafnið
hlýtur verðlaunin
Stjórn Atvinnuþróunarfélag Norðurlands vestra veitir
árlega einu fyrirtæki sem telst hafa skarað fram úr
hvatningarverðlaun.
Fyrir árið 2004
hefur Heimilisiðn-
aðarsafnið á Blöndu-
ósi orðið fýrir valinu
vegna þess dugnaðs og
áræðis sem
aðstandendur safiisins
hafa sýnt við uppbyg-
gingu starfseminnar.
Uppbygging Heimilis- málum eru öðrum gott fordæmi
iðnaðarsafnsins hefur vakið um dugnað og útsjónarsemi.
athygliogþeirsemhérstandaað Verðlaunagripurinn sem
Heimilisiðnaðarsafúinu verður
færður er gerður af leirlista-
konunni Sonju Hafsteinsdóttur
að Reykjarhóli í Skagafirði.
Guðmundur Skarphéðins-
son formaður stjórnar Atvinnu-
þróunarfélagsins mun afhenda
verðlaunin í safiiinu kl. 18:00,
föstudaginn 28. janúar 2004.
Markmið verðlaunanna eins
og nafnið bendir til, er að hvet-
ja til nýsköpunar en um leið að
vekja athygli á því sem vel er gert
á Norðurlandi vestra.
Atvinnuþróunarfélagið er í
eigu sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra. Félagið hefúr ffá árinu
1999 veitt því fyrirtæki sem
skarað hefúr frarnúr á liðnu ári
verðlaun sem eiga að vera í senn
hvatning og viðurkenning fýrir
góðan árangur.
Húnaþing vestra______________
Aform um Selasafn
á Hvammstanga
Starfshópur, undir stjórn atvinnuráðgjafa ANVEST,
hefur undanfarið unnið að hugmyndum að Selasafni á
Hvammstanga. Horft er til aðstöðu í VSP húsinu, en
eigendur þess hafa lýst áhuga á samstarfi við
verkefnið.
Verkefiiið var kynnt á fundi
á Þinghúsinu þann 30. desem-
ber en það tengist öðru
verkefiti, sem snýr að almennt
efldri ferðaþjónustu á Vatns-
nesi, eða Perluhringnum, sem
kallaður er.
Fram kom í máli Gudrunar
Kloes atvinnuráðgjafa, að á
liðnu ári töldust 32 þúsund
manns hafa ekið Vatnsness-
hringinn, en við Vatnsnes er ein
besta aðstaða til selaskoðunar á
landinu.
Viðhorf ferðamanna var
kannað af starfsmanni
ANVEST við Hvítserk sl. sumar
og fengust mikilvægar vís-
bendingar um óskir og þarfir
ferðamanna. Margir landeigen-
dur hafa verið heimsóttir og
verkefnið kynnt fýrir þeim.
Áfram er unnið að verkefninu,
m.a. fjármögnun, félagsform og
markaðssetning. Fundurinn
var vel sóttur og jákvæðar
undirtektir.
Dægurlagakeppnin á Króknum 2005
Nýir aðilar taka við
Frá Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks 2004. mynd: pib
Það verða nýir aðilar sem
munu hafa veg og vanda
af Dægurlagakeppninni á
Króknum sem fram fer í
Sæluviku Skagfirðinga
nú í vor.
Kvenfélag Sauðárkróks sem
staðið hefúr fýrir keppninni
síðustu 10 árin sá sér ekki fært
að halda keppnina enn einu
sinni, en keppnin heflir verið
hápunktur Sæluvikunnar
síðustu árin og á sjálfsagt
stærstan þátt í því að viðhalda
Sæluviku Skagfirðinga.
Margir máttu auðvitað ekki
til þess hugsa að engin
Dægurlagakeppni yrði haldin í
Sæluviku og því ákváðu Ellert
Jóhannsson og Sigurpáll
Aðalsteinsson að láta slag stan-
da og halda keppnina. Þeir
hafá þegar auglýst eftir lögum í
keppnina og allt er komið á
fulla ferð hjá þeim köppum.
Feykir setti sig í samband
við Lovísu Símonardóttur for-
mann Kvenfélags Sauðárkróks
og sagði hún það vera ntjög
gott mál að aðrir hefðu tekið
við kyndlinum af kvenfélags-
konum þar sem þær hefðu
ekki séð sér fært að halda
kcppnina. Lovísa óskar þeim
félögum alls góðs og segir
kvenfélagskonur vera himin-
lifandi yfir því að keppnin
leggist ekki af.
Alþjóðlegir hestadagar í fíeiðhöllinni í apríl
Markaðstorg á
Norðurlandi
Alþjóðlegir hestadagar
verða haldnir í Skagafirði í
vor í tengslum við reið-
hallarsýninguna Tekið til
kostanna á Króknum.
Yfirskrift hestadaganna er
Tekið til kostanna - Horse Event
inSkagafjörður21.-24. apríl.
Undirbúningur að þessum
viðburði hefúr staðið yríir í rúmt
ár, að sögn Eyþórs Einarssonar,
hrossaræktarráðunauts, en hann
hefúr borið hita og þunga af
honum ásamt Ingimari
Ingimarssyni, hjá Hestamið-
stöð íslands. Hér er á ferðinni
markaðsverkefni í samvinnu
Hrossaræktarsambands Skag-
firðinga (HSS), Hólaskóla, Reið-
hallarinnar Svaðastaða og Iæið-
beiningamiðstöðvarinnar, sem
sem í raun mun nýtast hesta-
mönnum á Norðurlandi öllu.
Sjá nánarbls. 2
toyota :: tryggingamiðstöðin :: kodak express :: bækur og ritföng :: ljósritun í lit :: gormarogplöstun :: fleiia og fleira
bókabúðixi
BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUÐÁRKRÓKUR SlMI 453 5950 FAX 453 5661 bokabud@skagafjordur.com
BÓKABÚÐ
BRYKfcJARS
- ana í ■fjolsMlcNnnj
Flísar
-flotgólf
múrviögeröarefni
AÐALSTEINN J.
MARÍUSSON
Sími: 453 5591 • 853 0391 • 893 0391