Feykir - 16.02.2005, Side 1
RAFVERKTAKAR
- sérverslun með raftæki
Æ raf sjá hf
SÆMUNDARGOTU1 5AUÐÁRKRÚKI SIMU535481
íbúðalánasjóður
www.ibudalan.is
Frá þorrablóti Hóla-og Viðvikurhreppa hinna fornu og eins og sjá má skemmtu menn sér konunglega. Mynd: ÖÞ:
Þorrínn blótaður!
Vestufarasetrið, Heimir, og Álftagerðisbræður á Vetrarhátíð í Reykjavík
Skagfirsk menning tekur
völdin í Ráðhúsi Reykjavíkur
Þo aö ferðamenn i Hofsósi séu ekki margir þessa dagana er nóg um að vera hjá
Vesturfarasetrinu, en um næstu helgi verður setrið heiðursgestur á Vetrarhátíð í
Reykjavík.
Það má segja að skagfirksk
menning og söguhefð setji
að þessu sinni sterkan svip
á Vetrarhátið í Reykjavík
og hafa gárungarnir haft
á orði að um sé að ræða
nokkurskonar menningarlega
valdaránsttilraun í Ráðhúsingu
á laugardag.
Sett verður upp sýning
í Ráðhúsi Reykjavíkur þar
sem gestum verður boðið að
skoða sýnishorn úr öllum
sýningum Vesturfarasetursins.
Borgarstjóri, Steinunn Valdís
Óskarsdóttir mun opna
sýninguna á fimmtudagskvöld,
en auk hennar munu koma
fram á opnunarhátíðinni Peter
John Buchnan, vesturíslenskur
tenór, Viðar Hreinsson
sagnfræðingur, Anna Sigríður
Helgadóttir og Aðalheiður
Þorsteinsdóttir söngkonur.
í tengslum við sýninguna
verður síðan skagfirsk söng-
skemmtun í Ráðhúsi Reykja-
víkur næstkomandi laugardag
þar sem Karlakórinn Heimir,
Álftagerðisbræður og fleiri
skemmta Reykvíkingum og
gestum þeirra.
Markaðsstofa ferðamála á
Norðurlandi, sem Skagfirðingar
eru aðilar að, verður einnig
áberandi á Vetrarhátíð þar
sem hún mun kynna fyrir
höfuðborgarbúum það sem
Norðurland hefur upp á að
bjóða í vetrarafþreyingu.
Meðal annars verður dreift
lcynningarefni um páska-
dagskrá í Skagafirði og nýjum
heildarbæklingi um skíðasvæði
á Norðurlandi.
Kona í annarlegu ástandi á Hrútafjarðarhálsi
Flutft með þyrlu
suður
Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar flutti konu á
sjúkrahús í Reykjavík
frá Holtavörðheiði
síðastliðinn laugardag.
Konan var í annarlegu
ástandi sem talið var
vera af völdum vímu-
efna eða áfengis.
Konan var flutt til móts
við þyrluna í sjúkrabíl
frá Hvammstanga.
Tildrög málsins eru þau
að lögreglan á Blönduósi
ók fram á bíl utanvegar á
Hrútafjarðarhálsi urn klukk-
an eitt á laugardag. Tvennt
var í bílnum, karlmaður og
kona og voru þau ómeidd.
Fljótlega kom upp grunur
um ölvun eða fíkniefnanotk-
un og þar sem konan varð
sífellt veikari í höndum
lögreglu var kallaður til
læknir frá Hvammstanga,
sem ákvað að senda hana á
sjúkrahús í Reykjavík og kom
þyrlan til móts við sjúkrabíl á
Holtavörðuheiði.
Konan er grunuð um að
hafa ekið bifreiðinni. Karl-
maðurinn sem var með
henni fór aftur til Akureyrar
þaðan sem þau komu.
Sauðárkrókur
Ný verkefni hjá
Vegagerðinni
Vegagerðin hefur auglýst
laust til umsóknar starf
verkefnastjóra í árang-
urs- og eftirlitsdeild á
Sauðárkróki. Um er að
ræða nýtt starf er verður
viðbót við þann mannafla
er starfar hjá Vegagerð-
inni á Sauðárkróki.
Árangurs- og eftirlitsdeild
sinnir verkefnum á öllu starfs-
svæði Vegagerðarinnar en eins
og kunnugt er er starfssemi
hverrar starfsstöðvar Vega-
gerðarinnar fyrir sig ekki að
öllu leyti bundin landffæðilegri
afmörkun svæðisins. Þannig fer
til dæmis símsvörun fram hjá
skrifstofunni á Isafirði.
Gerð er krafa um háskóla-
menntun í hinu nýja starfi
en það felst meðal annars í
gæðaeftirliti og árangursmati
framkvæmda í viðhaldi og
þjónustu ásamt vinnu við að
fara yfir útboðsgögn.
Þess má geta að Vegagerðin
er ekki eina ríkisstofnunin sem
hefúr verið að bæta við sig fólki
á Sauðárkróki að undanförnu.
Þannig hafa að undanförnu bæst
við starfsmenn hjá starfsstöð
íbúðalánasjóðs á Króknum.
Annars vegar er þar um að ræða
viðbót vegna aukinna verkefna
við greiðslumat en sjóðurinn
annast nú meiri vinnu að því
leyti sjálfur. Hins vegar er um
að ræða verkeíni tengd Vara-
sjóði viðbótarlána.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—CTeMgill ehp—
Bílaviðgerðir
hj ólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
ÆI
bílaverkstæöi
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Síeinundargötu tb 550 Sauöárkrókur Sími 453 5141