Feykir - 23.02.2005, Page 1
RAFVERKTAKAR
- sérverslun með raftæki
^rafsjáhf
SÆMUNDARGÖTU1 SAUBÁRKRÓKI SÍMI453 5481
íbúðalánasjóður
www.ibudalan.is
Baldur Sigurðsson ásamt eiginkonu sinni Margréti Pétursdóttur.
Baldur Sigurðsson fékk góðan glaðning í Lottóinu
„Ég er ákaflega
rólegur"
„Ég fékk glaðningu góða upp á - það er ekkert leyndarmái -
24.699.690",- krónur, sagði Baldur Sigurðsson, Lottóvinningshafi
á Sauðárkróki í samtali við Feyki í gær.
Baldur keypti lottómiða
í sjálfvali hjá Ábæ veitingum
á Sauðárkóki á laugardag
en hann segist ekki spila
reglulega í Lottóinu. „Hef
bara spilað stöku sinnum
þegar potturinn er stór í
þeirri von að krækja í þann
stóra,” segir hann. „Og viti
menn, það tókst fyrir rest. Ég
er ákaflega rólegur. Þetta fer
bara inn á bankareikninginn
og svo sér maður bara til hvað
þarf að gera. Það er af nógu
að taka. Eitt er þó víst og það
er að ég ætla ekki að fara gera
neina vitleysu.”
Baldur er fyrrverandi
bóndi í Vesturhlíð í V esturdal
en starfar nú sem bílstjóri
hjá Suðurleiðum, sem er
fólksflutningafyrirtæki í
eigu Jóns Sigurðssonar á
Sleytustöðum. Hann ætlar
að halda áfram að sinna sínu
starfi og segist ekki hafa nein
áform uppi um að skilja við
Suðurleiðir og Jón þrátt fyrir
nýfengið ríkidæmi.
Þess má geta að
happatölurnar hans Baldurs
reyndust vera 14, 21, 26, 32
og 33 og sennilega öllunr
sjálfsagt að prófa þær aftur.
Rafrænt bros frá Hvammstanga
Fjarmóttökuritari
þjónustar viðskipta
vin á snertiskjá
Fyrirtækið Forsvar
ehf. á Hvammstanga
tekur á næstu dögum
í notkun athyglisverða
nýjung í fjarvinnslu
sem er fjarmóttöku-
ritaraþjónusta.
Þjónustan felst í að þegar
viðskiptavinur fyrirtækis í
Reykjavík nýtir sér snertiskjár
og fær þá bæði mynd- og
hljóðsambandvið þjónustu-
fulltrúa á Hvammstanga sem
leysir úr erindum hans eins og
um venjuleg samskipti mót-
tökuritara og viðskiptavinar
væri að ræða. Fyrirtæki þetta
heitir GLAX viðskiptaráðgjöf
og er samstarfsaðili Forsvars.
GLAX viðskiptaráðgjöf ós-
kaði eftir þessari þjónustu og
átti hugmyndina. Sjá nánar í
miðopnu blaðsins.
Rækjuvinnsla á Blönduósi______________
Mál skýrast á
næstunni
Útlitið í atvinnumálum á Blönduósi hefur ekki verið
bjart að undanförnu og munar þar mestu um lokun
rækjuvinnslunnar Særúnar þar sem 25 manns höfðu
vinnu.
Viðræður hafa að un- rækjuvinnslunni að nýju og er
dan- förnu staðið yfir við aðila gert ráð fýrir að skýrist hvort af
sem hyggjast hefja rekstur í opnun verður á næstu dögum.
Lögreglan á Sauðárkróki
Þungir bensínfætur
á Strandveginum
Nokkuð hefur borið á
hraðakstri á Strand-
veginum á Sauðárkróki
og beinir lögregla þeim
tilmælumt til ökumanna
að virða hraðamörk.
Svæðið í kringum Strandveg-
inn er mikið nýtt af útivistarfólki
og hestamönnum og geta bílar á
of mikilli ferð sett líf rnanna og
skeppna í hættu. Þannig hafði
hestamaður samband við blaðið
og kvartaði \fir þ\’í að ungur
maður heíði ekið á “ofsahraða”
framhjá sér og fælt undir sér lítið
tamið hross, sem hann reið á
reiðveginum meðfram Strand-
götunni.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—LTcHyill ehp—
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
Æl
bílaverkstæði
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141